Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Síða 2
Byggingarvöruverslunin Ísleifur Jónsson ehf. hef-
ur þurft að selja ákveðnar tegundir klósetta og annars varnings
úr sýningarsal vegna þess að vörurnar hafa tæmst af lagernum.
Mörg fyrirtæki landsins eiga í erfiðleikum í viðskiptum við út-
lönd vegna gjaldeyrisskorts. Einnig munu kröfur erlendra birgja
um að íslensk fyrirtæki þurfi að staðgreiða fyrir vörur hægja á
innflutningi í einhvern tíma.
föstudagur 14. nóvember 20082 Fréttir
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Stjórnarliðar gera nú tilraun
til þess að framlengja líf rík-
isstjórnarinnar undir mikl-
um þrýstingi frá kjósendum
og höktandi atvinnulífi. Á
fundum starfshóps flokkanna
verður mjög þrýst á stefnubreytingu
Sjálfstæðisflokksins gagnvart Evr-
ópusambandinu og upptöku nýrrar
myntar. Leiðir til þess að leysa nú-
verandi bankastjórn Seðlabankans
frá störfum verða einnig ræddar.
Fyrsti leynifundurinn átti sér stað
á miðvikudag, hann sátu meðal
annarra Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar. Fundurinn var haldinn með vitund og vilja Geirs H. Haarde,
forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins.
endurskoða samstarfið
SMÁBARN BARIÐ
TIL BANA
bækur dæmir...
Eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur
Eftir Ármann Jakobsson
Eftir John Grisham
Eftir Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku
Eftir Guðberg Bergsson
Eftir Óskar Árna Óskarsson
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins
fimmtudagur 13. nóvember 2008 dagblaðið vísir 212. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
SvIkIÐ BARN
fæR NýjA
TöLvu
Stjórnarflokkarnir með
leynifundi um framhaldið
Samfylking krefst eins faglegaráðins seðlabankastjóra
Davíð Oddsson yrði látinn víkja við breytingarnar
Nauðung rekur Sjálfstæðis-flokkinn í átt að ESB
úrslitakostir samfylkingar:
RÁÐhERRA REISIR LúxuSSuMARhúS
fRéTTIR
davið ut
og inn
i esb
guÐ
BLESSI
ykkuR
Séra gunnar Björnsson
mætti fyrir dómara á Selfossi í gær
Svaraði ásökunum um
kynferðisbrot gegn tveim stúlkum
fóLk
Margir vildu
hjálpa Róberti
fRéTTIR
SkApARAR, BöRN
Og ALkAR
Dómar um jólabækurnar
fRéTTIR
SkÁLD
SkALLAÐI
SuNDMANN
Átök í sundi
ALgjöRLEgA
úT í höTT
fRéTTIR
Skammir forsetans
Stjórnendur Glitnis reyna nú
að ná völdum í Árvakri, út-
gáfufélagi Morgunblaðsins.
Þeir vilja að hluta af skuld-
um fyrirtækisins við bank-
ann verði breytt í hlutabréf.
Þetta er nokkuð sem stjórnendur og
eigendur Árvakurs vilja hins vegar
koma í veg fyrir að gerist og stefna að
því að halda fyrirtækinu áfram í sinni
eigu án aðkomu bankans.
Glitnir er aðalviðskiptabanki Árvak-
urs. Staða hans gagnvart fyrirtækinu
er því nokkuð sterk telji hann að Ár-
vakur geti ekki staðið við skuldbind-
ingar sínar. Eftir því sem DV kemst
næst er þetta í annað sinn á skömm-
um tíma sem Glitnir gerir sig líklegan til að yfirtaka Morgunblaðið.
Áður en samningar náðust um það snemma í október að Fréttablað-
ið rynni inn í Árvakur mun Glitnir hafa verið kominn á fremsta hlunn
með að yfirtaka Árvakur vegna skulda.
Glitnir ásælist moGGann
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ár
sinsmiðvikuda
gur 12. nóvember 2008 dagblaðið vís
ir 211. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
Skatturinn
Skoðar riSnu
HanneSar
Yfirtaka á Árvakri var áformuð í október
Samruni við Fréttablaðið breytti stöðunni
nú er Glitnir aftur kominn af stað
Björgólfur Guðmundsson og
aðrir eigendur berjast á móti
Glitnir vill Gjaldfella milljarða skuldir Árvakurs
:
RiKiÐ ViLL
EiGNAST
MOGGANN
Barn
Svikið
aF Bt
Safnaði fyrir tölvu í heilt ár
en er svikinn um peninginn
Fékk gallaða tölvu og beið
í fimm mánuði eftir nýrri
neYtendur
Fréttir
tapaði HúSinu
veGna iceSave
Fólk
Fréttir
HunGur-
verkFall
Spiluðu
upp í YFir-
drÁttinn
Fólk
oG líkamSÁrÁSir
Fréttir
krónan er
dauðadæmd
nýjasti þingmaðurinn
Játaði
ást sína
í 100
þúsund
eintökum
2
Fólk sem átti pening á Ice-
save-reikningum í Hollandi
kom til Íslands í vikunni og
krafðist þess að fá að vita
hvað yrði um peningana þess.
„Mér leið eins og ég hefði fengið
hjartaáfall,“ lýsir hin hollenska Grietje
Bruinsma því þegar hún áttaði sig á
því að hún hafði tapað ævisparnað-
inum, eða rúmlega tuttugu og fimm
milljónum króna, vegna Icesave. Auk
Grietje er Yoost De Groot í hópnum
en hann tapaði tvö hundruð þúsund evrum á Icesave, eða 34 millj-
ónum króna, en hann var sviptur framtíðarheimili sínu, hann setti
söluverðmæti heimilis síns inn á Icesave-reikning til að ávaxta fyrir
önnur húsnæðiskaup en stendur nú uppi slyppur og snauður.
hollendinGarnir
fljúGandi
3
hitt málið
Þrátt fyrir ítrekuð loforð Geirs H.
Haarde forsætisráðherra um að
gjaldeyrisviðskipti muni komast í
samt lag á næstu dögum eru vand-
ræðin ennþá til staðar. Lágt gengi
krónunnar setur einnig strik í reikn-
inginn hjá fjölmörgum fyrirtækjum
landsins. Atvinnurekendur um allt
land finna fyrir því að viðskipta-
vild erlendra birgja hefur brostið og
þurfa nú æ fleiri að staðgreiða fyrir
vörur sínar. Vöruúrval í verslunum
fer dvínandi með hverjum degin-
um. Verkstæði, byggingarvöruversl-
anir, matvöruverslanir, bílasölur og
verktakafyrirtæki fara mörg hver
ekki varhluta af þessu. Byggingar-
vöruverslun Ísleifs Jónssonar er ein
þeirra en þeir hafa þurft að grípa til
þess ráðs að selja baðkör og klósett
úr sýningarsal.
Erfiðir mánuðir
Grétar Leifsson, framkvæmdastjóri
byggingarvöruverslunarinnar Ísleifs
Jónssonar ehf., er einn þeirra sem
ekki hafa farið varhluta af ástand-
inu. „Með þessu áframhaldi tæmast
búðirnar eða götin verða það mikil
að það fer að hamla framkvæmd-
um. Það eina sem dugar núna er að
fyrirtækið geti keypt evrur á skyn-
samlegu gengi og þá verður hægt að
fylla upp í götin strax,“ segir Grétar.
Hann segir að næstu mánuðir verði
erfiðir fyrir byggingarvöruverslanir
enda séu fyrirtækin alltaf að tapa á
gengismuninum.
Hann tekur einnig fram að vegna
færri framkvæmda minnki markað-
urinn og þar af leiðandi aukist sam-
keppnin og haldi þannig verðinu
niðri. Vöruskortur í byggingariðnaði
getur haft þær afleiðingar að verk
stöðvist. „Þetta fer versnandi dag
frá degi. Ég er alveg klár á því að all-
ar byggingarvöruverslanir á landinu
eigi við sama vanda að stríða,“ segir
Grétar.
Skrúfa niður af veggjum
„Það er alveg ljóst, það eru komn-
ar kröfur nú þegar um að við skrúf-
um niður af veggjunum, úr innrétt-
ingum eða einhverju,“ segir Grétar
og bætir því við að sumar tegundir
klósetta og aðrar vörur séu uppseld-
ar í versluninni. Brugðið hefur verið
á það ráð að selja klósett og baðkör
úr sýningarsal þar sem engar aðr-
ar vörur sömu tegundar séu eftir á
lager.
Hann segir að Ísland hafi misst
viðskiptavildina hjá birgjum er-
lendis sem þýði það að flest fyrir-
tæki þurfi nú að byrja á því að greiða
fyrir vöruna í stað þess að hafa notið
lánstrausts áður og geta greitt fyrir
vörurnar eftir á. Grétar spáir því að
töluverður vöruskortur geti orðið á
næstunni vegna þess að fyrirtæki
eru að færa sig úr því að hafa getað
greitt vörurnar eftir á og yfir í stað-
greiðslu. Það taki sinn tíma.
Jólaseríurnar komnar í hús
Steinn Logi Björnsson, forstjóri
Húsasmiðjunnar og Blómavals, seg-
ir fyrirtækið hafa lent í hnökrum
með allar greiðslur á tímabili en nú
sé ástandið að verða betra. „Síðustu
vikurnar hefur þetta fúnkerað nokk-
uð eðlilega og við höfum ekki lent í
vandræðum með að flytja inn,“ seg-
ir Steinn en bætir því við að sumir
birgjanna hafi brugðist misvel við
því ástandi sem ríkti hér á ákveðnu
tímabili. Hann segir þó að jólaserí-
urnar séu komnar í hús og að fyr-
irtækið muni geta selt þær á sama
verði og í fyrra. Einhver hækkun
verði á jólatrjám í ár en búið sé að
tryggja að þau komi til landsins.
Hann segist ekki ennþá hafa orð-
ið var við skort á byggingarvörum
en tekur fram að hægt hafi verulega
á framkvæmdum undanfarið og því
geti það verið ástæðan. Húsasmiðj-
an eigi ennþá nægar vörur á lager.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir nóg til
af vörum í verslunum Bónuss. „Hér
eru jólin svona 80 til 90 prósent ís-
lensk þannig að við erum í nokkuð
góðum málum. Við erum búnir að
fá í hús nánast allt sem við þurfum
fyrir jólin,“ segir hann.
„Það er alveg ljóst, það
eru komnar kröfur nú
þegar um að við skrúf-
um niður af veggjun-
um, úr innréttingum
eða einhverju.“
Jón bJarki magnúSSon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
KLÓSETTIN
AÐ VERÐA
UPPSELD
Uppseld klósett starfsmenn byggingar-
vöruverslunarinnar Ísleifs Jónssonar ehf. hafa
brugðið á það ráð að selja vörur úr
sýningarsal vegna skorts á vörum að utan.
BAUKA-JÓN
Athyglisverð saga
íslensks höfðingja
á 17. öld.
Hann var dæmdur
frá embætti
sýslumanns en varð
síðar biskup á
Hólum án þess að
hafa hlotið
prestsvígslu.
Jón Þ. Þór sagnfræðingur hefur
kannað sögu nafna síns og segir
hana á skemmtilegan hátt.
miðvikudagur 12. nóvember 20088
Fréttir
„Mér leið eins og ég hefði fengið
hjartáfall,“ lýsir hollenska konan
Grietje Bruinsma því þegar hún
áttaði sig á því að hún hafði tap-
að ævisparnaðinum, eða rúm-
lega tuttugu og fimm milljónum
króna, vegna Icesave.
Grietje kom hingað til lands
í gær ásamt þremur öðrum hol-
lenskum sparifjáreigendum en
þau ætla að freista þess að fá upp-
lýsingar hjá íslenskum stjórn-
völdum um það hvort þau fái fé
sitt til baka. Með þeim í för eru
tvö sjónvarpsteymi, þar á með-
al hollenska ríkissjónvarpið sem
hyggst skrásetja ferð fjórmenn-
inganna. Auk Grietje er Yoost De
Groot í hópnum en hann tapaði
tvö hundruð þúsund evrum á Ice-
save, eða 34 milljónum króna, en
hann var sviptur framtíðarheimil-
inu sínu.
Ævisparnaðurinn horfinn
Grietje er venjuleg kona frá Hol-
landi sem hefur unnið hjá lyfja-
fyrirtæki í fjölda ára. Hún segist
hafa lagt fyrir alla sína ævi, auk
þess sem hún hagnaðist á því að
selja íbúð sem hún átti. Eftir þrjá-
tíu ár var upphæðin komin upp í
150 þúsund evrur, eða rúmar 25
milljónir króna. Hún segir sjálf að
hún hafi aldrei lifað um efni fram,
hún hafi verið fyrirhyggjusöm í
sparnaði. Það var síðan 24. sept-
ember sem hún lagði fé sitt inn á
reikning Icesave hjá Landsbank-
anum. Aðeins tveimur vikum síð-
ar var þrjátíu ára strit horfið í hít
bankakreppunnar hér á landi.
Ætlaði að borga menntun
„Ég átti peninga og ætlaði meðal
annars að borga menntun barn-
anna minna með honum,“ segir
Grietje sem er komin á sextugs-
aldurinn og kemur nú til Íslands
til að fá skýr svör hjá yfirvöldum.
Aðspurð hvort hún sé reið vegna
tapsins svarar hún því til að hún
vilji það. Hún áréttar þó að hún
viti ekki einu sinni út í hvern hún
eigi að vera reið.
„Maður veit ekki hvað er að
gerast, hvað hefur gerst eða hvað
fólk getur gert yfirhöfuð,“ segir
Grietje sem hefur fá svör fengið í
eigin heimalandi. Enn færri hér á
landi. Aðspurð hvort hún geri sér
grein fyrir því að íslenska þjóðin
verði hneppt í skuldaklafa verði
skuldir Icesave greiddar, svarar
hún að það sé skilningur á því.
„Þetta er lítið land og ég held
að við skiljum þá byrði sem þessu
fylgir,“ segir Grietje.
Sviptur heimilinu
Með Grietje í för er Yoost De Groot
sem seldi húsið sitt í haust og lagði
tvö hundruð þúsund evrur inn á
Icesave-reikninginn eða um 34
milljónir króna. Hann segist að-
eins vilja svör.
„Nú þegar við erum komin til
Íslands fáum við kannski athygli
ráðamanna,“ segir Yoost sem er
31 árs starfsmaður símafyrirtækis.
Hann ætlaði að ávaxta peningana
sína inni á reikningum Icesave en
hann er að byggja hús í Amster-
dam. Nú er það allt komið í upp-
nám, Yoost hefur verið sviptur
framtíðarheimili sínu. Hann segir
það að koma til Íslands sé örvænt-
ingarfullt hróp sparifjáreiganda
sem vilji fá svör.
Sendinefnd Hollendinganna er
stjórnað af Hollendingnum Ger-
ard Van Vliet sem DV ræddi við í
gær. Sjálf töpuðu hann og kona
hans, sem kom einnig til landsins,
fjögur hundruð þúsund evrum,
eða 68 milljónum króna. Þau ætla
að freista þess að ræða við stjórn-
málamenn og forsvarsmenn skila-
nefndar Landsbankans.
valur grettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
grietje Bruinsma
Yoost De groot
TAPAÐI HÚSINU Á ICESAVE
„Ég verð að viðurkenna að þetta átti
sér óheppilegan aðdraganda og mað-
ur hefði kannski kosið að koma inn
á öðrum forsendum. Mér líst samt
bara vel á þetta og það eru krefjandi
tímar fram undan,“ segir Helga Sig-
rún Harðardóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokksins.
Helga Sigrún er tiltölulega óvænt
komin á þing eftir að Bjarni Harð-
arson ákvað að segja af sér þing-
mennsku í gær. Bjarni var heldur
fljótur á sér í fyrrakvöld þegar hann
ætlaði að biðja aðstoðarmann sinn
um að senda bréf á fjölmiðla undir
dulnefni. Ekki fór það betur en svo
að hann sendi bréfið beinustu leið
til allra fjölmiðla landsins, undir eig-
in nafni. Þar kom einnig fram mikil
gagnrýni á flokkssystur Bjarna, Val-
gerði Sverrisdóttur.
Helga Sigrún hefur undanfarin
þrjú ár verið skrifstofustjóri þing-
flokksins og þekkir hún því vinnu-
brögðin í þinginu vel. Þá segist Helga
vera sannfærð um að hugmynda-
fræði flokksins eigi vel við um þess-
ar mundir.
Komandi tímar verða krefjandi
fyrir þingmenn landsins í ljósi efna-
hagskreppunar og segir Helga að
hún sé reiðubúin að láta til sín taka
á þinginu. „Ég vil að Alþingi verði
meiri þátttakandi í því sem er að ger-
ast og þarf að gera. Þingið hefur verið
á hliðarlínunni og ríkisstjórnin hefur
algjörlega haldið því frá. Okkur veitir
ekki af því að nýta allt okkar fólk til að
takast á við verkefnin. Fólkið í land-
inu á það skilið.“
Aðild að Evrópusambandinu hef-
ur verið mikið hitamál innan Fram-
sóknarflokksins og ekki allir á eitt
sáttir um stefnu flokksins í Evrópu-
málum. Aðspurð hver skoðun henn-
ar sé á Evrópusambandinu segir
Helga: „Ég ætla að gefa mér svigrúm
í nokkra daga áður en ég svara svona
þungavigtarspurningum. Ég ætla að-
eins að fá að safna mér saman því
þetta bar mjög fljótt að. Ég verð til-
búin í það eftir nokkra daga.“
Helga hefur þó skýra skoðun á
málefnum krónunnar og segir hún
að hún sé í raun og veru búin að vera
sem gjaldmiðill. „Ég held að það sé
augljóst. Það þurfa margar forsend-
ur að breytast til að hægt sé að halda
áfram að nota krónuna. Það er því
miður ekkert í farvatninu sem gef-
ur til kynna að þær breytingar séu
í nánd. Það eru mörg verkefni sem
bíða okkar og ég vonast til þess að
þingið verði stærri þátttakandi í allri
þessari atburðarás. Við höfum 63
fulltrúa þjóðarinnar sem eru tilbúnir
að bretta upp ermar og takast á við
verkefnin en þeim hefur verið haldið
mjög til hliðar.“
Helga Sigrún Harðardóttir Bjarna Harðarsonarkrónan er dauðadæmd
Óvænt á þingi Helga vildi ekki svara spurningu blaðamanns um afstöðu hennar til evrópumála.
mYnD SigtrYggur ari
grietje Bruinsma og Yoost De groot Hollensku sparifjáreigendurnir vilja skýr svör varðandi spariféð sem þau töpuðu.
mYnD SigtrYggur ari
gerard van vliet Tapaði 68 milljónum króna sem áttu að fara í hjálparstarf í keníu.
mYnD SigtrYggur ari
„Nú þegar við erum
komin til Íslands fáum
við kannski athygli
ráðamanna.“