Fréttablaðið - 19.01.2015, Side 10
19. janúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
www.lyfja.is
Lægra verð
í Lyfju
www.lyfja.is
Nicorette
lyfjatyggigúmmí 20%
afsláttur
Gildir til
31. janúar 2015
Allar pakkningastærðir, 2 og 4 mg
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
ATVINNUMÁL „Það lítur út fyrir
að það gæti verið eitthvað að
gerast, ég vona það,“ segir Liana
Belinska, sem sagði sögu sína í
Fréttablaðinu í lok nóvember.
Liana er menntaður kven-
sjúkdómalæknir frá Úkraínu en
hefur starfað á leikskóla í átta
ár þar sem hún hefur ekki feng-
ið menntun sína metna hérlend-
is, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Liana hafði fengið vilyrði
fyrir því að komast inn í lækna-
deildina og taka síðustu þrjú
ár læknanámsins gegn því að
standast inntökupróf í deildina.
Liana vildi hins vegar ekki taka
inntökuprófið þar sem hún hefur
þegar lokið námi og í prófinu er
spurt um almenna þekkingu sem
getur reynst þeim sem hafa ekki
alist upp á Íslandi erfið.
Eftir að viðtalið við Liönu
birtist höfðu fjölmargir samband
við hana, bæði fólk sem er statt
í sömu aðstæðum og aðrir sem
vildu sýna henni stuðning. Á
meðal þeirra er þingmaður-
inn Jón Þór Ólafsson sem vildi
kynna sér málið til þess að
reyna að hjálpa Liönu og öðrum
í sambærilegri stöðu. Liana og
eiginmaður hennar hittu Jón
Þór sem fór svo í kjölfarið á fund
forseta Læknadeildar Háskóla
Íslands.
Það er læknadeildin sem fer
yfir umsóknir þeirra sem sækja
um að fá læknaleyfi hérlendis
eftir að landlæknir hefur sent
umsóknina til þeirra.
„Ég átti mjög uppljómandi
spjall með honum og þeim aðila
sem metur þetta. Í dag er það
þannig að sitja þarf inntökupróf
sem byggir líka á almennri þekk-
ingu. Þessi almenna þekking
miðar að þeim sem hafa alist upp
á Íslandi eða búið hér mjög lengi
þannig að það próf mismunar
fólki,“ segir Jón Þór.
Hann segist hafa fengið þær
upplýsingar að til stæði að breyta
fyrirkomulaginu en ástæðan
fyrir inntökuprófinu væri meðal
annars að koma í veg fyrir að
fólk sleppti því að taka inntöku-
prófið, byrjaði námið erlendis og
kæmi svo hingað og tæki restina
af náminu. „Það er skref í rétta
átt ef þessi almenni hluti verður
minnkaður en til þess að fara
alla leið með þetta þá væri best
að taka alveg út þá þætti sem
mismuna fólki í inntökuprófi á
forsendu almennrar þekkingar,“
segir Jón Þór.
Hann telur þetta vera mikið
réttindamál fyrir þá sem koma
hingað til lands og vildi komast
að því hvað það væri sem stæði
í vegi fyrir þeim sem fá mennt-
unina ekki metna.
Það kom einnig í ljós að hægt
er að taka annað próf sem metur
verklega kunnáttu lækna og
kemur til greina að Liana fái að
taka það próf. Hún mun fara á
fund forseta læknadeildar síðar í
þessum mánuði og er vongóð um
að hún fái að starfa sem læknir
hér einn daginn.
„Ég ætla allavega að reyna, nú
virðist eitthvað vera að gerast,“
segir Liana vongóð og spennt
fyrir framhaldinu.
viktoria@frettabladid.is
Vongóð um að fá að
starfa sem læknir
Liana Belinska fer á fund forseta Læknadeildar síðar í mánuðinum. Hún vonast
til þess að komast inn í læknadeildina án þess að taka inntökupróf og fá að starfa
sem læknir hérlendis eftir að hafa árangurslaust reynt að fá menntun sína metna.
VONGÓÐ Liana er bjartsýn á að eitthvað sé að þokast í hennar málum og mögulega
fái hún að starfa sem læknir hérlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það er skref í rétta átt ef þessi almenni
hluti verður minnkaður en til þess að fara
alla leið með þetta þá væri best að taka alveg
út þá þætti sem mismuna fólki í inntöku-
prófi á forsendu almennrar þekkingar.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata.
SJÁVARÚTVEGUR Þorskafli ís-
lenskra skipa var 88.000 tonnum
meiri í fyrra en árið 2008; var
151.000 tonn en jókst í 239.000
tonn á þessum sex árum.
Í samantekt Landssambands
smábátaeigenda (LS) kemur fram
að þorskafli síðustu þriggja ára er
vel yfir meðaltali síðustu 15 ára,
og afli síðasta árs sá mesti frá
aldamótum. Meðaltal tímabilsins
2000–2014 var 199.500 tonn.
Þegar önnur mikilvægasta
botnfisktegundin, ýsan, er skoðuð
er myndin önnur. Þar er aflinn
minnstur í upphafi og við lok tíma-
bilsins – rúmlega 30.000 tonn. Um
miðbik tímabilsins er ýsuaflinn
hins vegar yfir meðaltali sex ár
í röð. Mestur var hann 2007 rúm
109.000 tonn en minnstur árið 2000
rúm 33.000 tonn. Ýsuafli íslenskra
skipa var að meðaltali rúm 66.000
tonn á tímabilinu.
LS skoðaði þróun botnfisk-
aflans í heild síðastliðin 15 ár. Þar
var meðaltalið rúm 465.000 tonn.
Árið 2006 skilaði mestum afla, alls
tæpum 516.000 tonnum. Minnstur
var botnfiskafli íslenskra skipa
2001 um 420.000 tonn. Á aðeins
einu af undanförnum fimm árum
var aflinn yfir meðaltali tímabils-
ins 2000 til 2014. - shá
Þorskafli meiri síðustu þrjú ár en áður á öldinni:
Í fyrra var afli 88.000
tonnum meiri en 2008
Á SJÓ Útflutningsverðmæti þorskafurða árið 2013 voru núvirt 88,5 milljarðar króna.
FRÉTTABLAÐIÐ/JSE
HJÁLPARSTARF Skólaárið 2013-2014 fengu 78 ungmenni
í 13 sveitarfélögum og 18 framhaldsskólum styrk úr
Framtíðarsjóði Hjálparstarfs kirkjunnar til greiðslu
skólagjalda og fyrir bóka- og efniskostnaði. Meðalupp-
hæð hvers styrks var 36.564 krónur. Þá fengu tólf ung-
menni fartölvu að auki.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar og umsjónarmaður hjálparstarfs innan-
lands, segir fjöldann hafa verið svipaðan undanfarin
ár. Hún segir ungmennin þakklát fyrir stuðninginn.
„Sumir koma til okkar eftir útskrift, þakka fyrir sig
og spyrja hvað þeir geti gert og látið af hendi rakna. Þetta eru sólskins-
sögurnar okkar í vinnunni sem manni veitir nú ekki stundum af.“
Hjálparstarf kirkjunnar styður 16 til 20 ára ungmenni til stúdents-
prófs, sveinsprófs eða annars sem leiðir til starfsréttinda eða opnar leið
til háskólanáms. - ibs
Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar styrkir 78:
Ungmenni þakklát fyrir styrk
VILBORG
ODDSDÓTTIR
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
D
-6
2
2
8
1
7
E
D
-6
0
E
C
1
7
E
D
-5
F
B
0
1
7
E
D
-5
E
7
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K