Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 FRÉTTIR Agnes Bragadóttir, blaðakona á Morgunblaðinu, fékk boð um ókeypis flug til Minneapolis í Bandaríkjunum í boði flug- og fjár- festingafélagsins FL Group í októb- er árið 2005. Blaðakonan dvaldi í Minneapolis í tæpan mánuð. Þetta kemur fram í tölvupósti frá stjórnanda FL Group til und- irmanns síns sem dagsettur er 11. október árið 2005. DV hefur tölvu- póstinn undir höndum. Í honum biður stjórnandinn undir- mann sinn að ganga frá fluginu til Minn- eapolis fyrir Agn- esi. Heimild- ir DV herma að Agnes hafi falast eftir frí- miða. Ekki er vitað í hvaða erinda- gjörðum Agnes ætlaði til Minn- eapolis og hún þvertek- ur fyrir að ræða tilgang ferðarinnar. FL Group var eitt stærsta fjár- festingafélagið á markaðnum hér á landi fyrir hrunið og var meðal annars stærsti hluthafinn í Trygg- ingamiðstöðinni og Glitni. Helstu forsvarsmenn þess voru Hannes Smárason og síðar Jón Ásgeir Jóhannes- son. Hannes var stjórnar- formaður þegar FL Group bauð Agnesi til Minneap- olis og tók hann við sem forstjóri félagsins rúmri viku eftir að tölvupóstur- inn var skrifaður. Um þetta leyti var FL Group að ganga frá mjög umdeild- um kaup- um á danska flugfélaginu Sterling af eignarhaldsfélaginu Fons fyrir um 15 milljarða króna og hafði Agnes Bragadóttir fjallað nokkuð um þessi viðskipti á síðum Morgunblaðsins vikurnar þarna á undan. „Smá ferð“ Agnesar Í tölvupóstinum segir stjórnandinn við undirmann sinn, sem er ónafn- greind kona, að Agnes sé að fara í smá ferð til Minneapolis 17. októ- ber 2007 og er starfsmaðurinn beð- inn um að skrá einn miða á Agnesi vegna þess að FL Group vilji styðja hana. „Við ætlum að styðja hana og bið ég þig um að setja á hana I miða,“ segir stjórnandinn í tölvu- póstinum og er nokkuð ljóst af sam- henginu að um gjöf var að ræða af hálfu FL Group til Agnesar. Þetta sést svo enn frekar á síð- ustu setningunni í tölvupóstinum en þar er starfsmaðurinn beðinn um að segja Agnesi að FL Group ætli að sjá um flugið til Minneapolis fyrir hana. „Gott væri ef þú mund- ir hringja í hana í morgunsárið og fara yfir, við tökum flugið f. hana - seigja henni það,“ sagði stjórnand- inn og er nokkuð ljóst að tölvupóst- urinn var skrifaður í nokkrum flýti þar sem margar stafsetningarvillur eru í honum. Af orðalaginu í tölvupóstinum að dæma er eins og einhverjir aðr- ir hafi styrkt Agnesi í þessari ferð hennar til Minneapolis. Ástæðan fyrir þessu er sú að stjórnandi FL Group segir „við tökum flugið fyrir hana“ en af því má álykta sem svo að einhver annar hafi séð um að greiða eitthvað annað fyrir Agnesi í þessari ferð hennar vestur um haf. Ræðir ekki málið DV hafði samband við Agnesi til að spyrja hana um boðsferðina til Minneapolis. Blaðamaður bar upp erindið við Agnesi, sagði henni að hann hefði undir höndum tölvu- póst þar sem fram kæmi að FL Group hefði boðið henni í ferð til Minneapolis árið 2005. Agnes vildi hins vegar ekki ræða erindi blaðamanns og stöðvaði hann áður en hann náði að bera upp spurningar sínar, meðal ann- ars af hverju hún hefði fengið boðs- miða frá FL Group til Minneapol- is og í hvaða erindagjörðum hún hefði verið þar. Blaðakonan endaði á því að skella á blaðamann en þar áður sagði hún: „Eins og ég hef sagt við ykkur áður þá hef ég ekkert frek- ar við ykkur að ræða og þú ferð bara með þetta nákvæmlega eins og þér býður samviskan til. Vertu blessað- ur.“ Sagði Agnes þetta nokkuð höst í símann. Í lok febrúar sagði Agnes hins vegar í samtali við DV.is, eftir að lögmaðurinn Sveinn Andri Sveins- son bloggaði um að hún þyrfti að greina frá því hversu margar boðs- ferðir hún hefði þegið frá auðmönn- um, að hún hefði aldrei þegið slíkar ferðir. „Ég hef aldrei þegið boðsferð til útlanda,“ sagði Agnes þá. Þar sem Agnes neitar að ræða málið er ekki ljóst hvort hún þáði boðsferðina sem henni stóð til boða árið 2005. Í umræðu rannsóknarnefnd- arinnar Heimildir DV herma að í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, sem væntanleg er, muni meðal ann- ars verða rætt um óeðlileg tengsl stórfyrirtækja og fjölmiðlafólks. Sú umræða mun verða í sérstök- um siðfræðihluta skýrslunnar þar sem meðal annars verður reynt að bregða ljósi á hvers eðlis fjölmiðla- umfjöllun um íslenskt viðskiptalíf var á árunum fyrir hrunið og hvort blaðamenn hafi sofnað á verðin- um gagnvart viðskiptalífinu og þá af hverju. Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum boðaði rannsóknar- nefndin ýmsa yfirmenn á fjölmiðl- um á sinn fund til að ræða við þá um íslenska fjölmiðlun á árunum fyrir hrunið. Ekki er vitað hvort fjallað verður sérstaklega um þessa ferð Agnesar til Bandaríkjanna í boði FL Group í skýrslunni en afar ólíklegt verður að teljast að svo verði þar sem boðs- ferð hennar til Bandaríkjanna á veg- um FL Group hefur ekki verið rædd áður opinberlega. Ljóst er hins veg- ar að fjallað verður um skyld mál- efni í skýrslunni. Of seint mun hins vegar vera að bæta við hana umfjöllun um þessa boðsferð Agnesar Bragadóttur þar sem siðfræðihluti skýrslunnar mun vera kominn í prentun ásamt ýms- um öðrum köflum úr skýrslu rann- sóknarnefndarinnar. Við ætlum að styðja hana og bið ég þig um að setja á hana I miða. FL Group bauð Agnesi Bragadóttur til Bandaríkjanna árið 2005. Agnes fór til Minneapolis og leit FL Group svo á að verið væri að styðja blaðakonuna. Agnes neitar að tala um ferðina við DV. Rannsóknarnefnd Alþingis skoðar meðal annars tengsl fjölmiðlamanna og stórfyrirtækja. n „Sæl, Agnes Bragadóttir hjá mogganum er að fara í smá ferð út þann 17/10 okt og heim þann 14/11 til minneapolis. Við ætlum að styðja hana og bið ég þig um að setja hana á I miða. Hún er með tölvupóst agnes@mbl.is og símanúmer xxx-xxxx. Gott væri ef þú mundir hringja í hana í morgunsárið og fara yfir, við tökum flugið f. hana - seigja henni það.“ *Ath. Villur og mistök í tölvupóstinum eru höfundarins en ekki DV. Tölvupósturinn FL Group studdi Agnesi Agnes Bragadóttir fékk boð um ókeypis flug til og frá Minne- apolis frá FL Group haustið 2005. Boðsferðir Agnesar voru skýrðar út þannig að FL Group ætlaði að „styðja“ Agnesi. Aðalmaðurinn Hannes Smárason var aðalmaður- inn í FL Group á þeim tíma sem félagið bauð Agnesi til Bandaríkjanna. FL GROUP BAUÐ AGNESI FRÍMIÐA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.