Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 FRÉTTIR
Lögregla leggur frá sér óleyst mál varðandi íkveikju á Range Rover-bíl í fyrra:
Rannsókn hætt á bílbrunanum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hef-
ur hætt rannsókn á bílbruna Wipeo-
ut-hjónanna Friðriku Geirsdóttur fjöl-
miðlakonu og Stefáns H. Hilmarssonar,
fyrrverandi fjármálastjóra Baugs. Mál-
ið er enn óleyst og verður nú lagt til
hliðar af hálfu lögreglunnar.
Það var í ágúst í fyrra sem hvít-
ur Range Rover-glæsibíll þeirra Frið-
riku og Stefáns brann til kaldra kola
skömmu eftir miðnætti. Hún gaf í fyrstu
þá skýringu að um rafmagnsbilun
hefði verið að ræða en lögregla komst
fljótt að þeirri niðurstöðu að þetta væri
íkveikja. Bíllinn stóð fyrir utan hús
þeirra hjóna við Laufásveg 68 í Reykja-
vík en upptökur úr eftirlitsmyndavél-
um sýndu þrjá grunsamlega menn á
vettvangi. Fyrst sáust þeir ganga í átt
að bílnum og síðar koma hlaupandi til
baka. Myndavélarnar sýna síðan einn
þremenninganna koma aftur á bruna-
stað þegar slökkvistarf fór fram.
Friðrik Björgvinsson, yfirmaður
rannsóknardeildar lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, staðfestir að rann-
sókn brunans sé nú hætt. Aðspurður
segir hann nokkra hafa verið yfir-
heyrða án þess
að hægt hafi
verið að leysa
málið. „Ég
held að það
hafi ekki verið
að frumkvæði
eigendanna
sem rannsókn-
inni var hætt heldur
var málið óupplýst. Það
er enginn ákveðinn grunur
í málinu en að sjálfsögðu verð-
ur rannsóknin tekin upp að nýju ef
nýjar upplýsingar berast,“ segir Friðrik.
Þau Friðrika og Stefán sjá væntan-
lega eftir Range Rovernum en þau aka
aftur á móti um á annarri glæsibifreið
í staðinn. Séð og Heyrt greindi frá því
í október að þau væru nú á glæsijeppa
af gerðinni Cadillac Escalade Luxury.
trausti@dv.is
Bíllinn brann
Friðrika hélt
í fyrstu að
rafmagnsbilun
hefði valdið
brunanum en
lögregla sá fljótt
að um íkveikju
var að ræða.
Flottir bílar Friðrika
og Stefán áttu hvítan
Range Rover en aka nú
um á flottum Cadillac
Escalade Luxury.
ÖNNUR TILRAUN FAR-
IN ÚT UM ÞÚFUR
n Seinni tilraun Skjás eins til að
bjóða upp á fréttir er runnin út
í sandinn á enn skemmri tíma
en fréttastof-
an sem fylgdi
Skjá einum í
árdaga hennar.
Fréttatíminn
sem unninn
hefur verið í
samvinnu við
Morgunblaðið
fór í loftið seint
á síðasta ári og
hefur því ekki verið nema örfáa
mánuði í loftinu. Í upphafi var sagt
að kostnaður við fréttirnar yrði
ekki mikill þar sem báðir miðlar
gætu notað vannýtta þætti í starfi
sínu til starfseminnar. Nú er hins
vegar ljóst að þetta gekk ekki og
fréttatíminn náði ekki að vinna
hylli áhorfenda. Starfi þeirra Hlyns
Sigurðssonar og Ingu Lindar
Karlsdóttur lýkur því um það leyti
sem þau fá að gæða sér á páska-
eggjunum.
RISINN TIL VARNAR
BÍLEIGENDUM
n Stundum hefur verið sagt að
undanförnu að kreppunni hafi
tekist það sem hvorki talsmönn-
um almenningssamgangna né
andstæðingum
einkabílisma
tókst, nefnilega
að fá landsmenn
til að draga
úr bílnotkun
sinni. Síhækk-
andi bensín-
verð hefur haft
mikil áhrif og
eftir að bens-
ínverðið rauf í fyrsta skipti 200
króna múrinn virðist það ætla að
hækka hratt. Nú er Runólfur Ól-
afsson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra bifreiðaeigenda, kominn
á kreik og fordæmir síðustu hækk-
anir. Hann kom fram í síðdegis-
útvarpi Rásar 2 á fimmtudag og
sagði að Olís væri farið að hækka
álagningu því gengi krónunnar
og innkaupsverð dygði ekki til að
skýra síðustu hækkanir.
ÚRINU STOLIÐ
n Guðni Ágústsson, fyrrverandi
ráðherra, var fórnarlamb þjófa í
útiklefa sundlaugarinnar á Sel-
fossi um hábjartan dag í síðustu
viku. Á með-
an Guðni var í
sundi stal þjófur
úri úr vasa á föt-
um hans. Guðni
fjallar um málið
í héraðsblaðinu
Dagskrá á Suð-
urlandi. Hann
sér eftir úrinu
og vill gjarnan
fá það aftur: „Helgur gripur fyrir
mig, stálúr sortin „Guess“. Úr sem
Margrét mín gaf mér í afmælis-
gjöf.“ Eins og sönnum stjórnmála-
manni sæmir er Guðni tilbúinn að
koma til móts við þann sem hann
hefur lent í rimmu við og hvetur
þjófinn til að skila úrinu: „Renndu
því inn um blaðalúguna hjá mér,
góði, þá verða syndir þínar fyrir-
gefnar.“
ÁSDÍS EFINS
Í AUSTURRÍKI
n Vistaskipti Garðars Gunnlaugs-
sonar, knattspyrnukappa af Skag-
anum, sem nú iðkar knattlist sína í
Austurríki virðast ekki ætla að hafa
uppbyggileg áhrif á feril eiginkonu
hans, fyrirsætunnar og ofurbomb-
unnar Ásdísar Ránar Gunnarsdótt-
ur. Í það minnsta lýsir hún ekki
mikilli trú á framavonir í Austur-
ríki eftir stutta heimsókn þangað í
pistli sem hún ritar á vefsvæði sitt
á Pressunni. „Það er ekki mikill
glamour heimur þarna eins og litla
Hollywood hér í Búlgaríu svo ég ef-
ast um að ég eigi eftir að vinna ein-
hver stórvirki í módelbransanum í
Austurríki,“ segir Ásdís. Hún bætir
því þó við að það sé aldrei að vita.
SANDKORN Fjölskyldufaðirinn Þórður Magnússon segir að stjórnvöld hafi enn ekki viðurkennt
forsendubrest þegar kemur að skuldavanda heimilanna. Greiðsluviljinn fari þverr-
andi. Stjórnvöld tilkynntu í vikunni fjölmörg úrræði sem eiga að auðvelda fólki að
vinna úr skuldum sínum.
VERIÐ AÐ HJÁLPA ÞEIM
SEM ERU DRUKKNAÐIR
„Ég hringdi í Ráðgjafarstofu heimil-
anna í morgun [fimmtudag] og spurði
hvað þeir gætu núna gert fyrir mig.
Svarið var: „Ekkert.“ Það hefur ekkert
breyst,“ segir tónlistarmaðurinn og
fjölskyldufaðirinn Þórður Magnússon.
Ríkisstjórnin kynnti í vikunni úr-
ræði til lausnar greiðsluvanda heim-
ilanna en með þeim gaf ríkisstjórnin
það út að hún teldi sig hafa náð utan
um vandann. Stefnt er að því að á ann-
an tug nýrra úrræða nái fram að ganga
á næstunni en Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra sagði, eftir kynn-
ingu á aðgerðunum, að ríkisstjórn-
in hefði gripið til um fjörutíu aðgerða
vegna skuldsetningar heimilanna, allt
frá hruni. Aðgerðirnar nú væru síðustu
svör ríkisstjórnarinnar.
Enn má ekkert út af bregða
DV ræddi við Þórð í febrúar en hann
rekur sjö manna heimili ásamt konu
sinni. Hann sagði frá því að ekkert
mætti út af bregða ef fjölskyldan ætti
að ná endum saman um mánaðamót.
Brotin tönn, með tilheyrandi kostn-
aði, gæti riðið fjárhag fjölskyldunnar
að fullu. „Maður er með hnút í magan-
um um hver mánaðamót,“ sagði hann
en honum var tjáð í vetur að hann væri
ekki nægjanlega illa staddur til að geta
farið í skuldaaðlögunarferli.
Þórður segir nú að nýboðaðar að-
gerðir breyti engu fyrir fólk sem berst
í bökkum. „Það er verið að hjálpa fólk-
inu sem þegar er drukknað en ekki
þeim sem eru enn á lífi,“ segir hann og
segir að ráðin feli í sér miklar réttar-
bætur fyrir fólk sem er í miklum van-
skilum og stefnir í gjaldþrot. Verið sé
að auðvelda fólki að fara á hausinn
og það sé út af fyrir sig jákvætt. Ríkis-
stjórnin hafi hins vegar enn ekki viður-
kennt forsendubrestinn sem orðið hafi
á lánum. Bæta verði fólki þann skaða
sem af hruninu hlaust.
„Ég sé ekki að hægt sé að gera það
með neinni annarri aðgerð en al-
mennum afskriftum,“ segir Þórður
spurður hvað hann vilji að ríkisstjórn-
in geri í skuldavanda heimilanna.
Hann segir að hvatinn til að borga fari
dvínandi. „Hingað til höfum við sam-
tals unnið um 300 prósent starf til að
geta búið í sómasamlegu húsnæði þar
sem hvert barn hefur eigið herbergi.
Það var aðalhvatinn að vinnufram-
lagi okkar,“ segir Þórður. Hann segist
stundum velta því fyrir sér hvort það
borgi sig hreinlega að hætta að borga
og láta bankann taka eignirnar. Þeir
sem séu í skilum fái enga aðstoð, jafn-
vel þótt þeir sjái ekki fram úr skuldun-
um. „Greiðsluviljinn er að fara,“ segir
hann.
Skila má annarri íbúðinni
Á fundinum var meðal annars tilkynnt
að greiðsluaðlögunin myndi færast frá
dómsmálaráðuneyti til félagsmála-
ráðuneytisins. Með því væri verið að
endurspegla þá viðurkenningu að um
félagslegt úrlausnarefni væri að ræða.
Þá verður embætti umboðsmanns
skuldara komið á laggirnar en hlut-
verk þess verður að gæta hags lántak-
enda og hafa milligöngu um samskipti
við lánardrottna. Bankarnir munu
fjármagna embættið með sérstökum
skatti sem á þá verður lagt.
Á meðal helstu aðgerða má einnig
nefna að hóflegar niðurfellingar lána
verða skattfrjálsar en stórfelldar nið-
urfellingar verða skattlagðar. Annað
úrræði er að þeir sem sitja uppi með
tvær íbúðir, vegna hrunsins, geta feng-
ið að skila annarri íbúðinni til bankans
án eftirmála. Fólk sem missir hús sín
í nauðungarsölu getur fengið að búa
þar í eitt ár, gegn húsaleigu. Þá leggur
ríkisstjórnin til að við nauðungarsölur
verði markaðsverð eigna ávallt dregið
frá kröfu, en ekki það verð sem fékkst
á uppboði, svo helstu aðgerðir séu
nefndar.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
n Fólk getur búið í íbúðum sínum í eitt ár eftir gjaldþrot eða nauðungarsölu.
n Embætti umboðsmanns skuldara verður stofnað. Embættið á að gæta hagsmuna
skuldara en bankarnir fjármagna það.
n Fólk sem situr uppi með tvær íbúðir getur skilað annarri íbúðinni án eftirmála.
n Hóflegar niðurfellingar skulda verða skattfrjálsar en stórfelldar niðurfellingar
skattlagðar.
n Íbúðalánasjóður kemur á laggirnar nýju kaupleigukerfi.
n Draga á úr vægi verðtryggingar með því að auka framboð af óverðtryggðum lánum.
Helstu úrræðin
Breytir engu Þórður Magnússon
segir nýkynnt úrræði engu breyta
fyrir skuldsett heimili sem berjist
við að láta enda ná saman.
MYND SIGTRYGGUR ARI