Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Qupperneq 56
Ennþá rokk
„Það komu nokkur nöfn til greina en
okkur fannst eiginlega bara best að
kalla plötuna Jeff Who? Svona erum
við bara og platan stendur nákvæm-
lega fyrir það sem hljómsveitin er að
gera,“ segir Bjarni Lárus Hall, söngv-
ari hljómsveitarinnar Jeff Who? sem
sendir frá sér sína aðra breiðskífu
í dag sem er einfaldlega samnefnd
sveitinni.
Fyrsta plata sveitarinnar, Death
Before Disco, kom út fyrir þremur
árum og með henni náðu strákarnir
í Jeff Who? svo sannarlega að stimpla
sig inn í íslenskt tónlistarlíf og má því
með sanni segja að margir aðdáend-
ur hafi beðið eftir næstu plötu í of-
væni.
„Við höfum þróast frá síðustu plötu
og okkur finnst þetta hljóma talsvert
öðruvísi en alls ekkert á slæman hátt.
Það er ennþá rokk í þessu og þetta er
ekkert væl. Poppið og stuðið eru enn
til staðar.“
Dramatískur ástardúett
Sveitin fékk marga góða gesti til liðs
við sig á plötunni meðal annars Ant-
on Patzner, strengjaleikara hinnar
vinsælu bandarísku sveitar Bright
Eyes, Hauk Gröndal saxófónleikara,
Ragnar Árna Sigurðsson, trompet-
leikara og bankastarfsmann, og leik-
og söngkonuna Esther Talíu Casey.
„Esther syngur eitt lag sem er hálf-
gerður dúett á móti mér,“ segir Bjarni
og viðurkennir að þetta sé svolítið
ástarlag. „Já, þetta er allavega alveg
hádramatískt og má alveg kalla þetta
ástarlag.“
Útgáfutónleikar í burðarliðnum
Smekkleysa sér um að gefa út Jeff
Who? en sífellt færist í aukana að
sveitir sjái sjálfar um útgáfu. Að-
spurður hvort það hafi ekki komið
til greina hjá Jeff Who? að gefa sig út
sjálfir svarar Bjarni: „Við vorum nú
eitthvað að pæla í því en það er rosa-
lega fínt að hafa bara einhvern sem
gerir þetta fyrir mann. Við höfum líka
mikla trú á Smekkleysu og því að þeir
geri þetta vel.“
Bjarni segir að útgáfu plötunnar
verði að sjálfsögðu fagnað á næst-
unni. „Tónleikarnir verða kynntir
seinna en við erum að vinna í þeim
málum. Þeir verða vonandi í þessum
mánuði ef allt gengur að óskum.“
krista@dv.is
föstudagur 14. nóvember 200856 Tónlist
Buff komin út Þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar
buffs er komin út og er hún samnefnd sveitinni. um er
að ræða ellefu laga plötu með þessari ástsælu hljómsveit
sem inniheldur lög eins og núna mun ég vaka, Þakklæti,
Í gær og enginn nema þú en öll þessi lög hafa þegar
slegið í gegn. Hljómsveitin mun halda útgáfutónleika á
nasa 20. nóvember sem og koma fram á samstöðutón-
leikunum í Laugardalshöll á morgun, laugardag.
xxx
xxx
xxx
umsjón: krista HaLL, krista@dv.is
xxx
xxx
xxx
xxx
Hljómsveitin Jeff Who? sendir frá sér sína
aðra breiðskífu í dag, samnefnda sveit-
inni. Bjarni Lárus Hall, söngvari sveitar-
innar, segir að tónlistin hafi þróast tals-
vert frá síðustu plötu en poppið, rokkið og
stuðið séu enn til staðar.
Jeff Who? sendir frá sér plötuna Jeff Who?
fyrsta smáskífulagið, Congratulations, hefur þegar
notið mikilla vinsælda í viðtækjum landsmanna.
og EkkErt væl