Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Side 63
SAGA MANNSINS er sannkallað stórvirki. Á 668
blaðsíðum er farið yfir sögu mannsins frá örófi til
okkar dags. Verkið er einstaklega viðamikið, bæði
fróðlegt og skemmtilegt. Einstæð útlitshönnun
og skipulagningin bókarinnar gerir notkun hennar
auðvelda og eykur ánægju lesenda.
Ritstjóri bókarinnar er Illugi Jökulsson sem um árabil hefur
lagt sig fram um að gera sögulega viðburði aðgengilega fyrir
íslenskan almenning. Þetta er bók til að lesa frá upphafi til
enda en líka til að fletta upp í og glugga í árum saman. Sá sem
sekkur sér á kaf í söguna verður aldrei einmana.
Dýrgripur
Í þessari frábæru bók er saga mannsins rakin frá fyrstu
apamönnunum í Afríku til Cristiano Ronaldos. Kóngar og
drottningar, alþýðan og aðallinn, spekingar og illmenni,
herforingjar og listamenn, allir fá sitt pláss á síðum þessarar
þykku en þó handhægu bókar. Styrjaldir og plágur, stórslys
og glæstir sigrar, kreppur og framfaraskeið, allt er þetta að
finna í bókinni. Gífurlegur fjöldi mynda prýðir bókina og
gerir hana að dýrgrip fyrir hvert heimili.
fyrir hvert heimili
Flettiopnur
um stærstu atburði sögunnar.
Rammagreinar
auka við megintexta
með athyglisverðum og
mikilvægum upplýsingum
um einstaka atriði.
Tímalínur
vísa til helstu
atburða efnisins.
Myndanúmer
koma fram í textanum og
setja meðfylgjandi myndir
í sögulegt samhengi.
Mannanöfn
í textanum tengjast öðrum
blaðsíðum með nafnaskrá
aftast í bókinni.
Inngangur meginkafla
er úrdráttur efnisþátta hvers kafla, sem getur náð yfir 2-12 síður.
Inngangur blaðsíðna
er efnisúrdráttur hverrar síðu.
Kaflaheiti
er efst á hverri síðu.
Litaðar spássíur
vísa í tímabil.