Fréttablaðið - 19.01.2015, Qupperneq 38
Kassakerfi & sjóðsvélar MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 20154
Unnið að lausnum með ÖBÍ
HVERNIG
FESTA MÁ
PIN Í MINNI
Notendanöfn og lykilorð eru
órjúfanlegur hluti daglegs lífs í
rafrænum heimi. Við komumst
hvorki inn í símtækin né tölvuna
án aðgangsorðs, ekki inn í tölvu-
póstinn eða inn á Facebook án
aðgangs- og lykilorða. Þá er
ótalinn aðgangur á vefsvæði
sem tengjast til dæmis vinnu
eða skóla, að ekki sé minnst á
heimabankann.
Hvernig á að festa pinnið sér í
minni?
Það er auðveldara að muna
bókstafi og orð en talnarunu. Ef
þú ert að búa þér til leyninúmer
skaltu velja orð sem inniheldur
minnst fjóra bókstafi.
Orðið gæti einnig þýtt eitthvað
sérstak fyrir þig, minnt þig á
eitthvað skemmtilegt, eða verið
svæsið blótsyrði sem þú myndir
aldrei segja upphátt.
Skoðaðu svo hnappaborðið á
símanum þínum, þá sérðu að
bókstafir fylgja hverri tölu. Hvaða
tölur velurðu til að „hringja“ í
síðustu fjóra stafina í orðinu sem
þú valdir?
Voila! Þetta er nýja pin-númerið
þitt!
Þessari aðferð má auðveldlega
snúa við ef muna þarf pinn-
númer sem er fyrir fram ákveðið.
Skoðaðu hvaða bókstafi númerið
myndar á hnappaborðinu og
reyndu að búa til úr því orð.
Þá má einnig skrifa upp
tölurnar með bókstöfum og búa
til orðalista þar sem hvert orð
hefst á sama bókstaf og tölurnar
í leyninúmerinu. 2389, Tveir,
Þrír, Átta, Níu gæti orðið: Taktu
Þetta Áfram Núna. Kannski er
auðveldara að muna það.
wikihow.com
BÚÐARLEIKIR GÓÐIR
Fisher Price-búðarkassana
þekkja flestir en plastútgáfan kom
fyrst á markað um miðjan áttunda
áratuginn. Um tíma var þetta með
vinsælli leikföngum og var kassana
að finna á fjölmörgum heimilum
hér á landi. Gömlu kassarnir leynast
enn víða en þeir fást nú í uppfærðri
útgáfu með færibandi og kortales-
ara. Þeir eru hugsaðir fyrir börn á
aldrinum 2-6 ára.
Margir eru fylgjandi því að börn
fari í búðarleik enda getur það
hjálpað þeim að skilja hvernig
viðskipti ganga fyrir sig. Börnum
finnst líka spennandi að fara í hlut-
verkaleiki. Þau bregða sér yfirleitt
í hlutverk kaupmannsins og er
öðrum í fjölskyldunni gert að leika
viðskiptavini.
iPhone
viðgerðir
Frá og með deginum í dag verða kort-
hafar að staðfesta kaup í verslun-
um með pinni eða eiga á hættu að
ekki fáist heimild fyrir viðskiptum. Ef
kort er án örgjörva skrifar korthafi þó
áfram undir greiðslukvittun.
Talsverð umræða hefur spunnist
að undanförnu um hvernig breyting-
arnar snúa að fötluðum.
Á vefnum pinnid.is er tekið fram
að verkefnisstjórn Pinnið á minnið
hafi átt í góðum samskiptum við Ör-
yrkjabandalagið vegna þessara mála
og muni útgefendur greiðslukorta á
næstunni kynna sínar lausnir sem
henta þessum hópum korthafa sér-
staklega. Enn um sinn verði því leyfi-
legt að staðfesta greiðslur með undir-
skrift þó svo að örgjörvi kortsins sé
lesinn.
Á síðunni er bent á að örgjörva-
posar á Íslandi uppfylli kröfur hvað
varðar blinda og sjónskerta. Þannig
sé miðjuhnappurinn á talnaborðinu
(talan 5) með upphleyptu merki til
aðgreiningar og hnappar til að hafna
eða staðfesta séu einnig með upp-
hleyptum merkjum.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
D
-1
8
1
8
1
7
E
D
-1
6
D
C
1
7
E
D
-1
5
A
0
1
7
E
D
-1
4
6
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K