Fréttablaðið - 19.01.2015, Blaðsíða 44
19. janúar 2015 MÁNUDAGUR| MENNING | 20
Að lifa í jafnvægi
Holl fæða hjálpar okkur að skapa
stöðugleika í líkamanum og lífinu.
Ab vörurnar stuðla að lifandi jafnvægi.
Nú líka í1 lítraumbúðum
Herstöðin á Miðnesheiði var reist af Bandaríkjaher árið 1951 eftir að
Bandaríkjamenn og Íslendingar gerðu með sér varnarsamkomulag.
Þar voru um 5.700 manns þegar mest var. Á svæðinu voru verslanir,
skólar, sjúkrahús, kvikmyndahús, íþróttahús og skemmtistaðir auk íbúðar-
húsa og hernaðarmannvirkja. Svæðið var lokað og þar var allt með öðru
sniði en Íslendingar áttu að venjast.
Stöðinni var lokað árið 2006 og Bandaríkjamenn yfirgáfu landið eftir
55 ára hersetu.
➜ Um herstöðina
„Mér fannst hin eyðilega
herstöð í Keflavík frábært
umhverfi til að mynda, bæði
vegna sögulegs samhengis og
listrænna möguleika. Þetta
tvennt reyndi ég að sameina,“
segir Bragi Þór Jósefsson ljós-
myndari sem opnar sýningu í
Ljósmyndasafni Íslands í dag.
Einnig gefur Crymogea út bók í
tengslum við sýninguna.
Bragi hóf að mynda svæði
varnarliðsins í Keflavík
skömmu eftir að herinn hafði
yfirgefið stöðina árið 2006 og
hélt því áfram allt fram á árið
2008.
„Fyrst þegar ég fór þarna
suður eftir var ég með Tinna
Sveinssyni sem var ritstjóri
Húsa og híbýla þá. Síðan fór ég
margar ferðir, fékk leyfi hjá
Þróunarfélagi Keflavíkurflug-
vallar sem sá um svæðið og fékk
að skoða allt sem mig langaði,“
segir Bragi Þór sem kveðst geta
fullyrt að enginn eigi aðrar eins
myndir.
„Reyndar kom einn erlendur
ljósmyndari einu sinni eða
tvisvar en enginn á svona safn
og þetta er eitthvað sem aldrei
verður hægt að mynda aftur.“
gun@frettabladid.is
Sögulegt og listrænt
Yfi rgefi n herstöð í íslensku hrauni birtist mannlaus og framandi í myndum
Braga Þórs Jósefssonar sem sýndar eru í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
LJÓSMYNDARINN „Nokkrar af þessu myndum sýndi ég á Endurkasti, samsýningu
Félags íslenskra samtímaljósmyndara árið 2012, en þetta er heildardæmið,“ segir
Bragi Þór. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á HEIÐINNI Svæði varnarliðsins var rammlega girt af og enginn komst þangað
öðruvísi en um vaktað hlið– nema fuglinn fljúgandi. MYND/BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON
Í BÍÓINU Engar kvikmyndasýningar úr villta vestrinu meir, ekki einu sinni „bráðum“.
MYND/BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON
„Ég ætla að fjalla aðeins um
sköpunargáfuna. Hún kemur við
sögu í leitinni að hamingju því
hún býr í öllu fólki og kenning-
ar eru um að með því að rækta
hana upplifi það meiri ham-
ingju,“ segir Gunnar Hersveinn
um efni heimspekikaffisins í
Gerðubergi á miðvikudaginn.
Hann segir sköpunina ekki
endilega þurfa að tengjast list,
heldur geti hún nýst við hin
ólíkustu verkefni svo sem til-
raunir og þekkingarleit. „Með
sköpunargáfunni leitum við til
dæmis að visku í bókmenntum,
við lesum sögu og hún veitir
okkur innsýn í mannlegt eðli,“
segir hann og kveðst hafa mik-
inn áhuga á að varpa ljósi á sam-
band hamingju og sköpunar.
Ásamt Gunnari mun Hrefna
Guðmundsdóttir félagssál-
fræðingur leiða umræður um
hamingjuna á heimspekikaffinu
á miðvikudaginn og reyna að
finna þráðinn milli sköpunar og
hamingju með hjálp gesta.
Mikil aðsókn hefur verið á
heimspekikaffið í Gerðubergi
að undanförnu. Dagskráin þar
hefst klukkan 20. - gun
Sköpunarkraft urinn
og hamingjan
Gunnar Hersveinn rithöfundur og Hrefna Guð-
mundsdóttir félagssálfræðingur leiða umræður um
sköpun og hamingju í Gerðubergi 21. janúar.
RITHÖFUND-
URINN „Ég
hef mikinn
áhuga á að
varpa ljósi
á samband
hamingju og
sköpunar,“
segir Gunnar
Hersveinn.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
BI
RG
IS
SO
N
MENNING
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
C
-7
5
2
8
1
7
E
C
-7
3
E
C
1
7
E
C
-7
2
B
0
1
7
E
C
-7
1
7
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K