Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Blaðsíða 20
10 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 FRÉTTIR
Ármúla 20 // 108 Reykjavík
S: 562-5000 // F: 562-5045
N: bjorninn@bjorninn.is // www.bjorninn.is
Hjá Birninum færðu nýjar hurðir og skúffustykki í
þeirri viðartegund sem þú velur eða sprautulakkað
í þeim lit sem þig langar í. Síðan er bara spurning
hvernig borðplötu má bjóða þér.
Líttu við hjá okkur og kynntu þér málið.
GERÐU GAMLA ELDHÚSIÐ
EINS OG NÝTT
Í vikunni hófust réttarhöld yfir franskri móður sem varð sex börnum sínum að bana. Lík barnanna
geymdi hún í plastpokum á heimili sínu. Í fyrra voru tvær evrópskar konur sakfelldar fyrir að hafa orðið
nýfæddum börnum sínum að bana.
MYRTI SEX NÝ-
FÆDD BÖRN SÍN
Þrjátíu og átta ára frönsk kona við-
urkenndi á mánudaginn við upp-
haf réttarhalda yfir henni í bænum
Coutances við Ermarsund að hafa
drepið sex nýfædd börn sín á árun-
um 2000 til 2007.
Konan, Celine Lesage sem var
handtekin árið 2007, á yfir höfði sér
lífstíðarfangelsi ef hún verður sak-
felld, en það mun hafa verið 14 ára
sonur Celine sem vísaði sambýlis-
manni hennar og föður eins barn-
anna, Luc Margueritte, á rotnandi
lík barnanna í plastpokum í kjall-
ara íbúðar þeirra í Valognes í Frakk-
landi.
„Ég viðurkenni brotin,“ sagði Ce-
line Lesage niðurlút eftir að ákæru-
atriðin höfðu verið lesin upp. Að-
spurð ítrekað hvort börnin hefðu
verið á lífi við fæðingu sagði Lesage
í fyrstu að hún gæti ekki svarað því,
en svaraði að lokum spurningunni
játandi.
Við yfirheyrslur kom í ljós að
tveimur barnanna hafði Celine fyr-
irkomið með því að kyrkja þau en
fjögur barnanna hafði hún kæft með
því að byrgja vit þeirra.
Engin útskýring
Að sögn lögfræðings Celine bar hún
ekki brigður á þær sakir sem á hana
voru bornar en hún hefði ekki varp-
að ljósi á ástæður verknaðar síns.
Faðir fimm barnanna er fyrrver-
andi kærasti Celine, Pascal Cather-
ine, og var hann tekinn til yfirheyrslu
í kjölfar handtöku Celine árið 2007.
Sækjandinn í málinu, Michel Garr-
andaux, sagðist vera þess fullviss að
Catherine hefði vitað af þungun Ce-
line, en fallið var frá ákæru á hend-
ur honum og hafði hann stöðu vitnis
við réttarhöldin.
Að sögn Garrandaux lýsti Cel-
ine Lesage eftir handtökuna hvern-
ig hún hafði ein síns liðs fætt fimm
fyrstu börnin í íbúð sem hún deildi
með Catherine, en þegar sambandi
þeirra lauk árið 2006 tók Celine
plastpokana með líkum barnanna
með sér þegar hún flutti inn á nýtt
heimili með Luc Margueritte.
Sem fyrr segir er Luc Marguer-
itte faðir sjötta barnsins, en hann var
stefnandi í málinu.
Önnur mál af svipuðum toga
Fyrir tæpu ári var önnur frönsk kona,
Véronique Courjault, sakfelld fyrir
morð á þremur nýfæddum börnum
sínum. Þannig var mál með vexti að í
júlí 2006 kom Jean-Louis, eiginmað-
ur Véronique, til Seoul í Suður-Kór-
eu, þar sem hjónin bjuggu, eftir frí í
Frakklandi.
Jean-Louis fann lík tveggja hvít-
voðunga í frysti fjölskyldunnar og
örfáum dögum síðar fékkst staðfest
með lífsýnum að um var að ræða
börn hjónanna. Þau báru brigður á
niðurstöður suðurkóresku lögregl-
unnar, en rannsókn sem síðar var
framkvæmd í Frakklandi staðfesti
niðurstöður frá Suður-Kóreu.
Í október 2006 viðurkenndi Vér-
onique að hafa banað báðum börn-
unum, og þriðja barninu að auki,
árin 1999, þegar hjónin bjuggu í
Frakklandi, og 2002 og 2003 eftir að
þau höfðu flutt til Suður-Kóreu.
Í janúar í fyrra var Jean-Louis
sýknaður og um hálfu ári síðar var
Véronique sakfelld og dæmd til átta
ára fangelsisvistar.
Lík í fiskabúri og blómapottum
Nánast á sama tíma og dómur var
kveðinn upp yfir Véronique Courj-
ault í Frakklandi var Sabine Hils-
chenz, fertug þýsk kona, fundin sek
um dráp á átta nýfæddum börn-
um sínum. Hún hafði reyndar fyr-
irkomið níu börnum, en of langt
var um liðið frá fyrsta morðinu svo
unnt væri að ákæra hana vegna
þess.
Lík barnanna fundust í fiskabúri
og blómapottum í garði foreldra
Sabine í þorpi í Austur-Þýskalandi,
ekki langt frá pólsku landamærun-
um. Börnin fæddust á árunum frá
1988 til 1998. Upphaflega átti að
kæra Sabine fyrir morð, en síðar var
ákærunni breytt í manndráp.
Við réttarhöldin sagði verjandi
Sabine að ótti um að eiginmað-
ur hennar „yfirgæfi hana og tæki
börnin með sér“ hefði verið ástæða
þess að Sabine ákvað að svipta ný-
fædd börn sín lífi.
Sabine sagði við yfirheyrslur að
hún hefði fætt eitt barnanna á sal-
erninu og það hefði drukknað, en
hún sagðist ekki muna eftir hinum
fæðingunum sökum ofurölvunar,
og gæti því ekki sagt til um hvort
börnin fæddust andvana eður ei.
Sabine Hilschenz fékk fimmtán
ára dóm.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Aðspurð ítrekað hvort börn-in hefðu verið á lífi við fæð-
ingu sagði Lesage í fyrstu að hún
gæti ekki svarað því, en svaraði að
lokum spurningunni játandi.
Sabine Hilschenz ásamt lögfræð-
ingi sínum Fékk fimmtán ára dóm
fyrir áttfalt manndráp. MYND AFP
Celine Lesage
Geymdi lík sex barna
í ruslapokum í kjallara
heimilis síns. MYND AFP