Fréttablaðið - 19.01.2015, Page 4
19. janúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
UMHVERFISMÁL Mælingar og vökt-
un Hafrannsóknastofnunar sýna
að lítið sem ekkert af síld gekk
þetta árið inn í Kolgrafafjörð til
vetursetu – og hætta á síldardauða
því ekki fyrir hendi. Tengiliða-
hópur ráðuneyta, stofnana og
heimamanna vegna síldardauðans
og frekari hættu á slíkum atburð-
um hefur lokið störfum.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðs-
stjóri nytjastofnasviðs Hafrann-
sóknastofnunar, segir að lítið sem
ekkert af síld hafi verið inni á
Kolgrafafirði í vetur, spurður um
aðstæður í firðinum í ljósi síldar-
dauðans mikla sem þar varð vetur-
inn 2012/2013 í tveimur aðskildum
tilvikum.
Þorsteinn segir að mælingar
stofnunarinnar í desember síðast-
liðnum hafi þá sýnt að um 10.000
tonn voru í firðinum, og súrefnis-
mettun hafi þá verið eins og best
verður á kosið, en Hafrannsókna-
stofnun setti upp sírita fyrir súr-
efnismettun í nóvember. Síldin
hefur hins vegar haldið sig í Kollu-
ál, sem er vestur af Snæfellsnesi,
og hættan á síldardauða úr sög-
unni á meðan svo helst, að sögn
Þorsteins.
Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri
í umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
inu, starfaði innan sérstaks tengi-
liðahóps um Kolgrafafjörð sem
var stofnaður eftir síldardauðann.
Hópurinn hefur verið lagður niður,
að sögn Huga, enda vettvangur
fyrir hugmyndir og skoðanaskipti
þegar þessi vá var yfirvofandi.
Hugi segir að þrátt fyrir gott
útlit hafi vöktun ekki verið aftur-
kölluð, og svo verði áfram til
öryggis. Hann nefnir að líkur séu
til að elsti árgangur sumargots-
síldarinnar hafi vanið komur sínar
inn í fjörðinn – og hann sé nú horf-
inn úr stofninum að stórum hluta
til.
Spurður um kostnað vegna
aðgerða stjórnvalda vegna atburð-
anna í Kolgrafafirði segir Hugi
það ekki hafa verið tekið saman
nákvæmlega svo hann viti. Þó er
ljóst að hann hleypur á nokkrum
tugum milljóna, en ríkisstjórnin
samþykkti fjárheimild upp að 35
milljónum í eitt skipti á ári eftir
síldardauðann. Hugi tekur undir
þá skoðun að þeir fjármunir sem
hafa verið settir í verkefnið nýtist
áfram, enda mikil vitneskja fallið
til um lífríkið sem nýtist í fram-
haldinu á ýmsan hátt.
„Það skapaðist á sínum tíma
hálfgert panikástand, enda hafði
þetta aldrei gerst áður í sögunni.
Það var líka full ástæða til að
hafa áhyggjur, enda var rætt
um aðgerðir sem hefðu kostað
hundruð milljóna eða milljarða,“
segir Hugi. svavar@frettabladid.is
Kolgrafafjörður laus við síld
Lítið sem ekkert af síld hefur gengið inn í Kolgrafafjörð í vetur. Tengiliðahópur vegna síldardauðans 2012 og
2013 hefur lokið störfum. Margt bendir til að síldin hafi breytt um vetursetustöðvar og vandinn sé úr sögunni.
SÍLDARTEPPI
Dauð síldin lagð-
ist yfir fjörur og
á botn fjarðarins.
Mikil mengun
hlaust af.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■ Niðurstöður mælinga Hafrannsóknastofnunar sýndu að um 22.000
tonn af síld drápust í Kolgrafafirði í febrúar 2013, til viðbótar þeim 30.000
tonnum sem drápust í firðinum í desember 2012.
■ Í desember síðastliðnum voru 10.000 tonn af síld í firðinum. Til
samanburðar voru á milli 200.000 til 300.000 tonn af síld innan brúar í
Kolgrafafirði þegar síldardauðinn varð.
■ Hafrannsóknastofnun benti snemma á þann möguleika að breytinga
mætti vænta þegar elstu árgangar síldarinnar þynntust út– enda síldin
dyntótt hvað val á vetursetustöðvum sínum varðar eins og margoft hefur
sýnt sig. Þetta mat var ein meginstoðin í ráðgjöf stofnunarinnar.
■ Lífríkið í firðinum er stóra spurningarmerkið næstu árin. Rannsókn
sýndi að dýrategundum í firðinum fækkaði úr 110 í 26 vegna mengunar
frá rotnandi síld.
52.000 tonn drápust veturinn 2012/2013
ÞORSTEINN
SIGURÐSSON
HUGI ÓLAFSSON
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
advania.is/vinnufelagar
Hafðu samband í síma 440 9010
eða í tölvupósti á sala@advania.is
* Tilboð gilda til 31.01.2015 eða á meðan birgðir endast.
á nýju ári
Nýjar vélar
JANÚAR
TILBOÐ*
75 stúlkur hlutu nafnið María
sem annað nafn á árinu 2013.
María var vinsælasta annað nafn
stúlkna á árinu en næst á eftir fylgdu
Rós, Lilja og Ósk.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
SVIPTINGAR Í dag gengur kröpp lægð yfir landið með talsverðum vindi og ofankomu,
einkum sunnan og vestan til. Það hlýnar í veðri en kólnar á ný á morgun. Á miðvikudag
verður hæg breytileg átt um allt land og víða bjart, síst suðaustan til.
2°
15
m/s
2°
18
m/s
4°
13
m/s
6°
16
m/s
8-13 m/s
SV-til en
annars 3-8
m/s.
Hæg
breytileg
átt um allt
land.
Gildistími korta er um hádegi
5°
19°
0°
5°
15°
0°
3°
2°
2°
20°
3°
13°
12°
16°
7°
2°
2°
3°
1°
13
m/s
1°
12
m/s
-1°
10
m/s
-1°
12
m/s
1°
8
m/s
3°
13
m/s
-3°
24
m/s
-1°
-1°
-3°
-2°
0°
-1°
1°
0°
-2°
-5°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN
FILIPPSEYJAR, AP Sex milljónir manna létu
úrhellisrigningu ekki stöðva sig þegar Frans
páfi mætti til að ávarpa mannfjöldann í
Maníla, höfuðborg Filippseyja.
Federico Lombardi, talsmaður Páfagarðs,
segir að yfirvöld á Filippseyjum hafi staðfest
þessa tölu og jafnframt að þarna hafi verið
met slegið. Þegar Jóhannes Páll páfi II. flutti
messu á sama stað árið 1995 hafi áheyrenda-
fjöldinn verið fimm milljónir, og þótti mikið.
Frans páfi helgaði heimsókn sína hinum
fátæku og féll boðskapur hans í góðan jarð-
veg hjá fólki á Filippseyjum þar sem fátækt
er víða mikil.
„Hann ann fátækum og fólki eins og
okkur,“ sagði Emmie Toreras, 38 ára kona
sem hafði brugðið plastpoka yfir sig til
að verjast rigningunni. Hún sagðist hafa
sofið í almenningsgarðinum þar sem páfi
ávarpaði mannfjöldann frá því á föstudag
til að tryggja að hún kæmist örugglega að.
„Það var blessun að við sáum hann. Þótt
við séum gegnblaut í rigningunni þá líður
okkur vel.“
Frans hefur verið á ferðinni um Asíu-
lönd í eina viku. Hann kom fyrst við á Srí
Lanka á mánudaginn var og lauk ferðinni á
Filipps eyjum í gær. - gb
Frans páfi dregur að sér metfjölda áheyrenda á ferð sinni um Asíulönd. Páfi talaði í Maníla í gær:
Sex milljónir hlýða á páfa í úrhellisrigningu
FRANS PÁFI Baðar sig í mannfjöldanum á Filippseyjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRAKKLAND, AP Ferðamönnum í
París hefur fækkað töluvert eftir
árásina á ritstjórn skopmynda-
blaðsins Charlie Hebdo fyrr í
mánuðinum.
„Það er búið að vera svo rólegt
eftir árásirnar. Það er varla
nokkur maður hér,“ segir Kamel
Bougrab, sem selur samlokur rétt
hjá Eiffelturninum. Hinar löngu
biðraðir sem venjulega myndast
við inngang Eiffelturnsins eru
varla svipur hjá sjón lengur og
mannþröngin er víðs fjarri.
Talsmaður Eiffelturnsins bend-
ir þó á að janúarmánuður sé yfir-
leitt rólegur. - gb
Árásin á Charlie Hebdo:
Ferðamönnum
fækkar í París
VIÐ EIFFELTURNINN Ferðamannafjöld-
inn er ekki svipur hjá sjón. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Maður sem var
sóttur meðvitundarlaus í hús á
Hverfis götu á föstudagskvöld lést
í gær. Hann komst ekki aftur til
meðvitundar. Maðurinn, sem var
frá Litháen, var skráður líffæra-
gjafi og kom flugvél til landsins og
sótti úr honum líffærin.
Lögreglan yfirheyrði fimm
manns, fjóra karla og eina konu,
í tengslum við málið. Fólkið hafði
áður verið yfirheyrt í tengslum
við hnífsstunguárás í nóvember
en hún átti sér stað í sama húsi og
maðurinn sem lést í gær missti
meðvitund. - jóe
Komst ekki til meðvitundar:
Lést eftir árás
á Hverfisgötu
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
C
-7
5
2
8
1
7
E
C
-7
3
E
C
1
7
E
C
-7
2
B
0
1
7
E
C
-7
1
7
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K