Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Qupperneq 4
Tilboð á
barnamyndatökum
Góð mynd er falleg jólagjöf!
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
„Okkur langaði það bara,“ segir Est-
er Petra Gunnarsdóttir, tilvonandi
brúður, aðspurð af hverju hún og
unnusti hennar, Jakob Daníel Magn-
ússon, hafi ákveðið að gifta sig. Est-
er er sautján ára og stundar nám við
Menntaskólann í Hamrahlíð og Jak-
ob er tvítugur og rekur verkstæði í
Keflavík sem heitir JM bílaþjónust-
an. Þau eru því í hópi yngstu brúð-
hjóna um langt árabil.
Skötuhjúin hafa verið saman í tut-
tugu mánuði og ákváðu með þriggja
mánaða fyrirvara að ganga upp að
altarinu.
Bónorð í Ameríku
„Við vorum í verslunarmiðstöð í
Bandaríkjunum með fjölskyldu okkar
þegar hann bað mín fyrir framan fullt
af fólki. Við vorum eitthvað búin að tala
um brúðkaup en ég bjóst ekki alveg við
þessu akkúrat þarna í mollinu en þetta
„Fjölskyldan mín er
ótrúlega sátt við þetta,
enda vita þau að hann
er svo góður strákur.“
Boði logAson
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
SAUTJÁN ÁRA
Í HJÓNABAND
var æðislegt,“ segir Ester. Hún kynntist
Jakobi í gegnum litlu systur hans sem
er æskuvinkona hennar. „Hún er alveg
ótrúlega spennt og ánægð, bað strax
um að fá að vera brúðarmey. Hún bjó
í Bandaríkjunum um tíma og vissi ekki
að það væri svoleiðis á Íslandi, en hún
var mjög sátt við þetta.“
Ester segir að vinir hennar hafi
brugðist misjafnlega við tíðindun-
um. „Flestir voru mjög sáttir en það
var frekar misjafnt, sumir skildu þetta
rosalega vel þá sérstaklega bestu vinir
okkar. Fjölskyldan mín er ótrúlega sátt
við þetta, enda vita þau að hann er svo
góður strákur.“
Fékk undanþágu
Á heimasíðu sem skötuhjúin halda
úti í tengslum við brúðkaupið er hægt
að sjá gjafalista og einnig er hægt að
skrifa í gestabók og senda brúðhjón-
unum kveðju. Athöfnin fer fram í Há-
teigskirkju í Reykjavík á laugardag-
inni. Að sögn Esterar er yfir hundrað
manns boðið í brúðkaupið sem verð-
ur glæsilegt. Til að fá að ganga í hjóna-
band á Íslandi þarf að hafa náð átján
ára aldri en hægt er að fá undanþágu
frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu ef
þeim aldri hefur ekki verið náð. Ester
fékk leyfi 26. september síðastliðinn og
greiddi fyrir það 1.350 krónur.
Fjórtán leyfi gefin
Jóhanna Gunnarsdóttir, lögfræð-
ingur hjá dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, segir fjórtán undanþágur hafa
verið veittar á síðustu tíu árum. „Það er
ekki mjög algengt að beðið sé um und-
anþágu frá því almenna hjónavígslu-
skilyrði að hjónaefni verði að vera 18
ára við hjúskaparstofnun. Á síðustu tíu
árum hafa samtals verið veitt fjórtán
slík aldursleyfi. Aðeins í einu tilviki af
þessum fjórtan kom beiðni um aldurs-
leyfi frá pilti, í hinum þrettán var um
stúlkur að ræða.“
Jóhanna segir að ekki séu gerð-
ar sérstakar kröfur um form og efni
beiðna og hvert mál sé skoðað sérstak-
lega. „Lögum samkvæmt verður að
afla afstöðu forsjárforeldra en ekki er
berum orðum áskilið að forsjárforeldri
þurfi að samþykkja beiðni. Á hinn
bóginn er mjög ólíklegt að ráðuneytið
myndi veita aldursleyfi gegn vilja for-
sjármanna,“ segir Jóhanna.
Sandkorn
n Koma bresku herþotnanna
hingað til lands hefur verið
umdeild á Alþingi og meðal
annars leggst Össur Skarphéð-
insson, iðnaðarráðherra Sam-
fylkingarinnar, gegn því að þær
komi. Það
rímar ekki
við orð
Ingibjarg-
ar Sólrúnar
Gísladótt-
ur utanrík-
isráðherra
sem segir
Bretum það
í sjálfsvald sett hvort þeir komi
eða ekki. Aftur á móti heyrist
sú saga að Birgir Ármannsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, hafi kastað því fram í hálf-
kæringi að ef Bretar kæmu með
þoturnar ætti ríkið að þjóðnýta
þær hið snarasta. Sennilega
hefur Birgi ekki verið alvara
með þetta, enda kallaði slíkt
á bókstaflega innrás breska
hersins.
n Heimasíða stjórnleysingja á
Íslandi getur verið athyglisverð
aflestrar en um daginn birtu
þeir pistil um ægivald lögregl-
unnar á Íslandi. Stjórnleys-
ingjar líta á lögreglumenn sem
óvini sína. Grein þeirra fékk
heilmikil viðbrögð en þar mátti
meðal annars lesa athugasemd
undir nafni Heimis H. Karls-
sonar útvarpsmanns. Þar benti
hann reiðum stjórnleysingjum
á að kreppan ynni að öllum
líkindum byltingarstarf gegn
lögreglunni. Þar stóð skrifað að
lögreglumönnum bæri að upp-
fylla kröfur um að þeir megi
ekki lenda í fjármálaóreiðu.
Sennilega verði ástandið slíkt
fljótlega að fáir lögreglumenn
uppfylli þær kröfur að sögn
Heimis.
n Eins og sagt var frá fyrir
stuttu er fyrrverandi Kastljós-
liðinn Kristján Kristjánsson
orðinn upp-
lýsingafull-
trúi Geirs
H. Haarde
forsætis-
ráðherra.
Athygli vek-
ur að áður
var hann
upplýsinga-
fulltrúi Latabæjar til skamms
tíma, en þar á undan gegndi
hann sömu stöðu hjá FL Goup.
Aðeins nokkrum dögum eftir
að Kristján hóf störf hjá Geir
fór skattrannsóknarstjóri inn
í herbúðir Stoða, áður FL
Group, og gerði húsleit. Sam-
særissmiðir hafa sett spurn-
ingarmerki við ráðninguna og
tímasetningu skattstjóra. En
eins og greint hefur verið frá
hafði rannsóknin staðið yfir í
nokkurn tíma.
Ester Petra gunnarsdóttir og Jakob Daníel Magn-
ússon ætla að ganga upp að altarinu á laugardag.
Ester Petra hefur ekki náð átján ára aldri
sem er lágmarksaldur til að ganga í hjóna-
band og þurfti því að fá undanþágu frá
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
Síðustu tíu árin hafa einungis
fjórtán einstaklingar sótt um
að fá að ganga í hjónaband
fyrir átján ára aldur.
föstudagur 14. nóvember 20084 Fréttir
gifta sig ester er sautján ára og Jakob
tuttugu ára.
Ástfangin skötuhjúin eru yfir
sig ástfangin og ætla að ganga
upp að altarinu á laugardaginn.
Skáldið Skrifar
Kyndeyfilyf í kreppu
kRiSTJÁN HReiNSSoN SkÁlD SkRifAR. Ég er sannfærður um að réttlát sé reiði þeirra sem krefjast þess að lýðræðið virki einsog okkur var lofað.
U m daginn heyrði ég gáfnaljósið Geir Haarde segja það að nú væri kominn tími til að snúa við taflinu. Geir þessi er að tala við okkur um skák. Kæra
þjóð, við erum að tala um karluglu sem tapaði
skák á móti átta ára stelpu.
Við erum að tala um snilling sem kallar heiðarlega
mótmælendur skríl.
Ég er ekki reiður. Ég er einn af þeim sem tala ávallt
um réttlæti. Ég trúi á mátt manna og ég trúi á að
vísindi og tækni geti gert okkur að betra fólki.
Ég veit í hjarta mínu að tími peningaveldis, auð-
hyggju, pólitísks rétttrúnaðar og ofurvalds trúfé-
laga er brátt á enda. Það sem okkar bíður er rétt-
læti. Og réttlætinu munum við hlúa að – óháð
duttlungum dollaraveldis.
Í nokkur ár hef ég alltaf annað veifið ritað um rétt-
lætisbyltinguna og ég er viss um að byltingin sú
arna verði að veruleika um leið og við sýnum því
skilning að líf okkar þarf fyrst og fremst að grund-
vallast á nægjusemi og þörf sem ekki hefur neitt
með græðgi og óhóf að gera.
Auðvitað svíður þeim sárast reiðin sem ekki fá nein
svör frá þeim sem eiga að svara. En þegar alþingi
virkar ekki og þegar yfirleitt allar stofnanir ríkisins
eru bundnar við nákvæmlega sama klíkuklafann
og þær voru bundnar fyrir kreppu, er ekki von á
góðu. Það er nefnilega svo, kæru Íslendingar, að
fjöldinn allur af óhæfu fólki hefur farið í lyftu fyrir
flokksgæðinga og náð á efstu hæðir fyrir vikið.
Ennþá er Palli litli einn í heiminum – innmúraður
í útvarpshúsi og leikur sér ennþá á jeppanum sem
við borgum undir hans eðalfína rass og ennþá er
í sama útvarpshúsi lélegasti fréttaskýringaþátt-
ur veraldar þar sem álitsgjafar eru oftar en ekki
dillibossar spillingarinnar eða strengjabrúður
vanhæfra valdhafa – jafnvel siðblindir sjálfstæðis-
menn og falskir framsóknarmenn.
Ég er sannfærður um að réttlát sé reiði þeirra sem
krefjast þess að lýðræðið virki einsog okkur var
lofað. Reiðin er réttlát vegna þess að hugmynda-
deyfð valdhafa er algjör. Menn þegja þótt svörin
liggi fyrir og þó að hægt sé að gera helling í okkar
góða samfélagi. Við þurfum ekki að leggjast á bæn
og sníkja lán um allan heim. Við eigum þess kost
að rækta grænmeti og ávexti í gróðurhúsum, við
getum rafvætt bílaflotann og nýsköpun og sprota-
fyrirtæki eru alvöru lausnir ef okkur langar að
leyfa skynseminni að vera með. Nýtt fólk þarf að
taka við, því þeir sem núna stjórna hafa látið kynd-
eyfilyf spillingarinnar eyða allri reisn. Og þá er nú
vísan aldeilis viðeigandi:
Af B-listanum Bjarni datt
með blessað leynimakkið
fyrir það að segja satt
og svíkja skítapakkið.