Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Qupperneq 27
föstudagur 14. nóvember 2008 27Fókus
Hvað er að
GERAST?
föstudagur
n Motion Boys á Prikinu
gleðisveitin motion
boys hefur lengi átt
sér þann draum
heitastan að spila á
litlu sveittu „giggi“
eins og þeir sjálfir
orða það og mun sá
draumur rætast í kvöld.
strákarnir ætla að slá upp tónleikum á
Prikinu sem hefjast klukkan 22.00 og er
frítt inn. mættu með diskóskóna með þér
því það verður svo sannarlega dansað.
n Ghozt og Brunheim á Tunglinu
PLötusnúðar flex music ætla að halda uppi
dúndrandi dansstuði á tunglinu í kvöld.
Þeir dJ ghozt og brunheim kunna svo
sannarlega að þeyta skífum og fá fólk til að
dilla bossanum. Herlegheitin hefjast upp
úr miðnætti og fer miðasala fram við
innganginn.
n Hjaltalín og Sprengjuhöllin
á Eskifirði
Hljómsveitirnar Hjaltalín og sprengjuhöllin
verða á ferð um austfirðina um helgina. Í
kvöld spila sveitirnar á Kirkju- og
menningarmiðstöð fjarðabyggðar á
eskifirði. tónleikarnir hefjast klukkan átta
og er miðaverð sextán hundruð krónur.
andrea gylfadóttir mun fylla upp í skarð
sigríðar thorlacius söngkonu Hjaltalín sem
því miður er vant við látin um helgina.
n Tónleikar á Dillon
Klukkan átta hefst stuðið á dillon með
Pub-Quizi og klukkutíma seinna hefjast
heljarinnar pönk-rokktónleikar. fram koma
Klaus, fistfokkers, the Pen, swords of
Chaos og morðingjarnir. að tónleikunum
loknum tekur plötusnúður dillon við og
spilar alvöru rokktónlist fram á morgun.
n Dalton á Hressó
Hressu bófabræðurnir í hljómsveitinni
dalton ætla að halda uppi stemningunni á
Hressó í kvöld. dalton byrjar kvöldið með
alvöru dansiballi og að því loknu tekur
plötusnúðurinn dJ andri við og spilar
danstónlist fram á rauðanótt.
laugardagur
n Sometime á Prikinu
Hin stórskemmtilega sveit sometime
verður með tónleika á Prikinu í kvöld. Það
má búast við troðfullu húsi enda kostar
ekkert inn á tónleikana. fjörið byrjar
klukkan 22 en á miðnætti tekur hin
sykursæti dj danni deluxxx við og
skemmtir dansóðum Íslendingum langt
fram eftir.
n Árshátíð Techno.is á Nasa
Liðsmenn techno.is bjóða Íslendingum í
tryllt partí í kvöld á nasa, en það er enginn
annar en goðsögnin marco v frá Hollandi
sem tryllir lýðinn. nasa verður breytt í
heljarinnar teknóhöll í tilefni kvöldsins og
verður hljóð- og ljósakerfið á staðnum
bætt fyrir þetta eina kvöld. Húsið opnað á
miðnætti. nánari upplýsingar á techno.is
n Áfram með lífið-tónleikar
í Laugardalshöll
Íslenskir tónlistarmenn
tóku sig saman í
vikunni og ætla að
efna til tónlistarveislu
í Höllinni. tilgangur-
inn með tónleikun-
um er að þjappa
þjóðinni saman á
erfiðum tímum. fram koma dr. spock, ný
dönsk, bubbi, baggalútur, Ham, Lay Low,
ragnheiður gröndal, sálin, buff,
stuðmenn, Poetrix og fm belfast.
tónleikarnir hefjast klukkan 18. aðgangur
er ókeypis.
n Slúðurprinsessan í Nýlendu-
vöruverzlun Hemma og Valda
dröfn ösp snorradóttir, betur þekkt sem
slúðurbloggarinn dd unit, mun hressa,
bæta og kæta gesti nýlenduvöruverzlun
Hemma og valda í kvöld. flóran af tónlist
verður gífurleg og mega gestir búast við
að heyra lög á borð við Hit me baby One
more time með britney spears og Hold
the Line með toto. skyldumæting fyrir
ofurhressa. fjörið hefst klukkan 21.
TöLVuLEikuriNN
DEaD SPacE
Án efa
einn af
leikjum
ársins.
m
æ
li
r
m
eð
...
VESTrið EiNa í
BorGarLEikHúSiNu
virkilega
gott leikrit
og sýningin
á heildina
litið ágæt.
SkaPariNN EfTir GuðrúNu
EVu MíNErVuDóTTur
guðrún eva
er einn af
okkar bestu
rithöfund-
um.
VoNarSTræTi EfTir
ÁrMaNN JakoBSSoN
einkennilega
tímabær
skáldsaga.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
rEScuE
DawN
ef það truflar
þig ekki að
missa af nokkrum víetnam-
myndum á ævi þinni má þessi
alveg vera í þeim hópi.
núna og samstarfið gekk frábærlega.
Ég þekkti hljóðfæraleikarana vel frá
gamalli tíð og bæði þeir og söngvar-
arnir voru fagmannlegir og skemmti-
legir, svo það var góður fílíngur í upp-
tökunum,“ segir Tómas sem stofnaði
útgáfufyrirtækið Blánótt fyrir nokkr-
um árum og gefur sjálfur út plöturnar
sínar en Smekkleysa sér um dreifingu.
„Ég geri þetta ekki til að skemmta
mér. Þetta er náttúrlega heilmikil vinna
og ekki endilega það sem ég myndi
gera mætti ég ráða sjálfur. Stundum
er samt einfaldlega þægilegra að gera
hlutina sjálfur og þurfa þá ekki að bera
það undir neinn. Svo gerist það stund-
um að útgáfufyrirtækin fara á hausinn
og þá eru titlarnir áframseldir í annað
fyrirtæki og þeir fara á flakk og það er
enginn sem hirðir um þetta. Ég myndi
mjög gjarna vera laus við að gefa út
sjálfur en af tvennu illu vil ég frekar
taka smátíma í að gera þetta og geta
þá gert þetta eftir mínu höfði og átt út-
gáfuréttindin.“
Mugison söng upp í
leigubílakostnað
Það er skondin saga hvernig það
kom til að Tómas fékk Mugison til
að syngja inn á Trúnó en þeir koll-
egar voru staddir saman í Frakklandi
þegar sú hugmynd kom upp.
„Ég hef hlustað töluvert á Mugi-
son síðastliðin ár og hafði hugsað
með mér að það gæti verið gaman
að plata hann í eitthvert samstarf. Í
janúar á þessu ári vorum við á flakki
saman í Frakklandi, vorum báðir á
leið á MIDEM-tónlistarkaupstefnuna
í Cannes. Við tókum saman leigu-
bíl frá Nice til Cannes, ásamt Mugga
pabba hans og Samma í Jagúar. Þeir
feðgar voru ekki með eins mikið af
evrum og ég, svo ég lagði út fyrir
bílnum og Mugison gantaðist með
það að hann myndi bara syngja eitt-
hvað fyrir mig í staðinn. Þegar hann
ætlaði svo að borga mér daginn eft-
ir harðneitaði ég að taka við pening-
unum, það væri búið að díla þetta
og ég myndi senda honum músíkina
innan skamms!“ segir Tómas einkar
sáttur við þennan góða skiptidíl.
„Söngur Mugisons á Trúnódiskn-
um er það besta sem kom út úr MID-
EM-kaupstefnunni í ár!“
Með marga strengi
í sinni hörpu
Ragnheiður Gröndal syngur á móti
Mugison á Trúnó og segir Tómas að
hann hafi fljótlega heyrt hana fyrir sér
syngja inn á plötuna.
„Við höfum unnið saman af og til
síðustu árin. Þegar ég var að semja
þessa tónlist var það fljótlega sem ég
heyrði fyrir mér þennan möguleika
að fá hana til að syngja. Flest lögin eru
mjög lágmælt. Þetta er ekki öskrandi
stuð nema síður sé og hentar í raun-
inni best söngvara sem syngur af litlu
afli, sem getur hvíslað og sungið lágt
en hefur samt sterka nærveru. Það
eru allt saman kostir sem Ragnheið-
ur hefur. Þetta er nú svo sem ekki allt
af sama taginu og sum lögin eru kraft-
meiri, til að mynda Klof vega menn og
þar tekur hún á því líkt og Janis Joplin
hefði vaknað að nýju til lífsins,“ segir
hann og bætir við: „Ragnheiður hefur
því marga strengi í sinni hörpu.“
Gangandi bassinn heillaði
Tómas byrjaði að spila á kontrabassa
fyrir þrjátíu árum en áður hafði hann
spilað á harmonikku, gítar og píanó.
Síðastliðin þrjátíu ár hefur hann að
mestum parti haldið sig við kontra-
bassann.
„Ég hreifst mikið af dönskum
kontrabassaleikara, sem kom hingað
árið 1978, að nafni Niels-Henning Ør-
sted Pedersen. Mér fannst þetta hljóð-
færi líta svo vel út á sviði að maður
hlyti bara að vera dálítið flottur með
þetta,“ segir hann á léttu nótunum en
það var þó ekki tekið út með sældinni
að læra á kontrabassann.
„Vandkvæðin voru þau að þetta eru
fjórir þykkir strengir og það þarf mik-
ið afl til að þrýsta þeim niður og toga
í þá. En ég var búinn að ákveða þetta
svo ég lét allt puðið og erfiðið yfir mig
ganga.“
En það var nú reyndar hlutverk
kontrabassans í djassmúsíkinni sem
heillaði hann.
„Gangandi bassi, þetta dúmm
dúmm dúmm dúmm, heillaði mig al-
gjörlega og mér fannst að þetta hlyti að
vera það skemmtilegasta sem nokkur
maður gæti gert. Þó að lúkkið á svið-
inu hafi nú ekki skemmt fyrir.“
Árið 1985 kom út fyrsta platan þar
sem Tómas átti sjálfur flest lögin en
hún hét Þessi ófétis djass. Síðan þá
hefur Tómas verið iðinn við að semja
tónlist og hefur sent frá sér ófáar plöt-
urnar.
„Nú er það bæði að plöturnar eru
orðnar dálítið margar og ég að verða
gamall og gleyminn, svo ég verð eig-
inlega að fara að reikna. En ég held að
þetta sé fimmtánda platan þar sem ég
á allt eða mestallt efnið,“ segir hann.
fílaði Gus Gus helvíti vel
Aðspurður hvernig tónlist hann sjálfur
hlusti á segir Tómas það að sjálfsögðu
breytilegt en þessa dagana hlusti hann
mikið á kúbanska tónlist.
„Ég er með námskeið núna hjá
Endurmenntunarstofnun Háskólans
um kúbanska tónlist og þess vegna
er hausinn fullur af mambó, bóleró
og chachacha. Á síðasta ári hlustaði
ég hins vegar mikið á teknótónlist, og
þá ekki síst Gus Gus, í kringum útgáf-
una á RommTommTechno. President
Bongo í Gus Gus stýrði því verkefni
og stakk að mér alls konar teknói. Ég
fílaði Gus Gus reyndar helvíti vel.“
Tómas sækir innblástur sinn alls
staðar frá en segir tónlistina helst
verða til þegar hann taki sér bassann í
hönd og byrji að plokka út í bláinn.
„Fyrst og fremst kemur það þegar
maður sest niður við píanóið eða tek-
ur bassann í fangið og spilar eitthvað.
Ég hef stundum gert það mér til gam-
ans að taka upp þegar maður hefur
verið að láta hugann reika með putt-
ana á spýtunni og þá hef ég fengið þar
ágætis hluti sem ég hef síðan unnið
áfram.“
Grúfir sig yfir kontrabassann
Miðvikudaginn 26. nóvember verða
haldnir útgáfutónleikar í Iðnó til að
fagna útgáfu Trúnó en þar verða bæði
Ragnheiður Gröndal og Mugison
ásamt Tómasi og hljómsveitinni.
„Þetta gæti nú orðið eina tækifærið
til að sjá þessa hljómsveit alla saman-
komna á sviði því flestir meðlimanna
eru að sinna sínum sólóferli út um
hvippinn og hvappinn og því erfitt að
ná þessu fólki saman.“
Aðspurður að lokum hvað sé fram
undan svarar Tómas: „Upp úr áramót-
unum býst ég bara við því að fara að
grúfa mig meira yfir kontrabassann
og láta hugann reika. Þegar snjóa tek-
ur að leysa og vorið fer að nálgast gæti
svo vel hugsast að nokkur okkar sem
spiluðum saman inn á Trúnó færum
á flakk um landið en það kemur bara
allt saman í ljós.“
krista@dv.is
trú aðarbréf
Hefur afhent mörg
„öll þessi kvæði hafa í sér einhvern trúnaðar-
hljóm sem höfðaði til mín“ tómas r. einarsson
sendi frá sér plötuna trúnó á dögunum sem
inniheldur tólf ljóð ýmissa skálda við lög tómasar.
MYND kriSTiNN MaGNúSSoN
Leikritið 21 manns saknað verð-
ur frumsýnt í Saltfisksetri Íslands
í Grindavík á morgun, laugardag.
Um er að ræða einleik um epíska
ævi séra Odds V. Gíslasonar sem
í tilkynningu er sagður eitt mesta
braskmenni sinnar samtíðar. Það
er félagsskapurinn GRAL, Grind-
víska atvinnuleikhúsið, sem stend-
ur á bak við sýninguna og er þetta
fyrsta uppfærsla leikhópsins. Víð-
ir Guðmundsson fer með hlutverk
séra Odds en leikstjóri er leikarinn
góðkunni Bergur Ingólfsson. Höf-
undar verksins eru Víðir, Bergur og
Guðmundur Brynjólfsson.
Á seinni hluta nítjándu aldar,
þegar stór hluti þjóðarinnar bjó
enn í torfkofum og sjómenn réru
á opnum bátum, var prestur suð-
ur í Staðarsókn í Grindavík sem
ekki gat sætt sig við að Íslending-
ar stæðu utan við þá iðnbyltingu
sem hafði átt sér stað í Evrópu. Það
var séra Oddur V. Gíslason. Í 21
manns saknað segir frá þeim fram-
úrstefnulegu verkefnum sem hann
tók sér fyrir hendur: lýsisbræðslu
á Höfnum, brennisteinsnámu-
vinnslu í Krýsuvík, kolanámuvinnu
við Hreðavatn, baráttunni við fá-
tæktina og bakkus. Þá stóð hann
fyrir einu frægasta brúðarráni á Ís-
landi.
Miðasala fer fram í Saltfisksetr-
inu í síma 420 1190 og á midi.is.
Uppselt er á frumsýninguna en sýnt
er reglulega fram í desember.
Grindvíska atvinnuleikhúsið frumsýnir 21 manns saknað um helgina:
Prestur, braskari og brúðarræningi
Sjávarháski viðar guðmunds-
son leikur prestinn litríka Odd v.
gíslason í 21 manns saknað.
HaNG oN MEð MoTioN BoYS
fyrsta flokks
poppplata.
vantar samt
örlítið extra til
að fara alla
leið.