Fréttablaðið - 20.05.2015, Síða 66
20. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 22
Í KVÖLD KL. 19:30
365.is Sími 1817
FYLKIR – KR
Jói Kalli og félagar í Fylki fá heimsókn úr Vesturbænum þegar
Bjarni bróðir mætir með stjörnumprýtt KR-liðið. Bæði lið unnu
sannfærandi í síðustu umferð og mæta því full sjálfstrausts í kvöld.
Fyrirmynd Búra er hinn danski Havartí-rjómaostur sem
athafnakonan Hanne Nielsen þróaði um miðja nítjándu öld
á býli sínu „Havarthigaard“ fyrir norðan Kaupmannahöfn.
Framleiðsla á Búra hófst árið 1980 á Húsavík en í
dag fer framleiðslan fram á Akureyri. Mjúkur og
smjörkenndur ostur með votti af ávaxtasætu, ljúfum
sítrustóni í lokin og langvarandi eftirbragði. Rjómakennd
einkenni ostins parast vel með sætum, örlítið sýrðum
ávöxtum, berjum og kryddsultum.
BÚRI
LJÚFUR
www.odalsostar.is
FÓTBOLTI Sigurður Egill Lárusson
er leikmaður 3. umferðar Pepsi-
deildar karla að mati Fréttablaðs-
ins en hann átti stórleik í 2-0 sigri
Vals á FH á sunnudaginn.
„Þetta var frábær
dagur og nánast full-
kominn leikur,“ sagði
Sigurður í samtali við
Fréttablaðið í gær en
hann skoraði bæði mörk
Vals í leiknum og hefur
því komið með beinum
hætti að öllum fjórum
mörkum Valsmanna á
tímabilinu en hann lagði
upp bæði mörkin í 2-2
jafntefli við Víking í
2. umferðinni. Sigurð-
ur segir að leik áætlun
Valsmanna gengið full-
komlega upp.
Lengsta æfing sem ég man eftir
„Það var lykilatriði að fá ekki á
sig mark í fyrri hálfleik þegar
þeir voru með vindinn í bakið. Við
vörðumst gríðarlega vel og þeir
sköpuðu sér lítið. Svo nýttum við
okkur vindinn í seinni hálfleik og
fengum fullt af færum og nýttum
tvö þeirra,“ sagði Sigurður en kom
frammistaðan honum á óvart?
„Í rauninni ekki. Mér fannst
leikurinn á móti Víkingi virkilega
góður og við ætluðum
að byggja ofan á hann.
Svo þekkir Óli (Ólafur
Jóhannesson, þjálfari
Vals) vel til FH-liðsins
og hann lagði leikinn vel
upp. Fyrir leikinn tókum
við einhverja lengstu
æfingu sem ég man
eftir, þar sem við fórum
yfir FH-liðið og sérstak-
lega föstu leikatriðin,“
sagði Sigurður en fjög-
ur af fimm mörkum sem
Valur hafði fengið á sig
komu eftir uppsett atriði.
Eins og fyrr sagði hefur Sig-
urður, sem er uppalinn Víkingur,
byrjað tímabilið af miklum krafti
og er þegar búinn að tvöfalda
markafjölda sinn síðan í fyrra.
Hann segist hafa æft vel í vetur.
„Ég hef sjaldan verið í eins góðu
formi og núna. Maður er loksins
farinn að æfa aðeins aukalega og
leggja meira á sig. Og það virðist
vera að skila sér,“ sagði Sigurður
sem líður best á hægri kantinum.
„Mér líður vel þegar ég er kom-
inn á hægri kantinn og get keyrt
inn á völlinn en annars er ég
ekki að spila öðruvísi en síðustu
ár,“ sagði Sigurður sem er á sínu
þriðja tímabili með Val.
Evrópusætið er markmiðið
En hversu langt getur Valsliðið
farið í sumar að mati Sigurðar?
„Ég hef trú á liðinu og við ætlum
okkur að vera í toppbaráttu. Við
settum okkur markmið fyrir mót
að berjast um Evrópusæti.“
Valsmenn sækja Breiðablik
heim í kvöld en þá fer heil umferð
fram. Sigurður býst við erfiðum
leik gegn Kópavogsliðinu sem er
með þrjú stig eftir fyrstu þrjár
umferðirnar.
„Við erum að fara að mæta
sterku liði Blika sem við lágum
illa fyrir í átta-liða úrslitum
Lengjubikarnum fyrir um mánuði
síðan. Við eigum harma að hefna
gegn þeim,“ sagði Sigurður Egill
Lárusson að lokum. ingvithor@365.is
Legg nú meira á mig
Sigurður Egill Lárusson hefur komið að öllum mörkum Vals í Pepsi-deildinni.
SIGURÐUR EGILL
LÁRUSSON
SPORT
FÓTBOLTI Alveg eins og á HM í fótbolta
í Brasilíu í fyrra verður íslenskur fulltrúi
á HM í Kanada þrátt fyrir að íslenska
kvennalandsliðið hafi ekki komist í
úrslitakeppnina.
María Þórisdóttir, 21 árs dóttir Þóris Her-
geirssonar, landsliðsþjálfara Norðmanna í
handbolta, er í 23 manna HM-hópi Norð-
manna. María verður í treyju númer tvö en
hún er þriðji yngsti leikmaður hópsins.
„Vá, þessu hefði ég ekki trúað fyrir
tveimur mánuðum síðan. Þetta verður
ótrúlega gaman,“ skrifaði María á Twitter-
síðu sína.
María valdi það að spila fyrir norska
landsliðið en hún er dóttir Þóris Hergeirs-
sonar, þjálfara norska kvennalandsliðsins í
handbolta, og hefur búið alla tíð.
María lék sinn fyrsta landsleik á móti
Íslandi í Algarve-bikarnum í byrjun mars
en hún spilar fyrir íslenska þjálfarann
Jón Pál Pálmason hjá spútnikliði Klepp
í norsku deildinni. Klepp-liðið er með
jafnmörg stig og Avaldsnes í 2. til 3. sæti
deildarinnar í HM-fríinu
Fyrir ári spilaði Aron Jóhannsson með
bandaríska landsliðinu á HM í Brasilíu en
hann fékk þá að spila í 67 mínútur.
Fyrsti leikur Norðmanna á HM er á móti
Taílandi 7. júní eða tveimur dögum eftir 22
ára afmæli Maríu. Þýskaland og Fílabeins-
ströndin eru einnig í riðlinum. - óój
Íslenskur fulltrúi á Heimsmeistaramótinu í Kanada í sumar
Á ALGARVE María lék fyrstu
landsleikina í mars.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Íslandsmeistaraefnin í
FH litu ekki vel út í 2-0 tapi á móti
Val á Vodafone-vellinum á Hlíðar-
enda á sunnudaginn og FH-ingar
gengu þar stiga- og markalausir af
velli í fyrsta sinn í þrjú ár.
Varamennirnir áttu góða inn-
komu í leikina sem FH-liðið vann
í 1. og 2. umferð en í öllum þrem-
ur leikjunum hefur verið lítið að
frétta á meðan allir ellefu leik-
menn byrjunarliðsins hafa verið á
vellinum. Heimir hefur samt ekki
breytt byrjunarliðinu sínu í fyrstu
þremur leikjunum fyrir utan það
að setja Brynjar Ásgeir Guð-
mundsson inn fyrir Jon athan
Hendrickx sem meiddist illa
á ökkla í fyrsta leik.
Í fyrstu tveimur
leikjunum skoraði
FH ekki mörk-
in fyrr en að
Heimir sendi
þá Atla Viðar
Björ nsson og
Bjarna Þór Viðars-
son inn á. Í báðum
leikjum þurfti ekki
að bíða lengi eftir
fyrsta markinu og
FH vann þær 43 mín-
útur sem þeir spiluðu
á móti KR og Keflavík
með markatölunni 5-0.
Heimir breytti hins
vegar ekki byrjunarlið-
inu sínu fyrir leikinn á móti Val en
sendi aftur á móti þá félaga Atla
Viðar og Bjarna inn á hvorn í lagi.
Bjarni Þór kom þannig inn á 55.
mínútu í stöðunni 0-0 og Atli Viðar
ekki fyrr en sextán mínútum síðar
þegar staðan var orðin 2-0 fyrir
Valsmenn.
Eftir þrjá leiki er byrjunar-
lið FH því búið að spila í samtals
189 mínútur án þess að skila einu
einasta marki. Markatala liðsins
fram að fyrstu skiptingu í þessum
þremur leikjum er meira að segja
í mínus.
Fjórði leikur FH er á móti nýlið-
um ÍA í kvöld og þá er að sjá
hvort Heimir þrjóskist áfram
við og stilli upp sama liði eða
hvort að hann hvort að hann
geri einhverjar breytingar. - óój
FYRSTU ÞRÍR LEIKIR FH:
1. UMFERÐ Á MÓTI KR
Fyrsta skipting á 72. mínútu
Byrjunarliðið: -1 (0-1)
Eftir fyrstu breytingu: +3 (3-0)
2. UMFERÐ Á MÓTI
KEFLAVÍK
Fyrsta skipting á 65. mínútu
Byrjunarliðið: 0 (0-0)
Eftir fyrstu breytingu: +2 (2-0)
3. UMFERÐ Á MÓTI VAL
Fyrsta skipting á 55. mínútu
Byrjunarliðið: 0 (0-0)
Eftir fyrstu
breytingu: -2
(0-2)
Byrjunarlið FH ekki
skilað einu marki
Varamennirnir kveiktu ekki á FH þriðja leikinn í röð.
62 MÍNÚTUR Markatala FH-liðsins með Atla
Viðar Björnsson inni á vellinum i í sumar er 5-0.
TVENNA Á MÓTI FH Liðs-
félagar Sigurðar fagna hér
með honum fyrra markinu á
móti FH. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
9
-F
4
D
C
1
7
D
9
-F
3
A
0
1
7
D
9
-F
2
6
4
1
7
D
9
-F
1
2
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
7
2
s
_
1
9
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K