Fréttablaðið - 20.05.2015, Side 42
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 201520
Þegar ráðist var í fram-kvæmdir við Reykjavík-urhöfn vann danskt verk-
takafyrirtæki verkið. Danirnir
fluttu inn tvær eimreiðar, Minor
og Pion eer, fyrstu og einu gufu-
knúnu lestirnar sem notaðar hafa
verið hér á landi,“ segir Sigurlaug-
ur Ingólfsson sagnfræðingur á Ár-
bæjarsafni en safnið geymir aðra
þessara tveggja eimreiða.
Lestirnar voru smíðaðar í
Þýskalandi árið 1892 og komu
hingað til lands árið 1913. Í milli-
tíðinni hafði verið skipt um ketil
í Pioneer svo hún var talsvert öfl-
ugri en hin.
Tvær járnbrautir voru lagðar,
önnur frá Rauðarárholtinu og hin
frá Öskjuhlíðinni og fluttu lestirn-
ar grjót í varnargarðana við höfn-
ina
„Við verkið tókst að velta ann-
arri lestinni og það er fyrsta og
eina lestarslysið sem orðið hefur
á Íslandi,“ segir Sigurlaugur.
Hafnargerðinni lauk árið 1917
og var Minor lagt stuttu seinna en
Pioneer var notuð allt fram til árs-
ins 1928 við stækkun hafnarinnar
og til annarra verkefna. Teinarn-
ir voru síðar rifnir upp, vagnarn-
ir seldir úr landi og eimreiðarn-
ar settar í geymslu. Þar með lauk
sögu eimreiða á Íslandi.
„Árið 1917 voru lagðar undir-
stöður fyrir lestarteina í atvinnu-
bótavinnu milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur og búið var að teikna
lestarstöð í Norðurmýrinni. Það
voru því ýmsar hugmyndir uppi
um lagningu járnbrauta á Íslandi
sem ekkert varð úr.“
Konur greiddu atkvæði með
kaupum á valtara
Önnur vinnuvél frá fyrri tíð í
vörslu Árbæjarsafns er gufuvaltar-
inn Bríet. Valtarinn kom til lands-
ins árið 1911, fyrsta tæki sinn-
ar tegundar á landinu. Valtarinn
er kenndur við Bríeti Bjarnhéð-
insdóttur og upphaflega líka við
Knud Zimsen, „Bríet Knútsdóttir“,
en eingöngu Bríetarnafnið festist
við hann. Knud Zimsen, þá bæj-
arverkfræðingur en síðar borgar-
stjóri, lagði fram tillögu um kaup á
valtara fyrir Reykjavík. Hann þótti
of dýr en Knud sannfærði Bríeti
bæjarfulltrúa um kaupin.
„Fórar konur sátu þá í bæjar-
stjórn. Bríet náði hinum konun-
um í stjórninni á sitt band og þau
atkvæði dugðu til þess að kaupin
voru samþykkt,“ segir Sigurlaugur.
„Valtarinn var notaður fram
yfir árið 1940 við að malbika
götur Reykjavíkur. Valtarann var
enn hægt að keyra fyrir um fimm-
tán árum en talsverð hætta er á að
gufuketillinn springi í svo göml-
um vélum svo ekki er talið óhætt
að gangsetja Bríeti á ný.“
Umdeildur valtari og eimreiðar
Árbæjarsafn geymir aðra af tveimur járnbrautarlestum sem fluttar voru hingað til lands frá Danmörku árið 1913. Sú var í notkun til
ársins 1928 en þá lauk sögu járnbrautarlesta á Íslandi. Gufuvaltarinn Bríet er einnig á safninu en kaupin á valtaranum voru umdeild.
Saga járnbrautarlesta á Íslandi er ekki
löng. Árbæjarsafn geymir aðra af tveimur
eimreiðum sem notaðar voru við gerð
Reykjavíkurhafnar árið 1913-17.
Kaupin á gufuvaltaranum Bríeti voru umdeild í bæjarstjórn Reykjavíkur 1911. Valtarinn var í notkun fram yfir árið 1940.
MYNDIR/ÁRBÆJARSAFN
Stofnun vörubílastöðvarinn-ar Þróttar má rekja aftur árs-ins 1931 þegar vörubílstjór-
ar í Reykjavík sameinuðust í einu
stéttarfélagi og ákváðu að reka
saman eina vörubílastöð í Reykja-
vík. Í dag er Þróttur starfrækt af
um 50 vörubílstjórum sem allir
eiga eigin bíla með tilheyrandi
tækjum.
Verkefnin eru afar fjölbreytt
sem vörubílstjórar taka sér fyrir
hendur að sögn Jóns Pálsson-
ar sem hefur starfað hjá félaginu
síðan árið 1988. „Vörubílstjórar
hjá Þrótti koma við sögu í flestum
greinum atvinnulífsins á hverjum
degi. Þannig sjáum við um flutn-
ing á ýmiss konar tækjum, hráefni
og vörum fyrir fyrirtæki af öllum
stærðum og gerðum, flytjum efni
og jarðveg vegna mannvirkjagerð-
ar, vinnum fyrir garðyrkjumenn,
þjónum sjávarútvegi og fjarskipta-
fyrirtækjum, f lytjum malbik og
fyllingarefni og svo mætti lengi
telja. Þau eru fá verkefnin sem við
tökum ekki að okkur.”
Vörubílastöðin Þróttur býr
yfir stærsta og fjölbreyttasta flota
landsins í vörubílum og kranabíl-
um og er um leið elsta fyrirtæki
sinnar tegundar hér á landi. „Vöru-
bílar Þróttar eru eins misjafnir og
þeir eru margir. Þannig búa marg-
ir vörubílanna yfir öflugum krön-
um sem hafa lyftigetu frá 16 tm til
150 tm. Aðrir hafa körfur sem hægt
er að hífa upp í hæstu byggingar og
enn aðrir búa yfir þeim eiginleika
að geta mokað efni inn í garða eða
úr görðum, í allt að 18 metra frá
vörubílnum. En þetta snýr ekki
bara að stórum flota heldur hefur
stöðin aldrei verið skipuð jafn
hæfum bílstjórum og nú.“
Nýlega opnaði Þróttur nýjan og
aðgengilegan vef þar sem auðvelt
er að finna allar upplýsingar um
þá fjölbreyttu þjónustu sem vöru-
bílstjórar stöðvarinnar veita, hvort
sem um er að ræða vörubíla, krana-
bíla eða sérútbúna bíla. „Þar má til
dæmis fletta upp öllum vörubíl-
um stöðvarinnar og skoða hvað
hver og einn býður upp á. Þetta er
mjög þægilegur valkostur, sérstak-
lega fyrir þá sem eru að panta vöru-
bíl í fyrsta sinn.“
Þróttur er með starfsaðstöðu
sína á þriggja hektara lóð við Sæv-
arhöfða í Reykjavík en þar hafa bíl-
stjórar aðstöðu fyrir tæki sín og tól.
Afgreiðsla Þróttar er opin alla virka
daga frá kl. 7.30 til 18.00.
Allar nánari upplýsingar um
starfsemi Þróttar og einstaka vöru-
bíla má finna á www.throttur.is.
Koma við sögu á hverjum degi
Vörubílstjórar Þróttar tengjast flestum greinum atvinnulífsins á hverjum degi. Þjónusta þeirra er afar fjölbreytt enda inniheldur floti
stöðvarinnar um 50 vörubíla af öllum stærðum og gerðum. Nýlega opnaði stöðin nýjan og aðgengilegan vef með öllum helstu upplýsingum.
Tveir af reynslumiklum vörubílstjórum Þróttar, Jón Magnús Pálsson (t.v.) og Helgi Ágústsson. MYND/GVA
Þróttur býr yfir
stærsta og
fjölbreyttasta flota
landsins í vörubílum
og kranabílum. 2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
A
-2
6
3
C
1
7
D
A
-2
5
0
0
1
7
D
A
-2
3
C
4
1
7
D
A
-2
2
8
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K