Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Side 30
föstudagur 14. nóvember 200830 Konan
Táknmálsleikhús draumasmiðjan,
táknmálsleikhús, frumsýnir á laugardags-
kvöldið 15. nóvember klukkan 20.00 í
Kópavogsleikhúsinu að funalind 2, leik-
verk eftir heyrnarlausan höfund, má ólafs-
son; leikritið Hvar er (K)Lárus? allir leikend-
ur eru heyrnarlausir og leikið er á táknmáli.
talmál verður í bakgrunni. sýning fyrir alla.
umsjón: KoLbrún páLína HeLgadóttir, kolbrun@dv.is
Vakna með
sæTuna þegar
ég er úThVíld
selma björnsdóttir, leikkona,
söngkona, dansari og leikstjóri.
Hvað borðar þú í
morgunmat? „tvær ristaðar
brauðsneiðar með osti og tómati eða
osti og sultu og te.“
Hver er uppáhaldsdrykkurinn
þinn? „íslenskt vatn.“
Hvar líður þér best? „alls staðar ef
ég er sátt við sjálfa mig.“
Hvaða bók er á náttborðinu
þínu? „var að klára Kona fer til
læknis. var að byrja á tóma rýmið
eftir peter brook, mávurinn eftir
anton Chekov er næstur og er
hálfnuð með bíbí.“
Hvernig heldur þú þér í formi?
„Ég stunda pilates í Kramhúsinu hjá
ástrós og svo er ég með kort í
Hreyfingu. syndi líka þegar ég nenni
og dansa á sviði þegar ég er að sýna
leik- og danssýningar.“
Hvaða snyrtivörur notar þú
dagsdaglega? „gott rakakrem,
Clinique dagkrem, maskara, kinnalit
og varasalva.“
Hvar kaupir þú helst föt? „í
júniform þegar ég kaupi kjóla,
annars hér og þar.“
Hvað gerir þú þegar þú vilt
dekra við sjálfa þig? „Ég fer í
rigningarsund og læt rigna á andlitið
á mér. nudd er líka mikið dekur og
svo finnst mér gott að dekra við mig í
mat. sushi er dekurmatur.“
Hvert er þitt helsta fegurðarráð?
„Þetta er mjög einfalt. Ég vakna með
ljótuna ef ég hef sofið lítið, borðað
óhollt og hugsað illa um mig. Ég
vakna með sætuna þegar ég er
úthvíld, borða skynsamlega og hreyfi
mig.“
Hver er þín fyrirmynd? „mitt
nánasta fólk sem er allt yndislegt og
miklir snillingar,“
Hugrún Þorsteinsdóttir
Húð- og kynsjúkdómalæknir
Hef utt húðlæknastofu mína í nýja húsið í
Glæsibæ, 5. hæð. Sama hús og Hrey ng.
Tímapantanir í síma:
554 64 46
Húðlækningar
Glæsibær | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Sími 554 6446 | hugrun@hlg.is
Kona vikunnar Eflaust standa margar konur frammi fyrir því að þurfa að minnka við sig dekur og annan
lúxus í kreppunni. Engin ástæða er þó til að örvænta því innihald glæsilegra skrúbba og
maska gæti leynst í skápnum þínum. DV tók saman frábærar og ekki síst einfaldar upp-
skriftir að snyrtivörum sem hver sem er getur búið til. Bjóðið vinkonum ykkar heim og
dekrið við ykkur sem mest þið megið fyrir lítinn pening og eigið góðar stundir saman.
heimalagaðar
snyrTiVörur
LÍKAMSSKRÚBBUR
n 1 mangó
n ½ bolli sykur
n 1 tsk. hunang
n 2 tsk. nýmjólk
Aðferð:
setjið mangóið, sykurinn, hunangið og
mjólkina í blandara.
blandið innihaldsefnin þar til blandan er
orðin mjúk.
standið í sturtunni eða í baðkarinu á
meðan þið skrúbbið líkamann varlega.
Hreinsið skrúbbinn af með heitu vatni
og endið á að skola líkamann með köldu
vatni.
FÓTASKRÚBBUR
Innihald:
n 2 msk. hrásykur
n 2 msk. haframjöl
n 2 tsk. aloe vera gel
n 1 tsk. hunang
n 1 tsk. sítrónusafi
n 1 tsk. möndluolía - einnig er hægt að
nota ólífuolíu.
Undirbúningur:
áður en þú byrjar að undirbúa þennan
skrúbb skaltu setja haframjölið í
matvinnsluvél svo að það verði fíngert.
gróft haframjöl gæti rispað fæturna.
Aðferð:
blandið öllum innihaldsefnunum saman
í stóra skál. Hrærið saman þar til blandan
verður kremkennd.
nuddið blöndunni varlega á fæturna og
notið hringlaga hreyfingar.
Hreinsið af með volgu vatni.
ANDLITSSKRÚBBUR
Innihald:
n náttúrusalt
n 3 tsk. af kókosolíu
n jógúrt
n mjólk
Aðferð:
blandið saltinu saman við kókosolíuna
og nuddið blöndunni varlega á andlitið.
Þegar því er lokið skolið andlitið með
heitu vatni.
blandið dassi af jógúrti og mjólk saman
og berið á andlitið. mjólkin gefur
húðinni ríka næringu og mýkir sem er
einsaklega gott eftir að hafa skrúbbað
hana með saltinu.
ANDLITSMASKI
Innihald
n 1 tsk. hunang
n nokkrir dropar af appelsínusafa.
Aðferð:
blandið hunanginu og safanum saman
og berið á allt andlitið, í kringum augu
og munn.
Hafið maskann á í 20 mínútur ef hægt er,
fjarlægið hann síðan með miklu af volgu
vatni og bómullarhnoðra.
HÁRNÆRING
Innihald:
n 1/2 bolli hunang
n 2 tsk. af ólífuolíu ef þú ert með
venjulegt hár. 1/4 bolli ef hárið er þurrt
og illa farið.
Aðferð:
blandið innihaldsefnunum tveimur
saman og berið í hárið, gætið þess að
þekja rótina vel. til þess að ná sem
bestum árangri er gott að nudda
hársvörðinn varlega. setjið plastpoka
eða sturtuhettu yfir hárið og leyfið
blöndunni að vera í hárinu í um það bil
30 mínútur.
Þvoið hárið vel með sjampói og þerrið
með handklæði.
VARAMASKI
Innihald:
n 1 tsk. hungang
n 1 tsk. matarsódi
n ólífuolía
Aðferð:
Hrærðu hunanginu og matarsódanum
saman þar til blandan verður þétt.
settu blönduna á varirnar og leyfðu
henni að bíða í nokkrar mínútur.
nuddaðu varirnar varlega. Þvoðu
blönduna af með ylvolgu vatni.
Leyfðu vörunum að þorna og berðu
ólífuolíuna á þær.