Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Side 10
föstudagur 14. nóvember 200810 Fréttir
Arkitektar eru fremstir í framkvæmdakeðjunni og því eru þeir fyrsta stéttin sem verður fyrir áföllum í
kreppunni. Aðalsteinn Snorrason telur framtíðarhorfur arkitekta geigvænlegar og spáir hruni stéttarinnar.
Gylfi Guðjónsson arkitekt bjóst við dýfu en raunin er öllu alvarlegri.
„HEIMSMET Í ATVINNULEYSI“
„Arkitektar eru fyrsta stéttin sem
brennur. Ástæðan fyrir því er að hún
er fremst í framkvæmdakeðjunni. Ef
skrúfað er fyrir alla innkomu okk-
ar í örfáa mánuði brenna fyrirtæk-
in einfaldlega upp,“ segir Aðalsteinn
Snorrason, formaður Félags sjálf-
stætt starfandi arkitekta. Hann hef-
ur miklar áhyggjur af starfsmönnum
stéttarinnar. „Það er búið að segja
upp nánast öllum launþegum og af-
ganginum verður væntanlega sagt
upp um næstu mánaðamót ef ekkert
verður að gert,“ segir hann.
Allt of mikið af íbúðum
Árni Mathiesen fjármálaráðherra
beindi nýlega þeim tilmælum til rík-
is og sveitarfélaga að fara ekki í nein-
ar nýframkvæmdir í ljósi versnandi
efnahagsástands. „Svona tilmæli
þýða að allir koma til okkar með
sömu skilaboðin sama daginn. Allir
eru að draga saman seglin,“ segir Að-
alsteinn.
Gylfi Guðjónsson hefur rekið arki-
tektaþjónustu í tæp þrjátíu ár. Hann
segir framtíðarhorfurnar slæmar fyr-
ir arkitekta. „Það er ekki hægt að vera
bjartsýnn.“
Teiknistofa arkitekta Gylfi Guð-
jónsson og félagar ehf. er í smærri
kantinum, með átta starfsmenn á
tveimur stöðum á landinu, í Reykja-
vík og á Akureyri. „Við sögðum upp
fólki áður en bankakreppan skall á.
Þá litum við svo á að þetta yrði hefð-
bundin dýfa en raunin er mun al-
varlegri,“ segir Gylfi. Hann segir það
hafa verið ljóst fyrir bankakreppuna
að samdráttur yrði í byggingariðn-
aði. „Það eru í raun einfaldar skýr-
ingar á því. Við erum búin að byggja
allt of mikið af öllu. Allt of mikið af
íbúðum, verslunarhúsnæði og skrif-
stofubyggingum. Síðan kemur þessi
skelfing til viðbótar,“ segir Gylfi um
efnahagshrunið.
Níutíu prósenta atvinnuleysi
Aðalsteinn sér fram á gríðarlegt at-
vinnuleysi á næstunni. „Ef þetta
heldur svona áfram verður hér miklu
meira en tíu prósenta atvinnuleysi
á Íslandi. Við vitum að atvinnuleys-
ið var um átján prósent í Finnlandi
þegar verst lét. Við setjum örugglega
heimsmet í þessu eins og öllu öðru.“
Atvinnuhorfur innan stéttar arkitekta
eru þó enn verri að mati Aðalsteins.
„Upp úr áramótum gæti ég ímyndað
mér að það yrði um níutíu prósent,“
segir hann.
Aðalsteinn hefur verið í sam-
bandi við Vinnumálstofnun en segir
að þær tölur sem þar birtast séu ekki
að fullu marktækar þar sem ekki er
tilkynningaskylt til stofnunarinnar
ef færri en tíu starfsmönnum er sagt
upp á vinnustað. Sömuleiðis þurfi
ekki að tilkynna það ef vinnustaður
með undir tuttugu starfsmenn seg-
ir þeim öllum upp. Því þurfi að bíða
eftir veltutölum frá ríkisskattstjóra
til að fá raunverulegar tölur þó til-
kynningar Vinnumálastofnunar gefi
vissulega hugmynd um ástandið.
Ráðalaus ríkisstjórn
Aðalsteinn vill ekki benda á neinn
einn sökudólg. „En það er ljóst að
eins og staðan er núna getur enginn
gripið til ráða nema ríkisstjórnin. Og
ef hún er ráðalaus eru allir ráðalaus-
ir,“ segir hann.
Gylfi Guðjónsson bendir á að
vegna smæðar stofunnar hans sé
hún mögulega betur í stakk búin
til að takast á við ástandið en þær
stærri sem jafnvel þurfa að greiða
fjölda starfsmanna lögbundinn upp-
sagnarfrest án þess að fá inn ný verk-
efni. „En engu að síður er þetta mjög
þungt fyrir okkur líka,“ segir hann.
Gylfi segir ljóst að ef inn komi
verkefni á næstunni verði þau af öðr-
um toga en áður. Þau verði smærri
og frekar sniðin að viðhaldi eigna og
endurnýjun eldra húsnæðis. Einnig
sér hann hugsanlega fyrir sér upp-
byggingu í miðborginni enda búið
að skipuleggja mikið þar. Frekari
útþensla borgarinnar virðist út úr
myndinni á næstunni.
ERlA HlyNSdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Við erum búin að
byggja allt of mikið af
öllu.“
Hrun stéttarinnar
aðalsteinn snorrason,
formaður fssa, býst við allt að
níutíu prósenta atvinnuleysi
meðal arkitekta á komandi ári.
MyNd: KARl PEtERSSoN