Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Page 37
„Ég er Reykjavíkurmær. Fædd í
borginni og uppalin,“ segir Svan-
hildur Jakobsdóttir, útvarpskona og
söngkona, spurð um uppruna sinn.
Svanhildi þekkja margir enda söng
hún sig inn í hjarta þjóðarinnar
svo um munaði við undirleik eig-
inmanns síns Ólafs Gauks tón-
listarsnillings með hljómsveitinni
Sextett Ólafs Gauks sem náði gífur-
legum vinsældum hér á árum áður.
Dreymdi alltaf um tónlist
„Þetta byrjaði allt eftir að ég kynnt-
ist Gauki, þá á ég við Óla, ég kalla
hann alltaf Gauk. Hann hafði spil-
að í mörg ár áður en við kynnt-
umst og tókst honum á skömmum
tíma að koma mér inn í tónlistina.“
Svanhildur viðurkennir þó að hafa
alltaf dreymt um að vinna við tón-
list. „Ég kunni öll vinsæl dægurlög
aftur á bak og áfram.“
Aðeins tuttugu og tveggja ára
að aldri gekk Svanhildur að eiga
Ólaf Gauk og áður en hún vissi
af var hún svo farin að syngja og
skemmta úti um allt land ásamt
sínum eiginmanni. Hljómsveitin
Sextett Ólafs Gauks, sem þau hjón-
in skipuðu sem og aðrir íslenskir
tónlistarsnillingar eins og Rúnar
Gunnarsson heitinn, varð ein vin-
sælasta hljómsveit landsins um
tíma og gerði lög eins Segðu ekki
nei, Undarlegt með unga menn,
Því ertu svona uppstökk, Vest-
mannaeyjalög Oddgeirs Kristjáns-
sonar og fleiri góð lög vinsæl. „Við
ferðuðumst hring eftir hring eftir
hring í kringum þetta land í mörg
ár og komum fram og má eiginlega
segja að við höfum varla ferðast
hér innanlands síðan,“ segir Svan-
hildur og hlær.
Skemmtilegur tími en
stundum erfiður
Svanhildur segir þennan tíma
hafa verið einstaklega skemmti-
legan en sömuleiðis mjög oft erf-
iðan. „Það er mikil vinna á bak við
það að ferðast með hljómsveit ef
maður tekur það alvarlega eins
og við vissulega gerðum. Það að
pakka upp hljóðfærum og ganga
frá þeim á hverju kvöldi sem og
öllu öðru sem hljómsveit fylg-
ir er talsvert mál. Margir halda
að hljómsveitarlífið sé stanslaus
glaumur og gleði en það er fjarri
lagi.“ Hljómsveitin kom einn-
ig fram í sjónvarpi og urðu andlit
meðlimanna því vel þekkt. Svan-
hildur, sem átti gífurlegum vin-
sældum að fagna, vill þó ekki
meina að hún hafi verið stjarna
þó að margir vildu eflaust meina
annað. „Vissulega vissu margir
hver við vorum enda þótti merki-
legt að koma fram í sjónvarpinu á
þessum tíma.“
Framhald á
næstu síðu
föstudagur 14. nóvember 2008 37Helgarblað
Svanhildur Jakobsdóttir var ein vinsælasta söngkona þjóðarinnar
hér á árum áður. Hún skemmti þjóðinni ásamt hljómsveitinni Sex-
tett Ólafs Gauks við góðar undirtektir í mörg ár. Nú 67 ára gömul
á Svanhildur rúm tuttugu farsæl ár að baki í útvarpi. Hún rek-
ur Gítarskóla Ólafs Gauks ásamt eiginmanni sínum og er
hvergi nálægt því að setjast í helgan stein. Hún rifjaði upp
gömlu góðu tímana með Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur.
Hálf öld
með Ólafi
Gauki
Mamma á daginn, söngkona á
kvöldin „Í raun hentaði starfið
mjög vel því ég gat verið heima
með börnin á daginn og sungið á
kvöldin þegar þau voru farin að
sofa. Þess á milli fengu þau bara að
skottast með okkur í vinnunni.“