Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Qupperneq 38
föstudagur 14. nóvember 200838 Helgarblað
Ásamt því að hafa í nógu að snúast
í tónlistinni var Svanhildur einnig
móðir í fullu starfi. „Í raun hent-
aði starfið mjög vel því ég gat ver-
ið heima með börnin á daginn og
sungið á kvöldin þegar þau voru
farin að sofa. Þess á milli fengu
þau bara að skottast með okkur í
vinnunni.“
Fráfall hljómsveitarmeðlims
Þegar hljómsveitin hafði náð hvað
mestum vinsældum varð hún fyrir
miklu áfalli. Einn meðlimur henn-
ar, Rúnar Gunnarsson, féll frá en
hann svipti sig lífi. Fréttirnar komu
öllum á óvart. „Við gerðum okkur
það ekki ljóst að hann væri hald-
inn þunglyndi. Það vissi satt best
að segja enginn að hann væri veik-
ur enda sást ekkert á manninum
á meðan hann spilaði með okk-
ur. Einn góðan veðurdag þegar
við vorum að undirbúa för okk-
ar til Þýskalands, þar sem hljóm-
sveitin hafði verið ráðin til vinnu
í tvo mánuði, henti Rúnar bassan-
um sínum á gólfið og hætti öllum
að óvörum. Vilhjálmur Vilhjálms-
son heitinn hljóp í skarðið og fór
með okkur út en auk okkar Gauks
og Vilhjálms voru í hljómsveitinni
þeir Andrés Ingólfsson heitinn,
Carl Möller og Páll Valgeirsson.“
Svanhildur segir Vilhjálm hafa
verið afar þægilegan í alla staði og
auðvelt að vinna með honum. „Ég
er viss um að hann væri mjög hissa
á öllum þessum vinsældum sín-
um í dag ef hann væri með okkur.
Hann var svo hógvær og hafði lítið
fyrir því að búa til tónlist.“
Í menntó 38 ára
Svanhildur gekk að eigin sögn
þennan venjulega menntaveg. „Ég
tók mitt gagnfræðapróf og skellti
mér einnig í málaskóla í Englandi.“
Svanhildur var nokkuð sátt við
sitt nám en eftir að hafa farið í út-
varpsviðtal eitt þegar hún var að
stússast í skemmtanabransanum
breyttist viðhorf hennar til muna.
„Stúlkan sem tók viðtalið spurði
mig hvaða menntun ég hefði og þá
fór ég að hugsa mín mál því mér
fannst ég ekkert meiri fábjáni en
flestir.“ Þrjátíu og átta ára að aldri
ákvað Svanhildur því að skella sér
í öldungadeild Hamrahlíðarskóla
og lauk þar stúdentsprófi með stæl
og dúxaði í íslensku. Hún viður-
kennir að á þeim tíma hafi henni
liðið eins og hún væri elliær en að
í dag hlæi hún bara að þeirri vitl-
eysu.
Í útvarpinu í yfir tuttugu ár
Svanhildur segist vera afar heppin
kona sem hefur fengið flest upp í
hendurnar. „Ég hef fengið að gera
einstaklega mikið af skemmti-
legum hlutum í lífinu og allt hef-
ur þetta komið eitt af öðru upp í
hendurnar á mér, sem betur fer
kannski því ég hefði sennilega
aldrei þorað að sækja um neina
vinnu.“ Ástæðuna segir Svanhild-
ur vera þá að hún hafi alltaf óttast
að fá nei. Í dag hefur Svanhildur
starfað í rúm tuttugu farsæl ár hjá
Ríkisútvarpinu þar sem hún stýr-
ir tveimur léttum dægurmálaþátt-
um, annars vegar Stefnumóti og
hins vegar Villtum strengjum og
vangadansi. „Ég kann afskaplega
vel við mig í útvarpinu. Ég fæ að
fylgjast með því sem er að gerast
í tónlistinni, tala við skemmtilegt
fólk og margt fleira.“ Ásamt því að
vera í útvarpinu rekur Svanhildur
ásamt Ólafi Gauki Gítarskóla Ól-
afs Gauks en hann hefur nú verið
starfræktur í ein þrjátíu og þrjú ár.
Gengur vel að vinna saman
Þegar blaðamaður spyr hvort
hann kenni mikið sjálfur í Gítar-
skólanum skellir Svanhildur upp
úr. „Já, og það er vegna þess að
hann er haldinn mikilli fullkomn-
unaráráttu og vill hafa yfirumsjón
með öllu. Hann kennir sjálfur og
mun halda því áfram. Hann hefur
sjaldan verið eins ánægður í þessu
starfi eins og hann er í dag, enda
þegar maður öðlast meiri færni
verður skemmtilegra að kenna og
miðla reynslu sinni.
Okkur hefur gengið alveg ákaf-
lega vel að vinna með hvort öðru
í gegnum árin enda höfum við alla
tíð verið að sinna sameiginlegu
áhugmáli okkar,“ segir Svanhildur
aðspurð hvernig það sé að vinna
svo náið með maka sínum eins og
um er að ræða í hennar tilfelli.
Börnin búsett erlendis
Þessi samrýndu og vinnusömu
hjón eiga tvö uppkomin börn, ann-
ars vegar hann Andra Gauk og hins
vegar Önnu Mjöll. Bæði búa þau
systkinin erlendis og hafa gert um
árabil. „Það er bara hundleiðinlegt
að hafa þau svona langt í burtu en
jákvæðu hliðarnar eru þær að við
þurfum að fara reglulega út og það
þykir okkur ekkert verra enda höf-
um við með eindæmum gaman af
því að ferðast.“ Báðum vegnar þeim
Andra og Önnu Mjöll vel en Andri
er starfandi skurðlæknir í Banda-
ríkjunum og Anna Mjöll, sem er
þjóðinni góðkunn fyrir söng sinn,
starfar við tónlist, sömuleiðis í
Bandaríkjunum. Svanhildur og Ól-
afur Gaukur eiga tvö barnabörn og
þegar Svanhildur er innt eftir því
hvernig hún kunni við sig í ömmu-
hlutverkinu segist hún því miður
lítið hafa sinnt því hlutverki. „Þau
hafa búið allt sitt líf í Bandaríkjun-
um og get ég því ekki sagt að ég sé
þessi dæmigerða amma en okkur
þykir voðalega gaman að hittast.“
Hugsar ekkert um árin
Nú þegar líða fer að lokum þessa
samtals blaðamanns og Svanhildar
óskar blaðamaður eftir því að fá að
vita leyndarmál hennar á bak við
unglegt útlit hennar en hún er tal-
in afar glæsileg kona og virðist hafa
hugsað vel um sig. „Ætli leyndar-
málið sé ekki bara að hugsa ekkert
um árin. Svo held ég að það skipti
miklu máli að hafa nóg fyrir stafni
og hafa alltaf eitthvað til að hlakka
til. Við Gaukur höfum meira en
nóg að gera og eigum eftir að láta
marga drauma okkar rætast. Við
ætlum að ferðast meira um heim-
inn og svo á hann sér draum um að
við tökum upp nokkur lög saman
fljótlega, en við sjáum hvað setur.
Þegar maður hættir að hafa nóg að
gera og fer að leggja kapal og lesa
bækur allan daginn þá fyrst verð-
ur maður gamall, auðvitað kemur
að því en það verður ekki á næst-
unni,“ segir Svanhildur að lokum.
„Við gerðum okkur það ekki ljóst að
hann væri haldinn þunglyndi. Það
vissi satt best að segja enginn að hann
væri veikur enda sást ekkert á mann-
inum á meðan hann spilaði með
okkur. Einn góðan veðurdag þeg-
ar við vorum að undirbúa för okkar
til Þýskalands, þar sem hljómsveitin
hafði verið ráðin til vinnu í tvo mán-
uði, henti Rúnar bassanum sínum á
gólfið og hætti öllum að óvörum.“
Eldist vel „Þegar maður hættir að
hafa nóg að gera og fer að leggja
kapal og lesa bækur allan daginn
þá fyrst verður maður gamall,
auðvitað kemur að því en það verð-
ur ekki á næstunni.“
myndir SiGtryGGur Ari