Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Blaðsíða 22
mánudagur 1. desember 200822 Fólkið
Önnur sólóplata Ragnars Sólbergs,
forsprakki sveitarinnar Sign kemur
út á morgun 2. desember. Platan hef-
ur hlotið heitið The Circle. Ragnar
er ekki sá eini sem gefur út plötu á
þessum degi því poppstjarnan Britn-
ey Spears gefur einnig út breiðskífu á
þessum degi. Þeirrar plötu er beðið
með mikilli eftirvæntingu
en aðdáendur Ragnars
eru án efa ekki síður
spenntir. En útgáfu-
dagurinn er ekki það
eina sem þau deila.
Bæði tvö eiga af-
mæli á þessum
sama degi. Lítill
heimur.
„Nokkrar konur fengu frítt kort í
ræktina,“ segir Linda Pétursdóttir,
eigandi Baðhússins. „Við gerðum
ráð fyrir því að við myndum gefa
sem samsvaraði andvirði nokkurra
korta og ég geri það með stolti,“ segir
Linda. Átakið Baðhúsið borgar fyrir
aukakílóin fór langt fram úr björt-
ustu vonum Lindu. En viðskiptavinir
Baðhússins fengu 750 króna afslátt
fyrir hvert aukakíló fram yfir kjör-
þyngd. Ákveðið hefur verið að fram-
lengja átakið fram til 4. desember
næstkomandi. „Mér finnst rosalega
gaman að geta gefið konum kort,
sérstaklega stórum konum sem ekki
hafa treyst sér til að koma fram að
þessu eða ekki haft efni á því,“ segir
Linda. Konur af öllum stærðum og
gerðum eru velkomnar í Baðhúsið
segir Linda og er stöðin með sérstök
hlaupabretti sem geta tekið allt að
180 kílóum.
Ég er ekki
pabbi minn
„Ég hef fullan rétt á því að segja mína
skoðun og ég stend með öllu sem ég
skrifa,“ segir Helga Lára Haarde pistla-
höfundur á deiglan.com og dóttir Geirs
H. Haarde forsætisráðherra. Helga Lára
hefur vakið mikla athygli fyrir pistla
sína á Deiglunni og ekki síst í þeim síð-
asta þar sem hún talar um framferði ís-
lenskra fjölmiðla undanfarið.
„Ég er ekki pabbi minn. Ég svara
ekki fyrir hann og hann svarar ekki fyr-
ir mig,“ segir Helga Lára en í skoðana-
kerfi Deiglunnar hafa margir gert því
skóna að Helga ætti ekki að vera skrifa
slíka pistla sökum fjölskyldutengsla
við forsætisráðherrann. Að sama skapi
hafa margir lýst yfir stuðningi sínum við
Helgu og hvatt hana til dáða. „Þó svo að
við komum úr sömu fjölskyldu hef ég
rétt á því að tjá mig og ég læt ekki kúga
mig í því sambandi.“
Helga segir að hver og einn verði að
gera það upp við sig hvort hann setji
innihald pistla hennar í samband við
það sem pabbi hennar sé að gera í emb-
ætti. „Ég hef mikinn áhuga
á fjölmiðlum. Ég er í sál-
fræði í HÍ og þeir eru eitt
af mínum áhugamálum.“
Í pistli sínum skrifar Helga
um mikið vald fjölmiðla og
hversu vandmeðfarið það
sé. „Mér finnst fjölmiðl-
ar stundum þurfa að vara
sig að skapa ekki múgæs-
ing. Huga að framsetningu
frétta og hvernig sagt er frá
hlutunum því fólk trúir því
sem það sér í fjölmiðlum
og það sem meira er það
treystir því.“
Aðspurð hvað stjórnvöld
geti gert til þess að bæta sig
gagnvart fjölmiðlum og al-
menningi segir Helga það
ekki sitt að svara. „Það væri
bara óskand að allir þessir
aðilar gætu bætt samskipti
sín á milli.“
Helga segir það oft hafa
verið erfitt að fylgjast með
föður sínum af hliðarlínunni
undanfarna mánuði. „Það
er samt alveg tvennt ólíkt,
stjórnmálamaðurinn Geir Haar-
de og pabbi minn. Ég reyni að
halda því aðskildu en auðvitað
er ekkert alltaf auðvelt að heyra
hvernig fólk talar. Maður reyn-
ir að hugsa ekki um það. Ég veit
hins vegar að hann er að gera sitt
allra besta og mér finnst hann hafa
staðið sig vel. Að standa undir svona
pressu er ekki allra.“ Helga segir fólk
stundum eiga erfitt með að greina
milli embættisins og persónunnar.
„Pabbi verður auðvitað að geta tek-
ið gagnrýni sem stjórnmálamaður
en þegar fólk fer að koma með per-
sónulegar árásir eins og hann sé fífl
hættir maður líka að hlusta. Eins og
til dæmis með pistilinn þegar ein-
hver segir mér að fara ofan í skurð
og drepast. Svoleiðis dæmir sig
bara sjálft,“ segir Helga kokhraust
að lokum og ætlar að halda áfram
að segja sína skoðun á málunum
á deiglan.com.
asgeir@dv.is
Pistlar Helgu Láru, dóttur Geirs Haarde, hafa
vakið athygli en hún segist hafa rétt á sinni
skoðun eins og aðrir. Helga segir stjórn-
málamanninn Geir Haarde og pabba
hennar vera tvennt ólíkt. Hún lætur
lágkúruleg skot lítið á sig fá og ætlar að
skrifa óhrædd áfram.
„Það hefur bara allt gengið vel fyrir
utan vesenið með farangurinn henn-
ar,“ segir Ívar Erlendsson, faðir Alex-
öndru Helgu Ívarsdóttir, ungfrú Ís-
lands sem nú er stödd í Suður-Afríku
þar sem keppnin um ungfrú heim fer
fram 13. desember.
Alexandra millilenti í London á
leið sinni til Suður-Afríku í síðustu
viku og lenti í því óhappi að fá bara
að fara með aðra ferðatöskuna sína af
tveimur með sér á áfangastað þar sem
hún var með yfirvigt.
„Ég er að vonast til þess að task-
an sé að detta í hús hjá okkur. Kjóll-
inn sem hún á að vera í á aðalkvöld-
inu er í töskunni og þjóðbúningurinn
líka svo það er eins gott að taskan skili
sér,“ segir Ívar sem lenti í Suður-Afríku
síðastliðinn föstudag.
„Alexandra er búin að skemmta
sér rosalega vel og er núna stödd í
tíu daga safaríferð þar sem þær hafa
meðal annars verið að skoða dem-
anta og sofa í tjöldum. Það var nú
ekki rafmagn í ferðinni á tímabili svo
stúlkurnar gátu ekki notað neinar hár-
þurrkur eða rafmagnsgræjur,“ segir
Ívar sem að vonum er stoltur af dótt-
ir sinni enda er henni spáð tuttugasta
sæti í keppninni af veðbönkum.
„Ég sé hana ekki fyrr en eftir viku
þegar hún kemur til baka úr ferðinni.
Ég skellti mér sjálfur í safarí-veiði-
ferð svo það gaf manni ennþá meiri
ástæðu til að koma hingað út og fylgj-
ast stoltur með Alexöndru.“
Þess má geta að á morgun, þriðju-
dag klukkan fimm, fara fram prufur á
Broadway fyrir keppnina um Ungfrú
Reykjavík 2009.
krista@dv.is
búningurinn týndist
FaranGur unGFrú Ísland skilaði sér ekki til suður-aFrÍku:
Farangurinn skilar sér vonandi brátt
Pabbi alexöndru Helgu er kominn út og
vonar að taskan fari að detta í hús.
Helga lára Haarde
deila
afmælisdegi
Hvetur
stórar konur
Geir H. Haarde Helga segir
pabba sinn leggja sig allan
fram og geri sitt besta.
Helga Lára Haarde Þrátt
fyrir sterkan svip segist Helga
ekki svara fyrir pabba sinn og
hann ekki fyrir hana.