Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Page 59
föstudagur 14. nóvember 2008 59Dagskrá
sunnudagur 16. nóvember
Sigurður Mikael vaggar á fleka sínum í ólgusjó innan um frystitogarana sem auglýsa nú krepputilboð.
Geim over herra Grand Lúser
pressan
Ég stefndi á það að komast í vinn-
una um daginn án þess að heyra
eða sjá orðið „kreppa“. Það var
vart kviknað ljós í mælaborðinu
hjá mér áður en vitringar og hag-
spekingar voru búnir að spilla
því. Eftir langan dag í hringiðu
kreppuumræðunnar langaði mig
að slappa af fyrir framan sjón-
varpið og forðast orðið, sem varð-
aði á sínum tíma húðstrýkingu
að mæla. Skynfæri mín höfðu
vart við því að melta „krepputil-
boð“ á öllu mögulegu og ómögu-
legu undir þungbúnum nóvem-
berhimni hins íslenska veturs.
Orðið sjálft stefnir hraðbyri í að
verða með öllu merkingarlaust. Í
stað þess að vera hugtak yfir til-
tekið ástand hefur kreppa nú ver-
ið svipt raunverulegri merkingu
sinni og orðið auglýsingaverk-
færi sem nýtt er í léttúð í tækifær-
issinnaðri firringu.
Kannski er það sjálfsbjargar-
viðleitni enda hefur verið áhuga-
vert að fylgjast með því hvað
kreppa snýr öllum áður gefn-
um góðærisgildum og viðmið-
um samfélagsins á haus. Þegar
gnægð var af lánsfé og neyslu-
kapphlaupið heltók landann
skömmuðust þeir sín niður í tær
sem áttu bölvaðar bíldruslur,
skuldlausar. Þegar menn lögðu
við hlið Range Rover- og Land
Cruiser-jeppanna á bílastæðum
hvívetna upplifðu þeir hálfgerða
smán. Bíllinn var stöðutákn vel-
megunar. Á tímum sparnaðar,
aðhalds og „krepputilboða“ veiti
ég því nú athygli hvernig jeppa-
fólkið virðist horfa öfundaraug-
um á skuldlausu druslurnar í
umferðinni og spyr sig. Af hverju
ég?
Ég á engan jeppa en ég er ekki
frá því að ég horfi nú girndar-
augum á druslurnar þessa dag-
ana. Ég, eins og svo margir, sörf-
aði góðærisbylgjuna sem sópaði
mér út á rúmsjó. Á fleka mínum
vagga ég nú á ólgusjónum innan
um frystitogarana sem flagga nú
ekki sjóræningjafánum.
Nú flagga þeir auglýsinga-
borðum í von um að selja mér
hugmyndina um að kreppan sé
ekki það alvarlega hugtak sem
á að ná utan um ástandið sem
nú ríkir. Þeir auglýsa „kreppu-
tilboð“ á hlutum sem fleki minn
getur ekki borið. Í fjarska sé ég
mótmælendur sem bíða þess
að húðstrýkja áhafnir togaranna
þegar þeir leggja að landi. Þvílík
firring.
mikael@dv.is
STÖÐ 2 EXTRA STÖÐ 2 SpoRT
STÖÐ 2 bíó
SjónvARpiÐ SkjáR EinnSTÖÐ 2
08.00 Morgunstundin okkar
08.01 Í næturgarði (5:26) (In the Night Garden)
08.29 Pósturinn Páll (26:28) (Postman Pat)
08.44 Friðþjófur forvitni (3:20) (Curious George)
09.07 Disneystundin
09.08 Stjáni (8:26) (Stanley)
09.31 Sígildar teiknimyndir (8:42)
09.38 Gló magnaða (73:87) (Kim Possible)
10.01 Frumskógar Goggi (5:26)
10.34 Júlía (1:4) Dönsk þáttaröð. e.
10.51 Sigga ligga lá (36:52) (Pinky Dinky Doo)
11.05 Gott kvöld Textað á síðu 888 í Textavarpi. e.
11.55 Viðtalið e.
12.30 Silfur Egils
13.50 Líf með köldu blóði (3:5) e.
14.40 Martin læknir (3:7) (Doc Martin) e.
15.30 Hver var Jónas? 888. e.
16.50 Edduverðlaunin 2008 e.
17.20 Táknmálsfréttir
17.30 Risto (11:13) Finnskur teiknimyndaflokkur. e.
17.35 Enginn draugur Leikin barnamynd frá Japan.
17.50 Risto (12:13) Finnskur teiknimyndaflokkur. e.
18.00 Stundin okkar Textað á síðu 888 í Textavarpi.
18.30 Spaugstofan Textað á síðu 888 í Textavarpi e.
19.00 Fréttir
19.35 Veður
19.40 Edduverðlaunin 2008 Bein útsending frá
afhendingu Edduverðlaunanna, íslensku
kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna, við
hátíðlega athöfn í Háskólabíói.
21.45 Sommer (3:10) (Sommer) Danskur
myndaflokkur. Christian og Sophia fara í viðtal á
sjúkrahúsinu og Christian fær sjúkdómsgreiningu
sem hefur áhrif á líf allrar fjölskyldunnar, meðal
annars vegna þess að Christian þarf strax að hætta
að vinna. Jakob og Adam þurfa að gera ráðstafanir
vegna læknastofunnar því að hvorugur þeirra hefur
áhuga á að taka við rekstrinum. Þeir hafa líka nógu
að sinna í einkalífinu. Og svo fær Christian bréf frá
manneskju sem vill hitta hann af persónulegum
ástæðum. Meðal leikenda eru Lars Ranthe, Marie
Louise Wille, Cecilie Bøcker Rosling, Jesper
Langberg, Lisbet Dahl, Mikael Birkkjær og Camilla
Bendix.
22.45 Hringiða (7:8) (Engrenages) Franskur
sakamálamyndaflokkur. Ung kona finnst myrt og
lögreglukona, saksóknari og dómari sem koma að
rannsókn málsins hafa hvert sína sýn á réttlætið.
Aðalhlutverk leika Grégory Fitoussi, Caroline Proust
og Philippe Duclos. Atriði í þáttunum eru ekki við
hæfi barna.
23.35 Silfur Egils Endursýndur þáttur.
00.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
07:00 Barney og vinir
07:25 Kalli á þakinu
07:50 Litla risaeðlan
08:05 Algjör Sveppi
08:10 Lalli
08:20 Doddi litli og Eyrnastór
08:35 Fífí
08:45 Svampur Sveinsson
09:10 Áfram Diego Afram!
09:35 Könnuðurinn Dóra
10:00 Kicking and Screaming
11:30 Latibær (14:18)
12:00 Sjálfstætt fólk (Hafliði H. Jónsson)
12:35 Neighbours
12:55 Neighbours
13:15 Neighbours
13:35 Neighbours
13:55 Neighbours
14:20 Chuck (11:13)
15:10 Eldsnöggt með Jóa Fel (4:10)
15:45 Logi í beinni
16:30 The Daily Show: Global Edition
16:55 Oprah
17:40 60 mínútur
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:49 Íþróttir
18:55 Veður
19:10 Mannamál
19:55 Sjálfstætt fólk (9:40)
20:30 Dagvaktin (9:12)
21:05 Numbers (Tölur)
21:50 Fringe (6:22) (Á jaðrinum)
22:40 60 mínútur
23:25 Prison Break (7:22) (Flóttinn mikli)
00:10 Journeyman (5:13) (Tímaflakkarinn) Nýjir og
dularfullir þættir um Dan Vassar sem er
hamingjusamur fjölskyldufaðir og lífið virðist leika
við hann. Líf hans tekur skyndilega stakkaskiptum
þegar hann öðlast hæfileika til þess að ferðast
aftur í tímann og til baka. Á tímaferðalagi sínu
hittir hann fyrrum ástkonu sína sem lést í flugslysi.
Hann stendur nú frammi fyrir erfiðri ákvörðun, ef
hann breytir fortíðinni og bjargar æskuástinni þá
gæti hann glatað eigin framtíð.
00:55 Mannamál
01:40 De-Lovely (Dá-samlegt)
03:40 Numbers (Tölur)
04:25 Fringe (6:22) (Á jaðrinum) Stærsti nýja þáttur
vetrarins. Hörkuspennandi og ógnvekjandi
þáttaröð frá JJ Abrams aðalhöfundi Lost.
05:10 Dagvaktin (9:12)
05:40 Fréttir
08:55 Enski deildarbikarinn (Tottenham -
Liverpool) Útsending frá leik Tottenham og
Liverpool í enska deildarbikarnum.
10:35 Spænski boltinn (Valladolid - Real
Madrid) Útsending frá leik í spænska boltanum.
12:15 Spænski boltinn (Valencia - Sporting)
Útsending frá leik í spænska boltanum.
13:55 Augusta Masters 2008 (2008 Augusta
Masters) Útsending frá lokadegi Augusta Masters
mótsins í golfi.
18:10 Spænski boltinn (La Liga Report)
Fréttaþáttur spænska boltans þar sem hver
umferð fyrir sig er skoðuð í bak og fyrir. Leikir
helgarinnar skoðaðir og viðtöl tekin við leikmenn
og þjálfara.
18:40 Fréttaþáttur (Meistaradeild Evrópu)
Fréttaþáttur Meistaradeildar Evrópu þar sem hver
umferð er skoðuð í bak og fyrir. Viðtöl við
leikmenn liðanna og komandi viðureignir
skoðaðar.
19:20 NFL deildin Magnaður þáttur þar sem hver
umferð í NFL deildinni er skoðuð í bak og fyrir.
Þeir Rich Eisen og Deion Sanders skoða allar
viðureignirnar og spá í spilin.
19:50 Spænski boltinn (Recreativo - Barcelona)
Bein útsending frá leik í spænska boltanum.
21:50 NFL deildin (Jacksonville - Tennessee)
08:00 Fantastic Voyage (Hættuspil)
10:00 Night at the Museum (Nótt á safninu)
12:00 RV (Húsbílaævintýri)
14:00 In Good Company (Í góðum félagsskap)
16:00 Fantastic Voyage (Hættuspil)
18:00 Night at the Museum (Nótt á safninu)
20:00 RV (Húsbílaævintýri) Bráðfyndin og viðburðarík
gamanmynd fyrir alla fjölskylduna með Robin
Williams í aðalhlutverki. Bub Munro hefur
áhyggjur af samheldni fjölskyldu sinnar og ákveður
að þjappa henni saman með því að skipulegggja
ferðalag. Hann leigir veglegan húsbíl og stefnir
með fólkið sitt á Colorado, en sá galli er á gjöf
Njarðar að hann er ekkert sérlega góður bílstjóri og
verður seint talinn þaulreyndur ferðalangur.
22:00 All the King’s Men (Valdatafl)
00:05 The Bone Collector (Beinasafnarinn)
02:00 Prey for Rock and Roll (Óður til rokksins)
04:00 All the King’s Men (Valdatafl)
06:00 So I Married an Axe Murderer (Ég giftist
axarmorðingja)
15:30 Hollyoaks (56:260)
15:55 Hollyoaks (57:260)
16:20 Hollyoaks (58:260)
16:45 Hollyoaks (59:260)
17:10 Hollyoaks (60:260)
18:00 Seinfeld (21:22)
18:30 Seinfeld (22:22)
19:00 Seinfeld (9:24)
19:30 Seinfeld (10:24)
20:00 My Bare Lady (2:4)
20:45 ET Weekend
21:30 My Boys (9:22) (Strákarnir mínir) Frábærir
gamanþættir um unga konu sem er
greinahöfundur hjá þekktu íþróttablaði og þarf að
kljást við einkamálin ásamt því að sanna sig í
karlaheimi.
22:00 Kenny vs. Spenny (10:13) (Kenny vs.
Spenny) Kenny og Spenny eru æskufélagar sem
hafa gaman að því að keppa við hvort annan. Í
þessum þáttum etja þeir kappi í hinum ýmsu
atburðum. Þar á meðal nektarkeppni, danskeppni,
biblíusölu og kossakeppni. Þeir svífast einskis til að
sigra hvorn annan og lenda oft í mjög
neyðarlegum aðstæðum.
22:25 Seinfeld (21:22)
22:50 Seinfeld (22:22)
23:15 Seinfeld (9:24)
23:40 Seinfeld (10:24)
00:05 Sjáðu
00:30 Tónlistarmyndbönd frá Skífan TV
06:00 Óstöðvandi tónlist
12:55 Vörutorg
13:55 Dr. Phil (e)
14:40 Dr. Phil (e)
15:25 Dr. Phil (e)
16:10 What I Like About You (17:22) (e)
16:40 Frasier (17:24) (e)
17:05 Innlit / Útlit (8:14) (e)
17:55 How to Look Good Naked (8:8) (e)
18:45 Singing Bee (9:11) (e)
19:45 America’s Funniest Home Videos
20:10 Robin Hood (13:13)
20:10 Robin Hood (13:13) Bresk þáttaröð fyrir alla
fjölskylduna um hetjuna Hróa hött, útlagann sem
rænir þá ríku til að gefa hinum fátæku. Það er
komið að lokaþættinum að sinni og nú þarf Hrói að
bjarga Marion, konunginum og Englandi. Fógetinn
og Gisborne eru í landinu helga með ráðagerð til
að myrða Ríkharð konung en Hrói og útlagarnir eru
einnig á staðnum og neita að gefast upp.
21:00 Law & Order: Special Victims Unit
(14:22) Bandarísk sakamálasería um sérdeild
lögreglunnar í New York sem rannsakar
kynferðisglæpi. Lögfræðingur með mafíutengsl
verður fyrir hrottalegri árás og uppdópuð dóttir hans
er í vondum félagsskap. Stabler er borinn þungum
sökum og framtíð hans í lögreglunni er í hættu.
21:50 Dexter (1:12) Þriðja þáttaröðin um dagfarsprúða
morðingjann Dexter Morgan sem drepur bara þá
sem eiga það skilið. Í fyrsta þættinum eltist Dexter
við morðingja sem komst upp með að myrða tvær
háskólastelpur en endar í bardaga upp á líf og dauða
við ókunnugan mann sem er á röngum stað á
röngum tíma. Innra eftirlitið reynir að fá Deb til að
snúast gegn félaga sínum og Rita kemur Dexter í
opna skjöldu með óvæntum fréttum.
22:40 CSI: Miami (8:21) (e) Bandarísk sakamálasería
um Horatio Caine og félaga hans í rannsóknardeild
lögreglunnar í Miami. Dean Cain leikur
gestahlutverk í þessum þætti. Hann leikur
fjölskylduföður sem er í fríi með fjölskyldu sinni á
Miami þegar sonur hans er myrtur. Foreldrarnir eru
í hefndarhug og taka lögin í sínar hendur. Leikstjóri
þáttarins er Egill Örn Egilsson.
23:30 Sugar Rush (1:10) Bresk þáttaröð um
samkynhneigða unglingsstúlku og þá erfiðleika
sem fylgja því að vera ung, gröð og lesbísk í
nútímasamfélagi. Þættirnir voru tilnefndir til
BAFTA verðlauna 2007 sem besta dramatíska
þáttaröðin í Bretlandi. Kim er orðin 17 ára og
dreymir um að lifa fjörugu ástarlífi en
raunveruleikinn er allt annar.
00:00 Vörutorg
01:00 Óstöðvandi tónlist
STÖÐ 2 SpoRT 2
09:00 Enska úrvalsdeildin
10:40 PL Classic Matches (Blackburn - Sheffield, ́ 97)
11:10 PL Classic Matches (Bradford - Watford,
1999) Hápunktarnir úr bestu og eftirminnilegustu
leikjum úrvalsdeildarinnar.
11:40 Premier League World
12:10 4 4 2 (4 4 2)
13:20 Enska úrvalsdeildin (Everton -
Middlesbrough) Bein útsending frá leik Everton og
Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni.
15:20 PL Classic Matches (Everton - Leeds, 1999)
Hápunktarnir úr bestu og eftirminnilegustu
leikjum úrvalsdeildarinnar.
15:50 Enska úrvalsdeildin (Hull - Man. City) Bein
útsending frá leik Hull City og Man. City í ensku
úrvalsdeildinni.
18:00 Enska úrvalsdeildin (WBA - Chelsea)
Útsending frá leik WBA og Chelsea í ensku
úrvalsdeildinni.
19:40 Enska úrvalsdeildin (Bolton - Liverpool)
Útsending frá leik Bolton og Liverpool í ensku
úrvalsdeildinni.
21:20 4 4 2 (4 4 2)
22:30 Enska úrvalsdeildin
sunnudagursunnudagurlaugardagur
MEAN GIRLS
Lindsay Lohan leikur Cady Heron sem er
fimmtán ára stúlka. Hún hefur alist upp í
óbyggðum afríku þar sem foreldrar hennar
störfuðu sem dýrafræðingar. Cady telur sig því
vita ýmislegt um lífsbaráttuna þar sem hinir
hæfustu lifa af. en frumskógarlögmálið fær alveg
nýja merkingu í huga hennar þegar hún flyst til
bandaríkjanna og sest í skóla í fyrsta sinn.
DExTER
morðóði meinafræðingurinn dexter snýr aftur á
skjá einn. Í fyrsta þættinum eltist dexter við
morðingja sem komst upp með að myrða tvær
háskólastelpur en endar í bardaga upp á líf og
dauða við ókunnugan mann sem er á röngum stað
á röngum tíma. Innra eftirlitið reynir að fá deb til
að snúast gegn félaga sínum og rita kemur dexter
í opna skjöldu með óvæntum fréttum.
LAW & ORDER: SPECIAL
VICTIMS UNIT
elliot og Olivia berjast gegn kynferðisglæpum í
new York-borg. baráttan virðist skila litlum
árangri en þau vinna þó litla sigra á hverjum degi.
Lögfræðingur með mafíutengsl verður fyrir
hrottalegri árás og uppdópuð dóttir hans er í
vondum félagsskap. stabler er borinn þungum
sökum og framtíð hans í lögreglunni er í hættu.
SkjáR Einn kl. 21.00 SkjáR Einn kl. 21.50 SjónvARpiÐ kl. 21.00
FöSTUDAGUR
06.00 Fréttir 06.05 Morgunvaktin 06.40
Veðurfregnir 06.50 Bæn 07.00 Fréttir 07.30
Fréttayfirlit 08.00 Morgunfréttir 09.00 Fréttir 09.05
Óskastundin 09.45 Morgunleikfimi 10.00 Fréttir
10.03 Veðurfregnir 10.13 Sagnaslóð 11.00 Fréttir
11.03 Samfélagið í nærmynd 12.00 Fréttayfirlit
12.02 Hádegisútvarp 12.20 Hádegisfréttir 12.45
Veðurfregnir 12.50 Dánarfregnir og auglýsingar
13.00 Vítt og breitt 14.00 Fréttir 14.03 Tónleikur
15.00 Fréttir 15.03 Útvarpssagan: Bulgari
sambandið 15.30 Heimsauga 16.00 Síðdegisfréttir
16.10 Veðurfregnir 16.13 Hlaupanótan 17.00 Fréttir
17.03 Víðsjá 18.00 Kvöldfréttir 18.15 Auglýsingar
18.16 Auðlindin 18.23 Fréttayfirlit og veður 18.25
Auglýsingar 18.26 Spegillinn 18.50 Dánarfregnir
og auglýsingar 19.00 Endurómur úr Evrópu 20.00
Leynifélagið 20.30 Stjörnukíkir 21.10 Flakk 22.00
Fréttir 22.07 Veðurfregnir 22.12 Orð kvöldsins
22.15 Litla flugan 23.00 Kvöldgestir 00.00 Fréttir
00.07 Næturtónar
LAUGARDAGUR
06.30 Árla dags 06.40 Veðurfregnir 06.50 Bæn
07.00 Fréttir 08.00 Morgunfréttir 08.05 Stef 09.00
Fréttir 09.03 Út um græna grundu 10.00 Fréttir
10.05 Veðurfregnir 10.15 Kvika 11.00 Vikulokin
12.02 Hádegisútvarp 12.20 Hádegisfréttir 12.45
Veðurfregnir 13.00 Krossgötur 14.00 Til allra átta
14.40 Stjörnukíkir 15.25 Lostafulli listræninginn
16.00 Síðdegisfréttir 16.08 Veðurfregnir 16.10
Orð skulu standa 17.05 Flakk 18.00 Kvöldfréttir
18.24 Auglýsingar 18.26 Bláar nótur í bland
18.50 Dánarfregnir og auglýsingar 19.00 Heimur
óperunnar 19.50 Sagnaslóð 20.30 Brot af eilífðinni
21.10 Tækni verður list 22.00 Fréttir 22.07
Veðurfregnir 22.12 Orð kvöldsins 22.15 Hvað er
að heyra? 23.10 Villtir strengir og vangadans 00.00
Fréttir 00.07 Næturtónar
SUNNUDAGUR
06.30 Árla dags 06.40 Veðurfregnir 07.00 Fréttir
07.05 Morgunandakt 08.00 Morgunfréttir 08.05
Ársól 09.00 Fréttir 09.03 Lárétt eða lóðrétt 10.00
Fréttir 10.05 Veðurfregnir 10.15 Bókaþing 11.00
Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju 12.02 Hádegisútvarp
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir 13.00
Engill með húfu 14.00 Útvarpsleikhúsið Besti vinur
hundsins: Endaprettur Annar hluti úr þríleiknum Besti
vinur hundsins eftir Bjarna Jónsson. 15.00 Hvað er
að heyra? 16.00 Síðdegisfréttir 16.08 Veðurfregnir
16.10 Úr tónlistarlífinu 17.30 Úr gullkistunni 18.00
Kvöldfréttir 18.24 Auglýsingar 18.26 Seiður og
hélog 18.50 Dánarfregnir og auglýsingar 19.00
Óskastundin 19.40 Öll þau klukknaköll 20.30 Bláar
nótur í bland 21.10 Orð skulu standa 22.00 Fréttir
22.07 Veðurfregnir 22.12 Orð kvöldsins 22.15 Til
allra átta 23.00 Andrarímur 00.00 Fréttir 00.07
Næturtónar
RáS 1 FM 92,4 / 93,5