Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 FRÉTTIR Stjórnendur VBS fjárfestingabanka hafa ákveðið að blása af árshátíð bankans í ár. Til stóð að fara í ævin- týraferð út á land en vegna slæmrar fjárhagsstöðu hefur verið hætt við há- tíðina. Samkvæmt þeim tilboðum sem lágu fyrir hefði kostnaðurinn verið nærri hálfri milljón króna og af því stóð til að bankinn greiddi helm- inginn. Þrjátíu manna starfsmanna- hópur VBS stefndi að því að halda árshátíðina á Hótel Rangá 27. mars næstkomandi þar sem gist yrði, borð- aður veislumatur og skemmt sér með ýmsum hætti í sveitinni. Aðspurð- ur segir Jón Þórisson, forstjóri VBS, það hafa verið ákveðið að blása árs- hátíðina af og að starfsmenn íhugi að halda skemmtun í heimahúsi í stað- inn. „Þessi áform hafa verið sett til hliðar en starfsmenn gera sér hugs- anlega glaðan dag á eigin vegum. Þegar staðan er svona fannst okk- ur ekki við hæfi að þetta yrði haldið undir merki fyrirtækisins,“ segir Jón. Yfir bankann hefur verið sett bráðabirgðastjórn en slæm fjár- hagsstaða hans færði hann í faðm Fjármálaeftirlitsins. Í lok síðasta árs komu verulegir fjárhagserfiðleikar í ljós þegar VBS gat ekki greitt af lánum sínum en skuldir bankans eru taldar nema nærri 40 milljörðum króna. Verið er að stokka upp í rekstrinum og segir Jón að mikil vinna sé fram undan við að reyna að rétta skútuna við. Hann telur þó vera ljós við enda ganganna. „Við erum að reyna að glöggva okkur á stöðunni og ég held að við getum unnið okkur í gegnum þetta, með samvinnu lánardrottna. Þetta er alvöru verkefni sem við glím- um við,“ segir Jón. trausti@dv.is Ævintýraferð starfsfólks VBS út á land breytist í skemmtun í heimahúsi vegna kostnaðarins: Banki blæs árshátíð af vegna fjárhags „Ég hef miklar áhyggjur af henni þarna úti. Maður veit að fangelsin þarna í Suður-Ameríku eru ekki upp á marga fiska,“ segir Þröst- ur Sveinsson, bróðir Jónu Denny Sveinsdóttur sem handtekin var með ríflega tvö kíló af kókaíni á Jorge Chávez-flugvellinum í höf- uðborginni Líma í Perú. Svo virðist sem Jóna, sem er 38 ára, fimm barna einstæð móðir, hafi ætlað að smygla eiturlyfjun- um til Noregs, en þangað var ferð- inni heitið þegar fíkniefnalögregl- an stöðvaði hana. Hún hafði fest 2,026 kílógrömm af kókaíni fram- an á sig, innanklæða, í nokkrum pakkningum. Lögreglumenn hjá perúsku fíkniefnalögreglunni, sem DV ræddi við, segja að Jóna geti átt von á 8 til 10 ára fangelsisdómi fyrir smygltilraunina. Mikið áfall Þröstur segir að fjölskylda henn- ar hafi auðvitað orðið fyrir miklu áfalli þegar fréttirnar, sem voru óljósar í fyrstu, bárust. Það var ekki fyrr en í gær, fimmtudag, sem þau fyrir tilstilli DV fréttu að Jóna Denny væri heil á húfi í varðhaldi á lögreglustöð í Perú. Þröstur seg- ir að Jóna hafi verið í einhverri óreglu þegar hún bjó í Bandaríkj- unum, fyrir nokkrum árum, en undanfarin misseri hafi hún búið og unnið hér á Íslandi, þar sem elsti drengur hennar, sem er um tvítugt, búi hjá henni. Þröstur segir að systir hans hafi farið til Noregs í þrígang á skömmum tíma auk þess sem hann hafi frétt af því að hún hefði þaðan farið til Suður-Ameríku. Grunaði að ekki væri allt með felldu „Okkur grunaði að ekki væri allt með felldu hjá henni,“ segir Þröst- ur sem frétti af þessu á þriðjudags- kvöldið. Hann segist ekki hafa vit- að til þess að Jóna hefði verið í óreglu hér á Íslandi en hann seg- ir að hún hafi verið í tygjum við tvo menn af nígerískum uppruna; annar búi á Íslandi en hinn í Nor- egi. Hún hafi með skömmum fyr- irvara farið utan. Þröstur vonast til að Jónu gef- ist tækifæri til að afplána dóm sinn á Íslandi, ekki síst vegna barna hennar, en þrjú þeirra búa hér. Þau eru á aldrinum 17 til 20 ára. Tvö yngstu börnin, sem eru 10 ára, búa í Bandaríkjunum. „Ég óttast um líf systur minnar ef hún þarf að aðplána dóminn í Perú, hugsanlega við hræðilegar aðstæður,“ segir Þröstur en hann hefur séð til þess að börn Jónu hafi húsaskjól og segir að þau séu vitanlega miður sín. 8 til 10 ára fangelsi Jóna Denny er í haldi í höfuð- stöðvum fíkniefnasveitar perúsku ríkislögreglunnar í Líma. Roberto Saluga, fjölmiðlafulltrúi fíkni- efnalögreglunnar, segir í sam- tali við DV að þar hafi hún verið í haldi síðan hún var handtekin á Jorge Chávez-flugvellinum með tvö kíló af kókaíni innanklæða. „Hún hefur verið hjá okkur og verður hjá okkur áfram. Venju- lega eru grunaðir menn hér á lög- reglustöðinni í 15 daga. Hún mun fá lögfræðing og túlk. Lögfræðing- urinn er væntanlegur. Það verður unnið með þetta mál.“ Roberto segir að nokkuð þung- ir dómar hafi fallið á síðustu miss- erum í Perú í svipuðum málum. „Það er líklegt að hún fái 8-10 ára fangelsisdóm.“ Í klefa með nokkrum konum Víctor Chávez, höfuðsmaður hjá fíkniefnalögreglunni, stýrir rann- sókninni á glæp Jónu. Hann var í óðaönn að vinna skýrslu um mál Jónu þegar DV náði tali af hon- um. „Við erum að vinna að þessu máli með lögfræðingi og túlki frá ræðismannsskrifstofunni. Við þurfum á aðstoð að halda með túlka, því við erum ekki með slíka þjónustu hér í höfuðstöðv- um fíkniefnalögreglunnar,“ seg- ir Víctor Chávez. Hann segir að ekki hafi tekist að hafa samband við neina ættingja Jónu og bend- ir á að ef einhver nákominn henni sé staddur í Perú geti hann heim- sótt hana á heimsóknartímum á hverjum virkum degi. „Við handtókum konuna á flugvellinum en hún var með eitt- hvað um tvö kíló af kókaíni í fór- um sínum og var á leið til Noregs með millilendingu í Amsterdam. Við höfum leyfi dómara til að halda henni hér á lögreglustöð- inni í 15 daga. Hún er í haldi því Jóna Denny Sveinsdóttir situr í gæsluvarðhaldsklefa ásamt nokkrum konum í höf- uðstöðvum perúsku fíkniefnalögreglunnar í Líma, að sögn Víctors Chávez, höfuðs- manns hjá lögreglunni, sem stýrir rannsókninni. Hún var tekin á flugvellinum með tvö kíló af kókaíni. Bróðir hennar segist hafa miklar áhyggjur af henni. HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON OG BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamenn skrifa: helgihrafn@dv.is og baldur@dv.is Hún er í klefa hérna með nokkrum konum og verður hér um sinn. Mikið áfall Þröstur Sveinsson segist vonast til þess að Jóna fái að afplána refsingu sína á Íslandi, barnanna vegna. Hætt við Vegna fjárhagserfiðleika telja stjórnendur VBS ekki rétt að glæsileg árshátíð sé haldin undir merkjum fyrirtækisins. Til stóð að hún færi fram á Hótel Rangá sem hér sést baðað norðurljósum. „ÉG ÓTTAST UM LÍF SYSTUR MINNAR“ Fíkniefnalögreglan í Perú Lögregluyfirvöld í Perú halda úti miklum sveitum sem berjast gegn fíkniefnaglæpum sem algengir eru í landinu en kókaín er ræktað þar í nokkrum mæli. Jóna Denny Sveinsdóttir Var handtekin með tvö kíló af kókaíni innanklæða. MYND ÚR EINKASAFNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.