Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 FRÉTTIR
Íslensk gæðaframleiðsla
í 25 ár
Okkar verð – betra verð
Yfir 10.000 ánægðir notendur
á Íslandi.
Sophia Hansen var á fimmtudag
dæmd til að greiða Sigurði Pétri
Harðarsyni tæpar 20 milljónir
króna og hlaut sex mánaða fangelsi
sem er skilorðsbundið til þriggja
ára. Þar með staðfesti Hæstirétt-
ur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
yfir Sophiu. Fjárkrafan er byggð á
skuldaviðurkenningu sem var út-
gefin 4. júní 2007. Féð sem Sophia
þarf að greiða eru lán sem Sigurður
Pétur veitti henni á löngum tíma og
hún skrifaði upp á skuldabréf fyrir
árið 2005.
Þetta er annnað tap Sophiu í
dómsal á skömmum tíma. Hún
var sakfelld í Héraðsdómi Reykja-
víkur í síðasta mánuði fyrir að hafa
haft Sigurð Pétur fyrir rangri sök en
hún ásakaði hann um að hafa fals-
að undirskrift sína og þannig haft
af henni fé. Hann neitaði sök og
var undirskriftin send til rithand-
arrannsóknar í Statens kriminal-
tekniska laboratorium í Svíþjóð og
benti umrædd undirskrift eindreg-
ið til þess að hún væri ekki gerð af
Sigurði Pétri heldur Sophiu sjálfri.
Ánægður með dóminn
„Það er gott að þessu sé lokið. Það
er skelfilegt að hafa þurft að sitja
undir þessum ásökunum og að fólk
hafi reynt að svipta mig ærunni í
þessu máli,“ segir Sigurður Pétur
Harðarson í samtali við DV. Hann
segist aldrei hafa verið í vafa um að
verða sýknaður. „Það lá ljóst fyrir frá
fyrstu stundu að ég var að fara með
rétt mál. Það hefur nú verið staðfest
að ég hafði á réttu að standa,“ segir
hann. Sophia Hansen vildi ekki tjá
sig um dóm Hæstaréttar.
Lánin allt frá 1990
Árið 2007 lagði Sophia Hansen fram
kæru á hendur Sigurði eftir að hann
krafðist þess að hún borgaði trygg-
ingabréf, skuldarviðurkenningu og
skuldabréf sem faðir hans hafði lagt
út fyrir hana. Sophia sagðist aldrei
hafa skrifað undir veð í íbúð sinni
og kannaðist ekki við að hún eða
dóttir hennar hefðu skrifað und-
ir skjölin. Eftir að rithandarrann-
sóknir sem áður var minnst á sýndu
fram á sakleysi Sigurðar Péturs var
málið látið niður falla. Sigurður
Pétur höfðaði í kjölfarið mál gegn
Soph iu vegna peningaláns að upp-
hæð tæpra 20 milljóna króna. Pen-
ingana hafði hann lánað Sophiu á
löngum tíma, allt frá árinu 1990.
Var náinn bandamaður
Sigurður Pétur var á árum áður
nánasti bandamaður Sophiu í bar-
áttu hennar um að fá dætur sínar
Dagbjörtu og Rúnu heim til Íslands,
en barnsfaðir hennar, Halim Al,
neitaði henni um umgengnisrétt.
Sophia og Sigurður hafa eldað grátt
silfur um árabil en þau voru áður
mjög náin og Sigurður barðist af
kappi með henni í baráttunni fyrir
að fá dæturnar heim. Á þeim árum,
allt frá 1990 til 2005, lagði Sigurður
Pétur henni til fé sem héraðsdómur
hefur nú gert henni að endurgreiða
að hluta.
Í júlí árið 2008 greindi DV frá
þeim málaferlum sem fram undan
voru á milli Sophiu og Sigurðar Pét-
urs. Í kjölfar umfjöllunarinnar var
blaðamanni DV hótað lífláti af Eg-
yptanum Mohamed Attia sem steig
seinna fram og kvaðst vera eigin-
maður Sophiu.
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur um að Sophiu Hansen beri
að greiða Sigurði Pétri Harðarsyni tæpar
20 milljónir króna. Sigurður Pétur segist
feginn að málinu sé lokið. Það hafi þó ver-
ið skelfilegt að þurfa að sitja undir ásök-
unum um skjalafals.
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
SOPHIA VERÐUR AÐ BORGA
Skilorðsbundið fangelsi Sophia
Hansen hlaut sex mánaða fangelsi
sem er skilorðsbundið til þriggja
ára. MYND KRISTINN MAGNÚSSON