Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Blaðsíða 8
föstudagur 14. nóvember 20088 Helgarblað
Þrátt fyrir að stóreigna- og auð-
mönnum á Íslandi fari fækkandi
þurfa þeir eftir sem áður enn að
ferðast milli staða. Hvort heldur
sem horft er um öxl, til peninga sem
hefði mátt spara í gegnum góðær-
ið, eða til ófyrirséðra ferðalaga við-
skiptajöfra er ljóst að spara má um-
talsverðar upphæðir.
Dýr dropinn
Ef menn eiga einkaþotu á borð við
Gulfstream, sem sérfræðingar segja
að sé nokkurs konar Rolls Royce
einkaþotnanna, má gera ráð fyrir
því að kostnaður við að fylla slíka vél
af 4.247 lítrum af Jet-A1-eldsneyti,
sé um 650 þúsund krónur. Vélarn-
ar sjálfar kosta allt frá einum millj-
arði króna og upp úr. Samkvæmt
heimildum DV kostaði Gulfstream-
einkaþota Bakkavararbræðranna,
Lýðs og Ágústs Guðmundssona,
ríflega fjóra milljarða króna. Hver
klukkustund í flugi slíkra véla, að
eldsneytinu undanskildu, kost-
ar menn á bilinu 75 til 100 þúsund
krónur. Sem dæmi má nefna að fyr-
ir þann pening sem kostar að fylla
hefðbundna einkaþotu af eldsneyti
mætti fá ríflega fjóra farmiða á Saga
Class frá Íslandi til New York.
Ódýrari ferðamáti mögulegur
Þægindin við einkaþoturnar eru að
menn komast fljótt og án allra vand-
ræða milli staða í hröðum heimi
viðskiptanna þar sem hver klukku-
stund skiptir máli. Dagsferðir og
viðskiptahelgarferðir eru partur af
leiknum. Tvær af viðskiptahöfuð-
borgum heimsins eru New York og
London þar sem auðmenn eiga oft
á tíðum mikilla hagsmuna að gæta.
Hægt er að ferðast á almennu far-
rými með Iceland Express til Lond-
on fyrir rúmlega 50 þúsund krónur
ef farið er á föstudegi og komið heim
á sunnudegi. Finnist auðmönnum
þeir vera að taka of mikið niður fyr-
ir sig með almennu farrými má allt-
af splæsa í Saga Class hjá Icelandair
þar sem sambærileg ferð fæst á rúm-
ar 163 þúsund krónur.
Tvær milljónir til New York
Það kostar þotuliðið um 750.000
krónur að fljúga fram og til baka
frá Reykjavík til New York og þar er
kostnaður við áhöfn og eldsneytis-
áfyllingu undanskilinn. Ef gert er ráð
fyrir því, eins og venjan er, að einka-
þotan sé fyllt af eldsneyti fyrir hvora
leið leggjast 1,3 milljónir til viðbótar
við það verð. Samkvæmt fyrirliggj-
andi upplýsingum kostar flugferðin
með einkaþotunni til New York því
um 2.050.000 krónur. Við þá upphæð
leggst síðan kostnaður við áhöfn.
Fyrir sama pening gæti sá hinn sami
keypt um 13 flugmiða á Saga Class
Icelandair. Sambærileg þriggja tíma
flugferð til London myndi á sömu for-
sendum kosta auðmenn 1.750.000
krónur. Fyrir þann pening mætti fá
35 flugmiða til London með Iceland
Express.
Auðmenn á almennu farrými
Heimildir DV herma að margir af
stórtækustu og valinkunnustu auð-
mönnum þjóðarinnar hafi undan-
farið sést ferðast á Saga Class, menn
sem hafi einkaþotur til afnota. Þotun-
um hefur verið lagt. Samdráttur hefur
verið í einkaþotuþjónustu hér á landi
og heimildir DV herma að auðmenn
keppist nú við að selja þotur sínar.
Auðmenn geta sparað sér milljónir króna með því að leggja einkaþotum sínum í hallærinu. Sést hefur til
þekktra auðmanna á almennu farrými undanfarið auk þess sem heimildir DV herma að þeir reyni nú marg-
ir að losa sig við einkaþotur sínar.
„ Samkvæmt fyrir-
liggjandi upplýsing-
um kostar flugferðin
með einkaþotunni
til New York því um
2.050.000 krónur.
Fyrir sama pening
gæti sá hinn sami
keypt um 13 flugmiða
á Saga Class Icelandair.“
Sparnaðarráð
auðmannSinS
Sigurður MikAel jÓNSSoN
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
NeW York
reYkjAVÍk
loNDoN
reYkjAVÍk/NeW York
= 4.208 kM
reYkjAVÍk/loNDoN
= 1.883 kM
einkaþotan dýr í rekstri Hér sést
mynd af gulfstream-einkaþotu sem
heimildir dv herma að sé í eigu
bakkavararbræðranna Lýðs og Ágústs
guðmundssona. gripurinn kostaði
ríflega fjóra milljarða.
Kostnaður með flugfélögum:
KefLavíK - new YorK: frÁ föstudegi tiL sunnudags.
fram og til baka með sköttum.
icelandair almennt farrými: 83.180
saga Class icelandair: 160.280
KefLavíK - London: frÁ föstudegi tiL sunnudags.
fram og til baka með sköttum.
iceland express almennt farrými: 50.520 kr.
saga Class icelandair: 163.278 kr.
Kostnaður með einKaþotum:
Kaup Á einKaþotu: 1 miLLjarður Króna og upp úr.
eldsneytisáfylling: 650.000 kr.
reYKjavíK - London.
fram og til baka:
*Kostnaður við áhöfn og eldsneyti undanskilinn.
5.450.000 kr.*
Krónur sem mÁ spara með að fLjúga Á aLmennu farrými:
ísland - new York: 1.966.820
ísland - London: 1.699.480
Auðmenn gætu sparað milljónir með því að fækka
einkaþotuferðum og fljúga með almenningi gætu
helstu auðmenn þjóðarinnar sparað margar milljónir.