Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Blaðsíða 56
Ennþá rokk „Það komu nokkur nöfn til greina en okkur fannst eiginlega bara best að kalla plötuna Jeff Who? Svona erum við bara og platan stendur nákvæm- lega fyrir það sem hljómsveitin er að gera,“ segir Bjarni Lárus Hall, söngv- ari hljómsveitarinnar Jeff Who? sem sendir frá sér sína aðra breiðskífu í dag sem er einfaldlega samnefnd sveitinni. Fyrsta plata sveitarinnar, Death Before Disco, kom út fyrir þremur árum og með henni náðu strákarnir í Jeff Who? svo sannarlega að stimpla sig inn í íslenskt tónlistarlíf og má því með sanni segja að margir aðdáend- ur hafi beðið eftir næstu plötu í of- væni. „Við höfum þróast frá síðustu plötu og okkur finnst þetta hljóma talsvert öðruvísi en alls ekkert á slæman hátt. Það er ennþá rokk í þessu og þetta er ekkert væl. Poppið og stuðið eru enn til staðar.“ Dramatískur ástardúett Sveitin fékk marga góða gesti til liðs við sig á plötunni meðal annars Ant- on Patzner, strengjaleikara hinnar vinsælu bandarísku sveitar Bright Eyes, Hauk Gröndal saxófónleikara, Ragnar Árna Sigurðsson, trompet- leikara og bankastarfsmann, og leik- og söngkonuna Esther Talíu Casey. „Esther syngur eitt lag sem er hálf- gerður dúett á móti mér,“ segir Bjarni og viðurkennir að þetta sé svolítið ástarlag. „Já, þetta er allavega alveg hádramatískt og má alveg kalla þetta ástarlag.“ Útgáfutónleikar í burðarliðnum Smekkleysa sér um að gefa út Jeff Who? en sífellt færist í aukana að sveitir sjái sjálfar um útgáfu. Að- spurður hvort það hafi ekki komið til greina hjá Jeff Who? að gefa sig út sjálfir svarar Bjarni: „Við vorum nú eitthvað að pæla í því en það er rosa- lega fínt að hafa bara einhvern sem gerir þetta fyrir mann. Við höfum líka mikla trú á Smekkleysu og því að þeir geri þetta vel.“ Bjarni segir að útgáfu plötunnar verði að sjálfsögðu fagnað á næst- unni. „Tónleikarnir verða kynntir seinna en við erum að vinna í þeim málum. Þeir verða vonandi í þessum mánuði ef allt gengur að óskum.“ krista@dv.is föstudagur 14. nóvember 200856 Tónlist Buff komin út Þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar buffs er komin út og er hún samnefnd sveitinni. um er að ræða ellefu laga plötu með þessari ástsælu hljómsveit sem inniheldur lög eins og núna mun ég vaka, Þakklæti, Í gær og enginn nema þú en öll þessi lög hafa þegar slegið í gegn. Hljómsveitin mun halda útgáfutónleika á nasa 20. nóvember sem og koma fram á samstöðutón- leikunum í Laugardalshöll á morgun, laugardag. xxx xxx xxx umsjón: krista HaLL, krista@dv.is xxx xxx xxx xxx Hljómsveitin Jeff Who? sendir frá sér sína aðra breiðskífu í dag, samnefnda sveit- inni. Bjarni Lárus Hall, söngvari sveitar- innar, segir að tónlistin hafi þróast tals- vert frá síðustu plötu en poppið, rokkið og stuðið séu enn til staðar. Jeff Who? sendir frá sér plötuna Jeff Who? fyrsta smáskífulagið, Congratulations, hefur þegar notið mikilla vinsælda í viðtækjum landsmanna. og EkkErt væl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.