Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Page 64
Alþýðunnar
rödd brostin?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Kvef og hálsbólga eru höfuðóvin-
ir útvarpsfólks,“ segir Arnþrúður
Karlsdóttir á Útvarpi Sögu sem varð
fyrir því óláni í gær að fá hóstakast í
beinni útsendingu.
Arnþrúður var í miðju samtali við
hlustanda í símatíma Útvarps Sögu
þegar hún skyndilega byrjaði að hósta
og kom ekki upp orði, snögglega var
skipt yfir í auglýsingar. Ekkert meira
heyrðist frá Arnþrúði í útvarpinu
þann daginn. „Ég er bara orðin lasin.
Ég fór heim eftir þetta, stakk mér und-
ir sæng og er búin að sofa vel,“ sagði
hún þegar DV náði tali af henni seinni
hluta gærdags.
Útvarp Saga er einna helst þekkt
fyrir umræðuþætti þar sem farið er
yfir þjóðmálin. „Ég spilaði óvenju mik-
ið af tónlist miðað við það sem ég er
vön,“ segir hún en fastur símatími var
á sínum stað. Hlustendur Arnþrúðar
höfðu margir áhyggjur af heilsu henn-
ar en hún fullvissar þá um að hún snúi
brátt aftur í fullu fjöri. „Ég er búin að
taka vítamín og slappa af. Ég verð orð-
in brött í fyrramálið,“ sagði hún í sam-
tali við DV. „Það er svo mikið að gerast
að maður má ekki vera að því að vera
veikur,“ segir Arnþrúður borubrött
enda alltaf með puttana á þjóðarpúls-
inum. erla@dv.is
Nokkrar staðreyndir um Versicherungskammer Bayern
(Bayern Líf) sem er samstarfsaðili Sparnaðar
Tilheyrir hópi fjármálafyrirtækja þýsku sparisjóðanna sem er öflugasti samstarfsvettvangur á sviði
fjármálaþjónustu í Þýskalandi með yfir 50 milljónir viðskiptavina
Er stærsta opinbera tryggingarfélagið innan hóps fjármálafyrirtækja þýsku sparisjóðanna og sérhæfir
sig á kjarnasviðunum „lífeyrir“ og „tryggingar“
Sparisjóðirnir í Þýskalandi eru tryggðir í gegnum ábyrgðarsamtök sem borin eru uppi af S – Finanzgruppe
Nokkrar staðreyndir um ,,Séreign’’ viðbótarlífeyrissparnað sem
Sparnaður býður í samstarfi við Versicherungskammer Bayern (Bayern Líf) á Íslandi.
Enginn upphafskostnaður
Tryggð ávöxtun
Vextir eru reiknaðir mánaðarlega
Bókaðu tíma hjá ráðgjafa okkar í síma 577 2277 eða á sparnadur@sparnadur.is
Holtasmári 1 201 Kópavogur
Sími: 5772025 www.sparnadur.is
Arnþrúður Karlsdóttir á Útvarpi Sögu má ekki vera að því að vera veik:
Kjaftstopp í beinni útsendingu
n Sprengjuhöllin og Hjaltalín spila
á tvennum tónleikum á Austfjörð-
um um helgina. Þar sem Sigríður
Thorlacius, söngkona Hjaltalín,
er vant við látin um helgina hefur
engin önnur en Andrea Gylfadóttir
verið fengin til að hlaupa í skarð-
ið. Það má að sjálfsögðu búast við
að Hjaltalín taki vinsælasta lag sitt
og jafnframt vinsælasta lag sumars-
ins, Þú komst við hjartað í mér, sem
sveitin fékk að láni frá Páli Óskari
en lagið var samið af tónlistarmann-
inum Togga. Um daginn
tók hljómsveitin Retro
Stefson sig til og skellti
sinni útgáfu af laginu
inn á Youtube og með
því að Andrea syngur
lagið á móti Högna í
Hjaltalín hafa sex
þekktir tónlist-
armenn sungið
lagið frá því í
byrjun sumars.
n Saga Róberts Leós Erlendsson-
ar, níu ára drengs frá Akranesi sem
svikinn var af BT um Playstation
Portable-tölvu, snerti hjörtu lands-
manna. Þáttarstjórnendur Harma-
geddons, Frosti og Þorkell Máni,
voru engin undantekning.
Þegar þeir heyrðu að
raftækjaverslunin Elko
hefði afhent Róberti
glænýja PSP-tölvu
í gær tóku þeir
sig til og gáfu
honum sjö leiki
í nýju tölvuna.
Róberti brá
er hann fékk
fréttirnar. „Í al-
vöru?“ sagði Ró-
bert gapandi og
trúði varla sínum
eigin eyrum.
RoKKaRaR
styðja RóbeRt Leó
n Íslenskir tónlistarmenn verða að
gera sér að góðu að minni líkur eru
á að þeir vinni til verðlauna á næst-
unni en hingað til. Breytingar hafa
verið gerðar á fyrirkomulagi við val
á tilnefningum og sigurvegurum á
Íslensku tónlistarverðlaununum.
Þær fela meðal annars í sér fækkun
verðlaunaflokka í dægurtónlist þar
sem hún hefur þótt ruglingsleg. Nú
verður sigurvegari í flokki popp-
/rokktónlistar einn í stað þriggja
áður. Þessu fylgir að tilnefningar
verða nokkru fleiri, eða að
minnsta kosti fimm í
þeim flokki. Aðrar
breyting-
ar eru til
að mynda
þær að ein verð-
laun verða veitt fyrir
„Rödd ársins“ í stað
söngvara og söngkonu
áður. Þá verða ein
verðlaun veitt fyrir
höfund ársins og
ein sameiginleg
verðlaun allra
flokka fyrir
flytjanda
ársins.
nú fæKKaR
gLeðibRosum
enn einn
söngvaRinn
Fór veik heim arnþrúður karlsdóttir fór
ekki varhluta af kvefpestinni sem hrjáir
landann þessa dagana en mætti engu að
síður í útvarpið. Mynd SteFán KArlSSon