Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Side 54
föstudagur 14. nóvember 200854 Tíska
Vill klæða Obama Hönnuðurinn donna Karan hefur lýst yfir miklum
áhuga á að dressa nýja forsetafrú bandaríkjanna, frú michelle Obama, upp í fram-
tíðinni. „mér finnst michelle Obama vera alveg himnesk kona. Hún hefur einstak-
lega persónulegan stíl og ég myndi elska það ef hún myndi klæðast fötunum
mínum,“ sagði donna Karan sjálf í viðtali í Los angeles í síðustu viku. nú er
bara spurning hvernig forsetafrúin tekur í þetta tilboð hönnuðarins.
umsjón: Krista HaLL, krista@dv.is
Jólapakkinn í ár
Karl Lagerfeld hefur hannað nýja
línu fyrir tískuhús Chanel sem
kallast Chanel unlimited. Þessi nýja
lína kemur í sölu rétt í tæka tíð fyrir
jólaösina og inniheldur splunkunýja
hönnun á töskum og fylgihlutum.
töskurnar sem eru gráar og
glansandi í grunninn eru svo
prýddar með goðsagnakenndum
orðum tengdum tískuhúsinu líkt og
Paris, Coco og að sálfsögðu Chanel.
töskurnar koma í mismunandi
stærðum og gerðum með ýmiss
konar litlum aukaatriðum til að gera
töskuna enn betri, líkt og krækju
fyrir lyklana sem eiga það til að
týnast í stórum töskum. Þetta er svo
sannarlega eitthvað til að setja á
jólagjafaóskalistann.
aftur á
fOrsíðunni
Kate moss er enn og aftur á forsíðu
vogue, í þetta skiptið fyrir desem-
bertölublaðið en síðast var hún á
forsíðunni í september. forsíðu-
myndirnar eru teknar af ljósmyndar-
anum nick Knight og ku Kate moss
vera þrusuflott á myndunum að
venju. Í blaðinu verður einnig innlit
heim til tims burton og Helenu
bonham Carter sem myndað er af
tim Walker auk þáttar sem kallast
Karl Lagerfeld‘s secret ball sem
hljómar forvitnilega.
kOmin í H&m
rei Kawakubo sem hannar fyrir
Comme des garcons er sú nýjasta í
hópi frægra fatahönnuða til að
hanna fyrir verslunarkeðjuna H&m.
Lína rei kom í allar verslanir H&m í
gær og höfðu raðir myndast fyrir
utan flestar af verslununum enda
einkar eftirsóknarvert að nálgast
flíkur í anda Comme des garcons á
góðu H&m-verði. „mér fannst
áhugavert að starfa með H&m til að
selja Comme des garcons-föt á
stöðum þar sem þau hafa hingað til
ekki verið fáanleg og fá fólk, sem
hefur jafnvel enn ekki fattað
hönnunina mína, til að sjá hana í
nýju ljósi,“ sagði rei um samstarfið.
Skólafötin
Djammdressið
Sparidressið
Buxur: urban Outfitters, keyptar
í danmörku
Skyrta: topshop í London
Skór: Keyptir í lítilli búð í Árósum
„ef ég er þreytt í letistuði þegar ég
er að klæða mig fyrir skólann fer
ég í eitthvað þægilegt en ef ég er í
pæjustuðinu fer ég í eitthvað
fínna.“
Skyrta: Liborius
SokkaBuxur: Oroblu
Sokkar: Cobra
Skór: Keyptir í lítilli búð
í London
„mér finnst rosalega
skemmtilegt að vera
svolítið spari og er miklu
meira fyrir það að klæða
mig upp heldur en að
vera hversdagsleg. Þetta
eru svona algjör spariföt
þar sem skyrtan er mjög
viðkvæm og ég myndi
ekki fara í henni út á
djammið, frekar að ég
klæðist henni í veislum
og þegar ég fer fínt út
að borða.“
Skór: keyptir í París
Buxur: topshop
Jakki: topshop í London, úr
Kate moss-línunni.
Bolur: H&m
HálSmen: jólagjöf frá
kærastanum
„Ég dressa mig alltaf upp fyrir
djammið og reyni að vera
dugleg að kaupa mér fallegar
og flottar flíkur þegar ég er
erlendis. Hérna heima eru
uppáhaldsbúðirnar mínar
trilogia, KronKron og Liborius
en það eru náttúrlega búðir í
dýrari kantinum svo ég kaupi
mér nú ekkert oft þar þótt það
sé voðalega gaman að skoða í
þessum búðum. Ég enda þá
frekar í topshop sem er aðeins
ódýrari.“
margrét Jústa Pétursdóttir er stórglæsileg stúlka á öðru ári í viðskiptafræði í HÍ. Hún er
með pæjulegan fatastíl og finnst miklu skemmtilegra að vera spariklædd en í hversdagsföt-
unum. Með skólanum starfar Margrét Jústa í félagsmiðstöðinni í Garðalundi.
skemmtilegt að
Vera spariklædd
Jakki: Keyptur í Árósum
trefill: gjöf frá mömmu
Húfa: H&m
PilS: rokk og rósir
SokkaBuxur: Oroblu
Stígvél: friis & Company
Sokkar: H&m
„Ég klæði mig eftir veðri og
skelli á mig húfu þegar það
er rigning og trefli þegar
það er kalt. en ég reyni samt
líka að klæða mig svolítið
pæjulega ef ég er að fara
eitthvað fínt.“
Útifötin
myndir rakel óSk