Fréttablaðið - 20.05.2015, Side 54

Fréttablaðið - 20.05.2015, Side 54
 | 8 20. maí 2015 | miðvikudagur Helga Sigurrós Valgeirsdóttir lét nýlega af störfum sem aðstoðar- maður Sigurðar Inga Jóhannssonar, landbúnaðar- og sjávarútvegsráð- herra, og hóf störf í sjávarútvegs- teymi Arion banka. „Mér líst bara stórvel á. Þetta er skemmtilegt umhverfi og auðvitað mikið að læra. Ég er að átta mig á því hvernig húsið snýr og hvar fólk- ið er,“ sagði Helga Sigurrós í sam- tali við Markaðinn á mánudaginn, en það var fyrsti dagur hennar í nýrri vinnu. Helga er menntaður sjávarút- vegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og lauk svo gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Grenoble Graduate School of Business. Starf hennar sem liðsmaður í sjávarút- vegsteymi bankans felst í lánveit- ingum til sjávar útvegsfyrirtækja mestmegnis, samskiptum við fyrir- tæki sem eru í viðskiptum við bank- ann og öfl un nýrra viðskiptavina, svo dæmi séu nefnd. Helga sinnti ýmsum störfum á meðan hún var nemi. Hún var til dæmis háseti á skaki hjá frænda sínum á Patreksfi rði og vann ýmis störf tengd hestum. Sjómennsk- una þekkti hún aftur á móti vel úr bernsku. „Ég er sjómannsdóttir og hafði farið nokkra túra með pabba. Þannig að þetta var mér ekki með öllu ókunnugt,“ sagði hún. Helga segir að landið og miðin hafi alltaf verið sér hugleikin. Móður bróðir hennar hafi alltaf átt dálítið ríkan þátt í að móta hvert hún fór. „Ég hef verið svolítið í hestun- um, sem ég kynntist í gegnum hann, og fór með honum á sjó. Að öðrum ólöstuðum þykir mér ákafl ega vænt um þau mótandi áhrif sem hann hefur haft á mig,“ segir hún. Eftir að Helga lauk sjávarútvegs- náminu hefur hún að mestu leyti starfað í stjórnsýslunni, fyrst á Fiskistofu en svo í ráðuneytinu. „Þannig að það er spennandi að skipta um starfsvettvang. Ég hef góða yfi rsýn hinum megin frá og hef kynnst greininni vel og ég hlakka til að nálgast hana úr þessari átt,“ segir Helga. Þessa dagana stundar Helga mikla hreyfi ngu. „Ég asnaðist til þess að skrá mig í þríþraut í sumar til að reyna að ná í skottið á mann- inum mínum, sem er alltaf á hlaup- um. Þetta gengur vel, markmiðið er að komast alla leið, en ég mun ekki hreykja mér af neinum tímum,“ segir hún. Fyrst hún skráði sig í þrautina og er búin að ákveða að gera þetta þá klári hún það. „Það er nú svolítið markmiðið almennt,“ segir Helga og segir aðspurð að hún sé fylgin sér. Helga er gift Ævari Rafni Björns- syni og þau eiga tvær dætur, tveggja og sjö ára. „Heimurinn eftir vinnu kristallast svolítið í þessu fjölskyldulífi , hvernig maður getur gert það gott og skemmtilegt,“ segir hún. „Áherslan er á fjölskyld- una, mér fi nnst gaman að elda góðan mat, vera með eða fara í skemmti- leg matarboð og sinna þannig þeim tengslum sem ég á í vinum og fjöl- skyldu,“ segir Helga Sigurrós sem reynir að komast í reiðtúr daglega. jonhakon@frettabladid.is Helga Sigurrós er skemmtileg, áræð- in, glögg, lausna- miðuð og afar skipulögð. Svo æfir hún fyrir þríþrautar- keppni á sumri komandi og hún er alltaf til staðar fyrir þá sem þurfa á henni að halda. Sem er vissulega kostur fyrir aðstoðarmenn ráðherra. Og það verður að segjast eins og er að ráðuneytið er heldur fátækara eftir brotthvarf Helgu, en nýi vinnustaðurinn, Arion banki, ögn ríkari. Gallana hirði ég ekki um; man ekki eftir neinum, nema kannski helst að hún skyldi hætta! Benedikt Sigurðsson, aðstoðar- maður ráðherra. Helga Sigurrós er ein mest drífandi persóna sem ég þekki og ættu allir að hafa a.m.k. eina Helgu í sínu lífi. Ef ég ætti að lýsa henni í einu orði þá held ég að „nagli“ yrði fyrir valinu. Helga er sérstaklega skipulögð og er alltaf hægt að stóla á hana. Hún er mikil fjölskyldumann- eskja og tekst með sínum frábæru skipulagshæfileikum að mastera heimilið, vinnuna og áhugamálin á sama tíma. Helga er mikil keppnis- manneskja í því sem hún tekur sér fyrir hendur og leysir öll sín verkefni af mikilli fagmennsku. Petra Björk Mogensen vinkona. ALLTAF TIL STAÐAR FYRIR ALLA Markmiðið að klára þríþraut í sumar Helga Sigurrós Valgeirsdóttir er nýr liðsmaður í sjávarútvegsteymi Arion banka. Helga fór á skak með frænda sínum á námsárunum. Hún segir að landið og miðin hafi alltaf verið sér hugleikin. HESTAKONA Helga Sigurrós Valgeirsdóttir reynir að komast í reiðtúr daglega. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sendinefnd Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins er í heimsókn á Íslandi um þessar mundir vegna eftirfylgni við efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins. Sendinefndin hefur átt fjölda funda með fulltrúum stjórnvalda, þingmönnum, Seðlabankanum og fl eirum. Peter Dohlman, formað- ur sendinefndar AGS fyrir Ísland, og Ghada Fayad, fulltrúi í sendi- nefndinni, munu í dag greina frá mati á efnahagsstöðu Íslands. - jhh Kynna mat á efnahagsstöðunni: Fulltrúar AGS staddir hér Yanis Varoufakis, fjármálaráð- herra Grikklands, býst við því að samkomulag náist við lánardrottna gríska ríkisins á næstunni. Fréttastofa BBC segir að fjár- munir ríkissjóðs séu smátt og smátt að minnka og fram undan sé 1,5 milljarða greiðsla til Alþjóðagjald- eyrissjóðsins þann 5. júní næstkom- andi. Varoufakis segir Grikki ekki vera á leið úr evrusamstarfi nu á næst- unni. - jhh Ekki á leið úr evrusamstarfinu: Samkomulag í augsýn Raftækjaverslanakeðjan Ormsson hagnaðist um 34 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaður fyrirtækisins jókst verulega milli ára en hann var 1,8 milljónir króna árið 2013. Þá jókst rekstrahagnaður einn- ig og var 150 milljónir í fyrra til saman burðar við 94 milljónir króna árið 2013. Handbært fé frá rekstri nam 68 milljónum króna árið 2014. Skuldir Ormsson nema alls 1.097 milljónum króna en lækkuðu um 67 milljónir króna. Eigið fé Ormsson nemur 115 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall var því 9,5 prósent árið 2014 en það var 6,6 prósent árið 2013 og hækk- aði milli ára. Langtímaskuldir Ormsson nema 454 milljónum króna og hafa þær hækkað um 150 milljónir frá árinu 2012. Þá nema viðskiptaskuldir félagsins 428 milljónum króna og aðrar skammtímaskuldir 163 millj- ónum króna. Ormsson rekur tvær verslanir í Reykjavík, auk þriggja annarra. - ih Skuldir Ormsson nema ríflega einum milljarði króna en lækkuðu lítillega milli ára: Afkoma Ormsson batnar ORMSSON Ormsson rekur fimm verslanir á Íslandi, þar af eina í Lágmúla. FRÉTTABLAÐIÐ/ 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 D 8 -6 E C C 1 7 D 8 -6 D 9 0 1 7 D 8 -6 C 5 4 1 7 D 8 -6 B 1 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 7 2 s _ 1 9 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.