Fréttablaðið - 20.05.2015, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 201518
Þór hf. hefur í rúmlega hálfa öld þjónustað verktaka og fyrirtæki í byggingariðnaðin-
um og boðið upp á fjölbreytt úrval
vinnuvéla og verkfæra. Fyrirtækið
flutti í mun stærra og betra húsnæði
á Krókhálsi 16 fyrir fjórum árum og
sköpuðust þá mörg ný tækifæri til
stækkunar.
„Við höfum jafnt og þétt verið að
auka vöruúrvalið og bæta við okkur
umboðum,“ segir Ragnar Jónsson,
deildarstjóri verkfæradeildar Þórs
hf.
Rótgróin merki
Meðal þeirra merkja sem Þór hf.
selur má nefna Makita, Flex, Kubota,
Prebena og Demag. Þá er Wacker
Neuson vel þekkt merki innan verk-
takageirans.
„Wacker Neuson framleiðir
breiða línu af vinnuvélum og tækj-
um fyrir verktaka og fyrir bygginga-
iðnaðinn,“ segir Ragnar.
„Þar má til dæmis nefna Kramer,
sem býður meðal annars upp á fjór-
hjólastýrðar hjólaskóflur og skot-
bómulyftara sem henta öllum
aðstæðum hér á landi, Wacker
Neuson-gröfur og hjólavagna, jarð-
vegsþjöppur og steypuvíbratora. Í
raun býður Wacker Neuson upp á
heildstæða línu fyrir verktaka, með
allt sem snýr að jarðvegs- og steypu-
vinnu. Þetta er góð viðbót á markað-
inn á Íslandi og við höfum nú þegar
selt nokkrar Kramer-vélar og Wac-
ker Neuson-gröfur. Wacker Neuson
hentar öllum verktökum og bænd-
um og eru einnig hentugar vélar í
kirkjugarða.“
Kubota-vélar í mikilli sókn
Þór hf. hefur verið haft umboð fyrir
Kubota síðan árið 1978 en Kubota er
stærsti framleiðandi smátraktora,
minigrafa og dísilmótora undir 100
hestöflum í heiminum. Í Kubota-
línunni eru atvinnusláttutraktor-
ar, gröfur, litlir smátraktorar ásamt
miklu úrvali af landbúnaðartraktor-
um, en þar er Kubota í mikilli sókn
að sögn Ragnars.
„Meðal viðskiptavina okkar eru
bæjarfélög, fyrirtæki í atvinnuslætti
og kirkjugarðar víðs vegar um land-
ið. Þess má geta að Reykjavíkurborg
er nú að fá 3 nýjar Zero-turn-sláttu-
vélar sem nota á um alla borg og er
nú þegar með 7 slíkar vélar í notkun,
auk tveggja smátraktora, BX2350,“
útskýrir Ragnar.
Markaðurinn að lifna við
„Við seldum 5 tonna Kramer-vél í
tengslum við framkvæmdirnar í
Vaðlaheiðargöngum og 3,5 tonna
vél til Kirkjugarða Reykjavíkur. Og
nú erum við að bíða eftir tveimur
Kramer-vélum að utan til afhend-
ingar. Við merkjum það vel að mark-
aðurinn er að lifna við eftir mögur
ár,“ segir Ragnar.
Áratuga reynsla
Þór hf. rekur einnig viðgerðar- og
varahlutaþjónustu.
„Við búum svo vel að hafa mjög
litla starfsmannaveltu. Sumir starfs-
manna okkar hafa unnið hér í 40 ár
eða lengur og þekkja því markaðinn
inn og út. Viðskiptavinir okkar koma
aftur og aftur til okkar.“
Áratuga reynsla og aukið
vöruúrval rótgróinna merkja
Þór hf. býður úrval vinnuvéla og verkfæra í rúmgóðri verslun að Krókhálsi 16. Fyrirtækið rekur einnig viðgerðar- og
varahlutaþjónustu og byggir á áratuga langri reynslu starfsmanna sem þekkja markaðinn vel. Viðskiptavinir koma aftur og aftur.
Meðal þeirra merkja sem Þór hf. selur má nefna Makita, Flex, Kubota, Prebena og
Demag. Þá er Wacker Neuson vel þekkt merki innan verktakageirans.
Úrval vinnuvéla í rúmgóðri verslun Þórs hf. að Krókhálsi 16.
„Wacker Neuson framleiðir breiða línu af vinnuvélum og tækjum fyrir verktaka og fyrir
byggingaiðnaðinn,“ segir Ragnar.
„Meðal viðskiptavina okkar eru bæjarfélög, fyrirtæki í atvinnuslætti og kirkjugarðar víðs
vegar um landið.“
Ragnar Jónsson deildarstjóri og Einar Oddson sölustjóri hjá Þór hf. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.thor.is .
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
9
-D
2
4
C
1
7
D
9
-D
1
1
0
1
7
D
9
-C
F
D
4
1
7
D
9
-C
E
9
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K