Fréttablaðið - 20.05.2015, Side 64
20. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 20
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
„Það er nokkuð ljóst að eftirspurn-
in er til staðar, við höfum ekki
einu sinni skilað lokaskýrslunni
en allir vita hvað þetta er,“ segir
Heiður Rán, ein þeirra sem vinna
að barnapössun.is sem fór á flug í
byrjun vikunnar. „Þessi viðbrögð
eru ekkert í líkingu við það sem
við höfðum gert okkur í hugarlund,
og koma okkur vissulega í opna
skjöldu, en skerpa enn frekar á að
þörfin er greinilega til staðar.“
Um ræðir verkefni hóps á
þverfaglegu námskeiði á vegum
Háskólans í Reykjavík og standa
auk Heiðar þau Gyða Dröfn Svein-
björnsdóttir, Halldóra Gunnars-
dóttir, Hannes Þór Arnarsson,
Helen Rut Ástþórsdóttir og Helga
Guðmundsdóttir á bak við verk-
efnið. Heiður segist hafa fengið
hugmyndina, en hún sé tveggja
barna móðir sem finnur virkilega
fyrir þörfinni á barnfóstrukerfi
hér á land. „Það er ekkert grín
að vera útivinnandi með börn,
þar sem foreldrar fá sjö daga á
ári, óháð fjölda barna, í veikinda-
daga. Þá á eftir að gera ráð fyrir
vetrar fríunum, starfsdögunum og
öllu þessu sem bætist við,“ segir
Heiður og bætir við að oftar en
ekki fari frítími foreldra og barna
forgörðum þar sem foreldrar
neyðist oft til að nýta sumarfrís-
daga til að vera heima með börn-
unum eftir að þessum sjö dögum
er lokið. „Þær lausnir sem í boði
eru í dag eru aðallega barnapíur
á bland.is og Fésbókarhópar. Það
er ekki sérlega traustvekjandi,
finnst okkur,“ segir Heiður og
bendir á að hún hafi þó nokkuð oft
rekið augun í auglýsingar í svona
hópum þar sem myndir af börnum
eru settar inn og óskað eftir pöss-
un fyrir þau. Að auki sé ólöglegt
fyrir einstaklinga undir 15 ára
að auglýsa barnapössun á þess-
um miðlum, sem þó hefur tíðkast
í mörg ár. „Við viljum koma á fót
kerfi sem byggir á öryggi og eft-
irliti, þar sem endurgjöf er mikil-
vægur partur. Þannig sé hægt að
vera með aðhald og sigta úr rotin
epli,“ segir hún.
Greinilegt er að eftirspurnin er
gríðarleg, en síminn hefur ekki
stoppað síðan hópurinn stofnaði
Fésbókarsíðuna „Þetta er svolít-
ið skrítið, allt í einu eru allir að
tala um þetta. Nú vonum við bara
að þetta hafi í för með sér ein-
hverja fjárfesta og svoleiðis svo
við getum látið verða af þessu, því
þörfin er greinilega til staðar,“
útskýrir Heiður.
Hugmyndin sem tók óvænt
á loft og allir eru að tala um
Barnapössun.is er nýsköpunarverkefni nemenda við Háskólann í Reykjavík. Partur af verkefnislýsingunni
var að koma hugmyndinni á framfæri og var fésbókarsíða sett í loft ið. Síðan hefur síminn ekki stoppað.
BARNAPÖSSUN.IS Hópur nema í HR sem vinnur að verkefninu sem farið hefur vel af stað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Það er ekkert grín
að vera útivinnandi með
börn, þar sem foreldrar
fá sjö daga á ári, óháð
fjölda barna, í veikinda-
daga. Þá á eftir að gera
ráð fyrir vetrar fríunum,
starfsdögunum og öllu
þessu sem bætist við.
Kvöldsólin baðaði götuna gulum bjarma og í fyrsta skipti í langan
tíma fékk ég á tilfinninguna að sum-
arið væri handan við hornið. Þó var
svalt í lofti og nágrannar mínir sem
sáust á stjákli úti á svölum voru vel
klæddir en einhver vorfiðringur ein-
kenndi andrúmsloftið. Þeir mund-
uðu grilltangir. Ilminn af kryddlegn-
um sneiðum, kraumandi á grillinu
lagði um allt hverfið og ég heyrði
klingja í bjórflöskum. Ég var ein-
mitt á leiðinni út í búð að kaupa
meðlæti með kvöldmatnum.
SÚ á undan mér í röðinni við
kassann var að kaupa dós af hrá-
salati og álpappír, sjálfsagt til að
vefja bökunarkartöflurnar inn í
áður en þær færu á glóandi kolin
eða lambalærið, með fersku timjan
og smá rósmaríni. Hún horfði eilítið
undrandi útundan sér á það sem ég
tíndi upp úr körfunni. Litla dós af
grænum baunum, rauðkál, malt og
appelsín. Það yrði reyndar kjötmeti í
kvöldmatinn hjá mér. Ekki mariner-
aðar grillsneiðar, kryddsmjör og
kartöflusalat samt.
EFTIR að rafmagnið fór óvænt af
frystikistunni fyrir skömmu hefur
kjötmeti verið oft á borðum. Raf-
magnsleysið uppgötvaðist sem betur
fer áður en allt frost var farið úr
birgðunum sem þar voru geymdar,
en það seint að ekki þótti skynsam-
legt að frysta þær aftur. Við tókum
því til við að elda. Bóndinn er lunk-
inn kokkur og á matseðlinum undan-
farna daga hafa verið stórsteikur,
pottréttir, lasanja og alls kyns kosta-
kræsingar og skiptir þá engu máli
hvort það er hversdagslegt mánu-
dagskvöld. Sparibragur er á kvöld-
verðinum í hvert sinn.
ÞETTA kvöldið var komið að því
sparilegasta sem kom upp úr kist-
unni. Hangikjöt með uppstúf og kart-
öflum, rauðkáli og grænum baunum
yrði það heillin, þetta sólbaðaða laug-
ardagskvöld í maí. Við vorum með
gesti, höfðum í gríni boðið þeim í
„jólamat“ og skömmtuðum hátíðlega
á diska. Skáluðum í freyðandi jóla-
blöndu. Maturinn rann ljúflega niður
í kvöldsólinni.
Í dag er vorfiðringurinn víðsfjarri
og vindurinn gnauðar á glugga. Ekk-
ert vit í því að grilla. Það verður
hangikjöt í kvöld.
Vetrarstemming á vorkvöldi
MAD MAX 8, 10:30(P)
PITCH PERFECT 2 5:30, 8, 10:30
BAKK 5:50, 8
AVENGERS 2 3D 10:10
ÁSTRÍKUR 2D 5:50
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
S siAM
EMPIRE
- Fréttablaðið - Morgunblaðið
BYGGÐ Á SJÓNVARPSÞÁTTUNUM NJÓSNADEILDIN
Guðrún Ansnes
Þorvaldsdóttir
gudrun@frettabladid.is
● Þema keppninnar árið 1997 var
tækni, en þá var símakosning
prófuð í fyrsta sinn.
● Söngvarinn Reynars Kaupers tók
eftirminnilega þátt fyrir hönd Lett-
lands árið 2000 og lenti í 3.sæti
með lagið My Star. Síðan þá hefur
hann kynnt keppnina og verið
stigakynnir. Hann er sá eini sem
hefur gegnt þessum þremur hlut-
verkum.
● Þjóðverjar hafa einungis einu sinni
ekki tekið þátt og það var árið
1996, en þá komust þeir ekki í
gegnum síu dómnefndarinnar, sem
mátti bara velja 22 lög í keppnina.
● Í sigurlaginu árið
1995, Nocturne
frá Noregi, voru
einungis sungin
24 orð. Annar höf-
undur lagsins,
Rolf Løfland,
samdi líka
sigurlagið
1985, La
Det Swinge
með Bobby
Socks.
● Celine Dion
sigraði Euro-
vision árið
1988 með laginu Ne Partez Pas
Sans Moi, en það munaði aðeins
einu stigi á henni og hinum breska
Scott Fitzgerald.
● Þjóðverjar sigruðu í
fyrsta sinn árið
1982, en það var
söngkonan Nicole
með lagið Ein
Bißen Frieden.
Hún kom
öllum á óvart
þegar hún
söng lagið
aftur eftir að
hafa unnið
og tók það þá
á fjórum tungu-
málum; þýsku,
ensku, frönsku
og hollensku.
● Aldrei hefur
verið styttra
milli keppnisstaða milli ára 2013
og 2014 í Eurovision nema þegar
hún var í sama húsi. Keppnis-
staðurinn færðist um það bil um
14 kílómetra,
en þó í yfir í
annað land.
FÁNÝTUR
EUROVISION
FRÓÐLEIKUR
4 DAGAR Í EUROVISION
BOBBY
SOCKS
CELINE
DION
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
A
-3
9
F
C
1
7
D
A
-3
8
C
0
1
7
D
A
-3
7
8
4
1
7
D
A
-3
6
4
8
2
8
0
X
4
0
0
9
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K