Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1952, Side 14

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1952, Side 14
Búnaðarskýrslur 1949—50 12* selt var úr búi. Mjólkurbúið á Húsavík hóf starfrækslu síðast á árinu 1947 og tók á því ári móti 115 þús. kg af mjólk. Árið 1948 tóku þessi bú alls á móti 2 308 þús. kg, og nemur þetta nokkurn veginn jafnmiklu og' minnkun heimanotuðu mjólkurinnar á árinu. Athygli er vakin á því, að mjólkurmagnið í framtölum til Hagstof- unnar er ýmist gefið upp í lítrum eða kg án þess að fram komi, hvort lieldur sé, og er því hér ekki gerður greinarmunur á litrum og kg að því er snertir mjólkurmagn samkvæmt húnaðarskýrsluframtölum. Mjólk innvegin hjá mjólkurbúum, samkvæmt öðrum skýrslum, er hins vegar talin í kg', eins og hún er raunverulega gerð upp. Talin er fram nokkru meiri sölumjólk en innvegin hefur verið hjá mjólkurbúunum eftir skýrslum þeirra. Fer hér á eftir samanburður á þessu tvennu: Framtnliu sölumjólk 1000 I lunvegið hjá mjólkurbúum 1000 1 Pramtalin sölumjólk 1000 1 Innvegið hjú mjólkurbúum 1000 1 1946 ... ... 30 669 27131 1949 ... ... 38 627 35 870 1947 ... ... 34129 29 530 1950 ... ... 42 453 37 766 1948 ... ... 35 593 32 316 í mismun þessara talna á að felast sú rnjólk, sem seld er í skóla og aðrar stofnanir, kauptún og kaupstaði, sem ekki eru á verðlagssvæð- um mjólkurbúanna, og sú mjólk, sem seld er utan hjá mjólkurbúunum á verðlagssvæðum þeirra. Þessi mismunur er minnstur 1949, 2 757 þús. lítrar, en mestur 1950, 4 687 þús. lítrar. Munur þessara tveggja ára er undarlega mikill. Stafar hann af öðrum þræði af betra framtali í nokkrum kaupstöðum og kauptúnum 1950 en árið á undan, en hér gætir líka lítillar nákvæmni við það, hvernig mjólkinni er á framtöl- um skipt í heimanotaða mjólk og selda. Að öðru leyti bendir saman- burður á framtalsskýrslum og skýrslum mjólkurbúanna til þess, að ekki vanti mikið á, að sölumjólkin sé að fullu fram talin. Hafa sumar skattanefndir líka í höndum skýrslur mjólkurbúa um innvegna mjólk livers framteljanda og leiðrétta framtölin eftir þeim, ef á milli ber. Framtal heimanotaðrar mjólkur er hins vegar vitanlega ekki til hlítar nákvæmt. Nokkuð algengt er, að skattanefndir áætli heimanot- aða mjólk eftir heimilismannfjölda, til þess að hafa til hliðsjónar við framtölin. Þar sem þetta er gert, fer framtal heimanotuðu mjólkur- innar hvergi fjarri réttu lagi. En þessu verður ekki við komið, nema þar sem er mjólkursala allt árið og ekki unnið smjör úr mjólkinni til sölu. Sums staðar eru skýrslur nautgriparæktarfélaga til hliðsjónar við framtölin. En annars staðar eru framtölin aðeins áætlun framteljanda, og er þá helzt við það að styðjast, hvað talin er hæfileg kýrnyt. Samkvæint búnaðarskýrslum var meðalkýrnyt 1949 og 1950, sem hér segir (miðað við samanlagðan kúafjölda i ársbyrjun og árs- lok deilt með 2):

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.