Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Qupperneq 28
Helgarblað DVföstudagur 14. NÓVEMBEr 200828
HIN HLIÐIN
Hermir eftir lóu
Nafn og aldur?
„Auður Jónsdóttir , 35 ára.“
Atvinna?
„Rithöfundur.“
Hjúskaparstaða?
„Gift.“
Fjöldi barna?
„Ekkert.“
Áttu gæludýr?
„Nei, ekki núna en hef átt þó
nokkur í gegnum tíðina.“
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„Tónleika með Kristjönu
Stefánsdóttur og Urði á Ró-
senberg. Það voru djasstón-
leikar og rosa flottir.“
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Já, ég missti bílprófið þegar
ég var 18 ára.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín
og af hverju?
„Þessa dagana er það rauð
regnkápa og stígvél sem
mamma gaf mér í Barce-
lona. Mamma gefur mér
alltaf stígvél þegar ég skrifa
bók svo ég á ein ný núna.“
Hefur þú farið í megrun?
„Já, nokkrum sinnum alveg
en það hefur yfirleitt ekki
gengið vel.“
Hefur þú tekið þátt í skipu-
lögðum mótmælum?
„Já, oft af ýmsum ástæðum
og í nokkrum löndum.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Stundum og stundum
ekki.“
Hvaða lag skammast þú þín
mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Það eru þó nokkur lög frá
eitís tímabilinu.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Ég eiginlega hlakka til að
sjá hvernig rætist úr þjóð-
málunum og heimsmál-
unum. Hlakka líka til að
sjá Obama setja sitt mark á
heiminn.“
Afrek vikunnar?
„Það er kannski bara það hafa
vaskað upp nokkuð reglulega.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já, oft og við ýmis notaleg tæki-
færi af alls konar konum.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Já, ég spila á píanó.“
Styður þú ríkisstjórnina?
„Þetta er stór og mikil spurn-
ing sem ég get eiginlega ekki
svarað.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Bara heilsa minna nánustu.“
Hvaða fræga einstakling myndir
þú helst vilja hitta og af hverju?
„Ég hefði ekki á móti því að hitta
Woody Allen og fara með hon-
um á djasstónleika. Ég er samt
ekki viss hvort það væri gaman
að hanga með honum lengi því
hann er svo paranojaður.“
Ertu með tattú?
„Nei, ekki enn sem komið er.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, nokkrum sinnum. Fyrsta
ljóðið samdi ég þegar hundur-
inn minn dó þegar ég var lítil.“
Hverjum líkist þú mest?
„Ég hugsa að ég sé lík báðum
ömmum mínum.“
Ertu með einhverja leynda hæfi-
leika?
„Já, ég get hermt eftir lóu og
spóa.“
Af hverju stafar mannkyninu
mest hætta?
„Eiginlega af sjálfu sér og mann-
legum breyskleika.“
Á að leyfa önnur vímuefni en
áfengi?
„Ég held að það séu tvær hlið-
ar á því. Kannski vandinn yrði
meira uppi á yfirborðinu ef þau
yrðu leyfð því það er svo erfitt að
fást við þau neðanjarðar. Svo er
þetta spurning um aðferðafræði
og hvert ráðið gegn þessu sé.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Þeir eru nokkrir, Mosfellsdalur,
Ísafjörður og Barcelona.“
Auður Jónsdóttir er rithöfundur sem nýverið gAf út bókinA vetrArsól.
bókin hefur fengið góð viðbrögð. Auður er líkA AnnAr tveggJA rit-
stJórA bókArinnAr íslAm með Afslætti sem vAkti þó nokkuð umtAl þegAr
hún kom út í JAnúAr.
dv mynd sigtryggur
Kristján Jóhannsson, tenór
Hulda Björk Garðarsdóttir, sópran
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
styrktartónleikar
í þágu ADHD samtakanna
Sunnudagur
16. nóv. kl.16
í Kristskirkju
við Landakot
Forsala aðgöngumiða eru í Pennanum Eymundsson í
Austurstræti og Kringlunni, skrifstofu ADHD samtak-
anna Háaleitisbraut 13 og skrifst. kaþólsku kirkjunnar
Hávallagötu 14-16. Miðasala einnig við innganginn. ADHD samtökin Caritas á Íslandi
Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
J.S. Bach, Dvorak, Händel, C. Franck, W.A. Mozart,
Otto Ohlsson og Sigvalda Kaldalóns.
Miðaverð 5.000 kr.
Caritas
tónleikar
2008
2 fyrir 1
www.gardabraedur.is | gardabraedur@gardabraedur.is | 898-3093 eða 898-3094
lHellulagnir
lSólpallar
lSkjólgirðingar
lTrjá- og runnaklippingar
lFlísa- og parketlagnir