Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1952, Page 88

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1952, Page 88
Hagstofa Islands gefur út eftirfarandi rit: I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um þau efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta líka gerzt áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint til Hagstofunnar, Arnarhvoli, Reykjavík. Sími 2802. — Áskrifendur að Hagskýrslunum fá þær sendar jafnóðum og þær koma út, en vegna óvissu um, hvaða hefti og hve mörg, koma út árlega, er ekki um að ræða fast áskriftargjald, heldur greiða áskrifendur jafnóðum hið ákveðna verð skýrslnanna, eða fleiri hefti i einu, eftir því sem henta þykir. II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um innflutning og útflutning, fiskafla, hag bankanna, framfærslu- visitölu og ýmislegt fleira, sem ekki þykir taka að hirta í sér- stöku hefti af Hagskýrslum. Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma um ýtarlegri skýrslur. Áskriftar- gjald er 15 krónur um árið.

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.