Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Qupperneq 12
mánudagur 1. desember 200812 Fréttir
Líf kvenna LítiLs virði
Ekkert lát virðist vera á svokölluðum
„sæmdardrápum“ í Basra í Írak. Þvert á
móti hefur þeim fjölgað um sjötíu prósent
á þessu ári miðað við 2007. Þrátt fyrir að í
flestum tilfellum liggi ljóst fyrir hver hafi
framið slíkt morð er ekki hægt að merkja
fjölgun sakfellinga. Fjölskyldufeður leita
í auknum mæli til leigumorðingja til að
myrða kvenfólk sem að þeirra mati hafa
fært skömm yfir fjölskylduna. Líf kvenna
í Basra er ekki mikils virði.
Svonefndum „sæmdardrápum“ hef-
ur fjölgað um sjötíu prósent í Basra í
Írak á þessu ári. Stjórnvöld hafa við-
urkennt að það sé þeim um megn að
stemma stigu við morðum af þessum
toga.
Sakfellingum vegna þessara
morða hefur ekki fjölgað og það sem
af er þessu ári hefur áttatíu og ein
kona verið myrt fyrir að hafa fært
meinta skömm yfir fjölskyldu sína.
Aðeins fimm hafa verið sakfelldir.
Árið 2007 reiknaðist öryggisnefnd
Basra til að fjörutíu og sjö „sæmdar-
dráp“ hefðu verið framin, og það ár
voru þrír sakfelldir fyrir slík morð.
Lögfræðingur einn í bænum heldur
því fram að lögreglan haldi hlífiskildi
yfir ódæðismönnunum og að leigu-
morðingjar tækju jafnvel ekki meira
en sem nemur um fimmtán þúsund
krónum fyrir að myrða konur í Basra.
Vinátta kostaði lífið
Morðið á hinni sautján ára Rand
Abdel-Qader í apríl vakti hörð við-
brögð víða um heim. Í ljósi þess
fjölda „sæmdardrápa“ sem framin
hafa verið í Basra virðist sem reiði
alþjóðasamfélagsins hljóti lítinn
hljómgrunn í Írak.
Rand Abdel-Qader var myrt af
föður sínum vegna þess að hún hafði
orðið ástfangin af breskum hermanni
í Basra, en þeir fjögur þúsund bresku
hermenn sem voru í Basra yfirgáfu
bæinn í september síðastliðnum.
Rand Abdel-Qader hafði myndað
vináttutengsl við hermann sem hún
þekkti undir nafninu Paul, og þegar
fjölskyldan komst að því kæfði faðir
hennar hana og stakk hana ítrekað
með hnífi. Faðir hennar, Abdel-Qad-
er Ali, var handtekinn en síðar sleppt
án ákæru. Eiginkona hans, og móð-
ir Rand Abdel-Qader, skildi við hann
og fór í felur. En það var skamm-
góður vermir því hún var skotin af
óþekktum manni nokkrum vikum
síðar. Í viðtali við breska blaðið Ob-
server sagði faðir Rand Abdel-Qader
að lögreglan hefði óskað honum til
hamingju með drápið á dóttur hans.
Lögreglan sleppir
ódæðismönnum
Síðan Rand Abdel-Qader var myrt
hefur ástandið í Basra aðeins versn-
að í þessu tilliti, að sögn lögfræðinga
í bænum. Ali Azize Raja’a, írakskur
lögfræðingur, hefur sótt mál vegna
þrjátíu og tveggja „sæmdardrápa“
síðan 2004. Hann sagði að þrátt fyr-
ir nægar sannanir fyrir því hver hefði
framið hvert þeirra þrjátíu og tveggja
morða, hefði hann aðeins unnið
eitt mál. Að mati Ali Azize Raja’a er
stærsta málið sú ákvörðun lögregl-
unnar að sleppa ódæðismönnum
úr haldi, og af hverjum tíu sem eru
grunaðir hafa sjö yfirgefið Basra, og
lítil eða engin tilraun gerð til að leita
þá uppi.
Talið er að faðir Rand Abdel-Qad-
er sé einn þeirra sem yfirgefið hafa
Basra. Hann var í haldi lögreglunn-
ar í aðeins tvær klukkustundir. Ekki
er loku fyrir það skotið að viðskipta-
maður einn, sem hafði lýst föðurn-
um sem „hugrökkum“ manni hafi
látið fé af hendi rakna til föðurins og
tveggja sona, sem afneituðu móður
sinni þegar hún mótmælti morðinu
á Rand Abdel-Qader.
Líf kvenna lítils virði
Annar írakskur lögfræðingur, sem
ekki vildi láta nafns síns getið, sagði í
viðtali við breska blaðið Guardian að
feður væru í auknum mæli farnir að
leita til leigumorðingja til að fram-
kvæma „sæmdardrápin“, sem síðan
væru stimpluð sem morð af trúar-
legum toga. „Líf þessara kvenna er
ekki meira virði en sem nemur eitt
hundrað bandaríkjadölum. Þú getur
fundið drápsmann á hverri kaffistofu
í Basra sem ræðir virði hvers lífs líkt
og hann væri að kaupa kjötstykki,“
sagði fyrrnefndur lögfræðingur.
Mariam Ayub Sattar, sem berst
fyrir réttindum kvenna í Basra, sagði
að hver sú kona sem staðin væri að
því að ræða við karlmann, sem ekki
væri eiginmaður hennar eða ættingi,
væri álitin vændisköna og henni
refsað. Fyrir tveimur vikum var sýru
skvett í andlit þriggja kvenna sem
voru staddar á markaði í Basra, eftir
að þær höfðu gefið sig á tal við karl-
kyns vin, sagði Sattar.
Við ramman reip að draga
Níu af tólf sjálfboðaliðssamtökum
hafa lagst af síðan innrásin var gerð í
Írak. Samband kvenréttindasamtaka
í Basra neyddist til að hætta starf-
semi í kjölfar líflátshótana vegna eft-
irmála morðsins á móður Rand Ab-
del-Qader í maí. Tvær þeirra kvenna
sem höfðu hjálpað móður Rand að
dyljast særðust.
Mannréttindaráðuneyti Íraks
vinnur að nýjum verkefnum sem
miða að því að binda enda á kynja-
misrétti í landinu, að sögn Hameed
Walled. En þar er við ramman reip að
draga, sagði Walled, því þó að lögð sé
áhersla á jafnrétti kynjanna í skólum
landsins hafi það lítið að segja ef for-
eldrar kenna hið gagnstæða innan
veggja heimilisins.
Þýska þjóðin stendur frammi fyrir
miklum jólasveinaskorti í aðdrag-
anda jólanna. Nýliðar í stéttinni
standast ekki kröfur um gleðilegt fas
og fagmennsku, sem gerðar eru til
jólasveina.
Atvinnuskrifstofur leita nú log-
andi ljósi að nýliðum, en hafa til-
kynnt að áþreifanlegur skortur sé á
mjúkholda, glaðværum síðskeggj-
uðum jólasveinum með hreint saka-
vottorð.
Það er greinilega ekki létt verk og
löðurmannlegt að vera jólasveinn
og á meðal þess sem þarf að prýða
þessa gleðigjafa aðventu og jóla í
Þýskalandi er viðeigandi lágur róm-
ur, barngæska, gott vald á þýskri
tungu, og viðamikil kunnátta í jóla-
ljóðum og jólasöngvum. Til að full-
komna myndina verða þeir einnig
að vera færir um spuna og búa yfir
orku.
Það nægir ekki að geta afhent
jólapakka, jólasveinarnir þurfa að
vera trúverðugir þegar þeir útskýra
fyrir börnunum fjarveru jólasleð-
ans og hreindýranna, og það krefst
sterkra tauga að eiga við óþolinmóð
börn.
Jólasveinar hafa aldrei verið jafn-
eftirsóttir í Þýskalandi því fjölskyld-
ur reyna að fanga jólaandann mitt
í skugga efnahagsvandamálanna
sem nú hvílir víða yfir. Í Berlín liggja
fyrir um fimm þúsund pantanir á
jólasveinum fyrir einkauppákom-
ur, skóla og verslunarmiðstöðvar.
Um fimm hundruð sveina þarf til
að anna þeim pöntunum, og enn
vantar eitt hundrað og fimmtíu jóla-
sveina.
Svipaða sögu er að segja um
ástandið í München og Hamborg og
það er mat þeirra sem til þekkja að
hinar miklu kröfur sem gerðar eru
til jólasveinanna valdi því að færri
sækjast eftir starfanum.
Jens Wittenberger, sem sér um
ráðningu jólasveina hjá Jobcafe í
München, segir að þeir séu fáir sem
búi yfir þeim eiginleikum sem prýða
jólasvein. Nýliðar á hans snærum
fá stífa þjálfun, til dæmis í að svara
spurningum á borð við: „Af hverju
virðist skeggið þitt vera gervi?“
Jólasveinar í Þýskalandi geta þén-
að allt að sextíu evrum á klukkutíma,
en það samsvarar tæpum ellefu þús-
und íslenskum krónum.
Jólasveinar eftirsóttari en nokkru sinni fyrr vegna efnahagskreppunnar:
Jólasveinaskortur í Þýskalandi
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Má selja sarkozy-
vúdúdúkku
Áfrýjunardómstóll í Frakklandi
hefur úrskurðað að leyfilegt sé
að selja Nicolas Sarkozy-vúdú-
dúkkur, en með því skilyrði að
á þeim sé límmiði sem segi að
dúkkan sé móðgun við hann.
Dómari við áfrýjunardóm-
stólinn sagði að sú athöfn að
stinga prjóni í dúkkuna jafngilti
móðgun við forsetann, en þó
væri ekki viðunandi að banna
sölu hennar. Í síðasta mánuði
úrskurðaði annar dómstóll gegn
banni við sölu á dúkkunni því
hún væri „innan ramma tjáning-
arfrelsis og réttar til kímni“.
Framleiðandi dúkkunnar
gerði svipaða dúkku af kepp-
anda Sarkozys í síðustu forseta-
kosningum, Segolene Royal, en
hún ákvað að hafast ekkert að.
„Ég hef kímnigáfu,“ sagði hún.
Jógúrt gegn
krabba
Samkvæmt vísindamönnum við
Karólínsku stofnunina í Stokk-
hólmi í Svíþjóð er hægt að draga
úr líkum á krabbameini, allt að
fjörutíu prósentum, með neyslu
jógúrtar.
Niðurstaða vísindamann-
anna byggist á viðamikilli rann-
sókn sem náði til 82.000 manns,
sem vísindamennirnir fylgd-
ust náið með um níu ára skeið.
Rannsóknin sýnir að konur sem
neyta tveggja mála af jógúrt geta
dregið úr líkum á blöðruháls-
krabbameini um 45 prósent, og
karlmenn um 36 prósent.
Aðrar mjólkurafurðir hafa,
samkvæmt rannsókninni, ekki
sömu fyrirbyggjandi áhrif.
vildu toppa
11. september
Mohammad Ajmal Qasam, eini
eftirlifandi hryðjuverkamaður
árásanna í Mumbaí á Indlandi,
hefur upplýst þarlend yfirvöld
um að markmið aðgerðanna
hafi verið að drepa fimm þús-
und manns.
Hryðjuverkamennirnir voru
að hans sögn tíu, og ætlun
þeirra var að framkvæma ódæði
sem tæki árásunum í New York,
Pennsylvaníu og Washington
árið 2001 fram.
Indversk stjórnvöld eru þess
fullviss að hryðjuverkamenn-
irnir hafi fengið fyrirmæli frá
Pakistan í gegnum farsíma á
meðan á umsátrinu stóð. Hátt í
tvö hundruð manns misstu lífið
í aðgerðum hryðjuverkamann-
anna.
Þýskur jólasveinn albert niemeyer hefur
staðið vaktina í 55 ár.
KoLbeinn Þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
ráðstefna um ofbeldi gegn
konum Fjölgun „sæmdardrápa“ í
basra í Írak nemur sjötíu prósentum.