Hagskýrslur um dómsmál - 01.01.1973, Blaðsíða 14

Hagskýrslur um dómsmál - 01.01.1973, Blaðsíða 14
12 Dómsmálaskýrslur 1966—68 þess að stefndi sótti ekki þing. 5% mála fyrir reglulegu dómþingi og aukadómþingi (í Reykjavík bæjarþingi) voru þannig vaxin, að ekki var gerð krafa um, að stefndi væri dæmdur til að greiða einhverja tiltekna fjárhæð. Tæpur fjórðungur mála var með dómkröfu undir 5 þúsund krónum, 45% með dómkröfu yfir 5 þúsund en undir 25 þúsund krónum, en rúml. fjórðungur þar fyrir ofan, þar af 0,6% með hálfa milljón eða meira. Af inálum fyrir sjó- og verzlunardómi o. fl. voru tæp 9% án dómkröfu, en að öðru leyti voru þau mál með hlutfallslega hærri dómkröfur en þau fyrr töldu. T. d. voru 15% sjó- og verzlunardómsmála með kröfu upp á 100 þúsund krónur eða meira, en aðeins 6% hinna fyrr töldu mála. Fjárhæð dómkrafna var við úrvinnslu skýrslna á Hagstofu ekki lögð saman, en með því að ganga út frá ákveðnum miðtölum í hverjum dómkröfuflokki í töflu 13 má reikna út heildar- upphæðina, án þess að verulegu eigi að skeika frá réttu. Niðurstöður eru þær, að á öllu landinu hafi verið gerðar dómkröfur í málum fyrir reglulegu dómþingi og aukadómþingi (í Reykjavík bæjarþingi) að upphæð samtals 840 milljónir króna eða að meðaltali 48 þús. kr. á hvert mál, sem gerð var dómkrafa í. í Reykjavík cinni nemur heildarupphæðin 705 millj. kr. eða tæpl. 49 þús. kr. á mál. Fyrir sjó- og verzlunardómi nemur þetta á öllu landinu um 117 milljónum króna eða nálega 131 þús. kr. á mál. í Reykjavík einni alls 87 millj. kr. eða 152 þús. kr. á mál. Mál þannig vaxin, að krafa er tilgreiud í erlendum gjaldeyri, eru innifalin í töflu 13, og cr kröfuupphæð umreiknuð í íslenzkar krónur í samræmi við gengi þess árs, er málið er afgreitt. Tala og samanlögð kröfuupphæð þessara mála: Á öllu landinu: 1966 45 mál, 6 788 þús. kr., 1967 183 mál, 7 266 þús. kr., 1968 259 mál, 12 313 þús. kr. í Reykjavík aðeins: 1966 36 mál, 5 653 þús. kr., 1967 151 mál, 5 836 þús. kr., 1968 244 mál, 11 062 þús. kr. Alls er hér um að ræða 487 mál á landinu yfir tímabilið. 301 þeirra var víxilmál, 179 skuldamál, 1 tékkamál, 1 mál varðandi opinber gjöld og 5 mál ótilgreindrar tegundar. í 330 málanna var krafa í banda- rískum dollurum, í 68 þeirra í vestur-þýzkum mörkum, í 38 þeirra í dönskum krón- um, í 23 þeirra í enskum pmidum, en í 28 málanna var krafa í öðrum gjaldeyri. í töflu 14 greinir barnsfaðernismál. Þau eru einkaréttarlegs eðhs og því höfð með einkamálum í Dómsmálaskýrslum. Engu að síður eru þau rekin að hætti opinberra mála og koma í Reykjavík fyrir Sakadóm en ekki borgardómara. Barns- faðernismálum fer fækkandi á tímabilinu, einkum utan Reykjavíkur. Af alls 96 máluin takast sættir í 36 málum, en 20 eru hafin, þar af 1 með dómi, 1 sýknudómur er kveðinn upp, en faðerni dæmt í 14 tilvikum. í 24 málum eru úrslit látin velta á fyllingareiði. Tveir þriðju málanna eru afgreiddir á skemmri tíma en 6 mánuðum. Þá er og upplýst um málskostnað og rannsókn á blóðflokkum. 4 mál til vefeng- ingar á faðerni voru afgreidd á tímabilinu, þar af 3 í Reykjavík. í þrem málanna var faðerni hrundið, en dæmt faðerni í einu. Þessi mál eru meðtalin í töflunni. — Rétt er að taka það fram, að litið var svo á, að 1 væri dærndur meðlagsskyldur, þegar ekki var tilgreint á skýrslu, að 2 eða fleiri væru dæmdir meðlagsskyldir, en það var aðeins í einu máli. Svokölluð „vl.-mál“ vegna faðernis barna, sem kennd eru varnarliðsmönnuin, eru meðtalin í barnsfaðernismálum, enda þótt þau séu nokkuð sérstæð að cfni og meðferð. í töflu 15 greinir fógetamál og ýmis sérstök mál, sem rísa kunna við uppboðs- eða skiptameðferð o. fl. Um 2/3 allra mála í töflu 15 voru í Reykjavík. Meiri hluti málanna var úrskurðaður að kröfu sókuaraðila, en allmörg voru hafin, auk annarra afgreiðslna. í töflu 16 er yfirlit yfir starfsemi sáttanefnda eftir árum, lögsagnarumdæmum og meðferð máls. Samkvæmt skýrslum frá héraðsdómaraembættum voru einhver
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hagskýrslur um dómsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um dómsmál
https://timarit.is/publication/1129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.