Fréttablaðið - 20.05.2015, Síða 46
KYNNING − AUGLÝSINGVörubílar og vinnuvélar MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 201524
Pabbi og mamma, þau Björn Guðmundsson og Kristín Guðmundsdóttir, stofnuðu
fyrirtækið árið 1990. Pabbi byrj-
aði með tvær hendur fullar af verk-
færum og stóð vaktina einn fyrstu
fjögur árin. Með tímanum fjölg-
aði starfsmönnum og árið 1996 var
byggt þetta hús hér í Tranavogi 3
þar sem við störfum enn þann dag
í dag,“ segir Guðmundur Björnsson,
einn eigenda Vörubíla- og vinnu-
vélaverkstæðisins ehf. Með til-
komu hins nýja húsnæðis breyttust
einnig áherslurnar í starfseminni.
„Ákveðið var að minnka áhersluna
á vörubílaviðgerðir og fara meira út
í vagnaviðgerðir en þar liggur okkar
sérþekking í dag.“
Af hverju var farið út í þessar
áherslubreytingar? „Fyrirtækið
fékk tækifæri til að taka við þjón-
ustu hjá einu af stærstu landflutn-
ingsfyrirtækjum í Reykjavík. Þar
sem húsið býður ekki upp á fjöl-
þætta starfsemi þurfti að velja á
milli verkefna og þá var tekin þessi
stefna,“ svarar Guðmundur.
Þekking og reynsla
Vörubíla- og vinnuvélaverkstæð-
ið sérhæfir sig sérstaklega í öllu
sem tengist hjólabúnaði í tengi-
og festivögnum, bremsum, legum
og fjaðrabúnaði til dæmis. „Það er
nóg að gera í því. Við erum með fáa
en stóra kúnna sem eru flestir hér
í kringum okkur. Þetta eru land-
flutningafyrirtæki sem flytja vöru
og fisk,“ segir Guðmundur en verk-
stæðið sér bæði um viðhald og við-
gerðir þessara vagna. „Við sjáum
til dæmis til þess að þessi tæki fari
í gegnum umferðarskoðun hjá
Frumherja.“
Guðmundur segir verkstæðið
búa yfir góðum búnaði til viðgerða
og viðhalds á tengivögnunum. „Í
mörgum þessara vagna í dag eru
rafstýrðar bremsur (EBS) og annar
tölvustýrður búnaður og við erum
með tölvukerfi og búnað til að bil-
anagreina, sem fáir aðrir búa yfir,“
segir Guðmundur og bætir við að
fáir veiti þjónustu á þessu sviði
enda komist færri að en vilja á verk-
stæðinu.
Heiðarleiki og skjót vinnubrögð
Tranavogurinn hentar að mati
Guðmundar fullkomlega fyrir
starfsemi á borð við þá sem Vöru-
bíla- og vinnuvélaverkstæðið býður
upp á. „Viðskiptavinir okkar eru
hér í næsta nágrenni sem er mik-
ill kostur enda gera þeir talsverða
kröfu um skjóta þjónustu. Helst á
bíllinn að geta farið inn á verkstæði
og út á fjórum tímum til að komast
beint í næstu ferð. Það er því pressa
á okkur alla daga frá átta til sex,“
segir hann glaðlega.
Annað sem lögð er mikil áhersla
á hjá verkstæðinu eru vönduð
vinnubrögð, heiðarleiki og áreiðan-
leiki. „Við reynum alltaf að halda
viðskiptavinum okkar upplýst-
um um hvert verkefni enda ligg-
ur mikill peningur í hverri viðgerð.
Við tökum því ekki stórar ákvarð-
anir nema í samráði við kúnnana
okkar,“ segir Guðmundur og bendir
á að V&V hafi fengið viður kenningu
sem Framúrskarandi fyrirtæki árið
2014 hjá Credit Info.
Haldið upp á afmælið
„Ætlunin er að halda upp á 25 ára
afmæli fyrirtækisins í lok mánað-
arins með því að halda veislu fyrir
viðskiptavini og aðra sem tengjast
okkur,“ segir Guðmundur kátur.
Hann sjálfur ólst upp innan um
vörubílana á verkstæði pabba síns.
Hann lærði viðskiptafræði en var
alltaf með puttana í viðgerðunum
og lærði af föður sínum. „Ég kom
á fullu inn í fyrirtækið árið 2006
og tók við því 2007,“ segir hann.
Aðeins ári síðar, árið 2008, varð
Björn, faðir hans bráðkvaddur.
Guðmundur telur að pabbi sinn
væri ánægður með stöðu fyrirtæk-
is síns í dag. „Já, og ég held að hann
sé hérna hjá okkur. Við heilsum
honum í það minnsta alltaf á hverj-
um degi.“
Sérhæfðir í vagnaviðgerðum
Vörubíla- og vinnuvélaverkstæðið ehf. í Tranavogi 3 er 25 ára í ár. Verkstæðið sinnir viðgerðum og viðhaldi fyrir allar gerðir vörubíla
og tengivagna en hefur sérhæft sig sérstaklega í vagnaviðgerðum. V&V fékk viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki 2014.
Guðmundur er hér með Grétari Agnarssyni sem hefur starfað hjá Vörubíla- og vinnuvélaverkstæðinu í sautján ár, og er potturinn og
pannan í starfseminni. MYND/VALLI
Vinnuvélar voru teknar í notk-un í íslenskum landbúnaði laust fyrir árið 1920. Fram að
þeim tíma var afl vinnuhestanna
nánast það eina sem bæst hafði
við mannsaflið frá örófi alda. Með
stofnun íslensku búnaðarskólanna
á níunda tug nítjándu aldar breidd-
ust jarðvinnsluverkfæri, plógar og
herfi fyrir hesta, út um sveitir sem
og kunnátta í meðferð þeirra. Að
sögn Bjarna Guðmundssonar, pró-
fessors við Landbúnaðarháskóla Ís-
lands, voru þetta miklar framfar-
ir sem leiddu af sér algjörlega nýja
hugsun í landbúnaðarframleiðslu
hér á landi.
Fyrsti traktorinn kom til Íslands
árið 1918 en markmiðið með kaup-
unum var að auka ræktun, meðal
annars á kartöf lum, sem vax-
andi markaður var fyrir. „Þetta var
bandarískur Avery-traktor sem var
16 hestöfl. Það voru útvegsbænd-
ur á Akranesi, Þórður Ásmunds-
son og fleiri, sem keyptu traktorinn
með atbeina Stefáns B. Jónssonar,
kaupmanns í Reykjavík, sem hafði
kynnst vélarafli til landbúnaðar
vestur á sléttum Kanada.“
Að sögn Bjarna var ræktun á
þessum árum einkum engjaræktun
með hand- og hestaverkfærum. „Þar
voru áveitur hátt á lista, það er um-
bætur til þess að vökva engjalönd
svo þau skiluðu meira grasi. Stór
plön voru gerð um áveitur austur í
Árnessýslu og árið 1919 var keypt
skurðgrafa til þess að grafa aðal-
skurðinn fyrir Skeiðaáveituna. Með
vissum hætti má kalla hana fyrstu
vinnuvélina sem gagnaðist íslensk-
um bændum. Skurðgrafa þessi átti
sinn þátt í þeim stórkostlegu rækt-
unarframkvæmdum sem Skeiða- og
síðar Flóaáveitan urðu og á grunni
þeirra byggðist öflugur landbúnað-
ur í neðanverðri Árnessýslu.“
Sumarið 1921 kom fyrsti þúfna-
baninn til landsins sem notaður
var til að slétta þúfurnar sem þvælst
höfðu fyrir sláttumönnum í alda-
raðir. Stærstu skrefin í sögu vinnu-
véla í landbúnaði voru þó tekin í
seinni heimsstyrjöldinni að sögn
Bjarna, eða á árunum 1942-1943.
„Á þessum tíma komu skurðgröf-
urnar fram og beltavélar með ýti-
tönn, sem síðar voru kallaðar jarð-
ýtur. Ræktunarmenn renndu hýru
auga til mýranna, að þar mætti
rækta ný og stór tún, en til þess
þurfti að ræsa þær fram og þurrka.
Svo komu glöggir menn auga á sér-
staka skurðgröfugerð sem vel hafði
reynst vestur í Nýja-Íslandi í Kan-
ada, skurðgröfur með dragskóflu.
Þær voru keyptar og á næstu árum
fóru þær tugum saman um sveitir
landsins og ræstu fram mýrar, nær
allar í ríkisvæddri félagseign. Hins
vegar voru menn í vandræðum með
uppmoksturinn en þá komu jarð-
ýturnar til sögunnar. Segja má að
jarðýturnar hafi verið tímamóta-
vélar því með þeim mátti rækta
tún á vorin og haustin, leggja vegi
á sumrum og ryðja snjó á vetrum.
Eiginlega losuðu jarðýturnar ís-
lenskar sveitir úr álögum og ein-
angrun.“
Aðstaða vinnuvélarekils var
ákaflega frumstæð á fyrstu árum
vinnuvéla að sögn Bjarna. „Sætin
voru til dæmis úr járnplötu ellegar
pottsteypu. Menn stungu kannski
heyvisk, strigapoka eða gæruskinni
undir rassinn til þess að mýkja og
ylja. Jarðýtusætin voru bólstruð
sem þótti munaður. Fjöðrun sæt-
anna var lítil sem engin og álag á lík-
amann, einkum bakið, oft og tíðum
ómennskt, enda voru það ekki nema
hraustmenni sem héldu verkin út.“
Erlend tækni átti greiða leið
hingað til lands og hvað landbún-
aðinn snertir telur Bjarni að bæði
stuðningur ríkisvaldsins og ekki
síður félagslegar lausnir við kaup og
rekstur vinnuvéla hafi skipt ákaf-
lega miklu máli og ýtt duglega við
þróuninni. „Sérstaða okkar ligg-
ur líka í því hve tímabil vinnuhest-
anna í sveitum var stutt miðað við
nágrannaþjóðir. Menn vildu, marg-
ir hverjir, hlífa hestunum en tóku
fagnandi nýrri og afkastamikilli
véltækni.“
Íslenskar sveitir losna úr álögum
Landbúnaður á Íslandi tók miklum breytingum með tilkomu vinnuvéla. Fyrsti traktorinn kom til landsins 1918 en stærstu breytingarnar
urðu í lok seinni heimsstyrjaldar. Stuðningur ríkisvaldsins og félagslegar lausnir við kaup og rekstur vinnuvéla skiptu miklu máli.
Bjarni Guðmundsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, stendur hér við skerpiplóginn sem naut mikilla vinsælda sem
vinnutæki á jarðýtur við nýbrot mýra upp úr miðri síðustu öld. MYND/ÚR EINKASAFNI
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
A
-4
8
C
C
1
7
D
A
-4
7
9
0
1
7
D
A
-4
6
5
4
1
7
D
A
-4
5
1
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K