Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 HELGARBLAÐ Um það bil eitt af hverjum þúsund börnum fæðist með Downs-heilkennið en lífslíkur einstaklinga með heilkennið eru alltaf að aukast og ævin að lengjast. Sunnudagurinn 21. mars er alþjóðlegur dagur um Downs-heilkennið en dagsetningin vísar í þrístæðu á 21. litningi. Helgarblað DV ræddi við fjóra einstakl- inga með heilkennið og forvitnaðist um líf þeirra og tilveru. Öll taka þau virkan þátt í samfélaginu, eru í skóla eða vinnu og eiga sér mörg og áhugaverð áhugamál. LÍFIÐ MEÐ DOWNS-HEILKENNI Ég er ánægður í vinnunni enda hef ég unnið á sama staðnum í 20 ár,“ seg-ir Ólafur Gunnarsson Þormar sem starfar hjá Plastprent í Mosfellsbæ. Ólafur, sem er með Downs-heilkenni, er mik- ill íþróttamaður og hefur keppt fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikum fatlaðra þar sem hann kom heim með gullmedalíu. Hann segist allt- af hafa haft áhuga á íþróttum. „Ég man ekki hvenær ég byrjaði að æfa en ég hef alltaf hreyft mig mikið. Í dag æfi ég lyftingar hjá World class og fer líka reglulega í sund,“ segir Ólafur sem sigraði í boccia á Ólympíuleikunum. Aðspurður segist hann hafa verið afskalega ánægður með gullpeninginn. „Ólympíuleik- arnir í Peking voru frábærir og það að koma heim með gullið var mjög skemmtilegt. Ég var mjög stoltur af sjálfum mér og veit að pabbi var líka mjög ánægður með strákinn sinn,“ segir hann og bætir við að hann vonist til að komast á næstu Ólympíuleika sem haldnir verða árið 2012. Vill jákvæðari fréttir Ólafur er nýfluttur í nýja íbúð í sambýli. Hann er ánægður með að búa einn og fær þá hjálp sem hann þarfnast. „Þetta er flott íbúð. Ég á marga góða nágranna og við spjöllum reglu- lega saman svo ég er ánægður,“ segir hann og bætir við að hann taki strætó í vinnuna. „Ég er líka duglegur að hjóla þegar veðrið er gott en þegar ég kem heim eyði ég oftast einhverjum tíma í tölvunni. Þá les ég fréttirnar því ég vil fylgjast með því sem er að gerast,“ segir hann. Aðspurður segist hann þó vera kominn með leið á neikvæðum kreppufréttum. „Það eru allir að tala um kreppuna í vinnunni en ég vil miklu frekar tala um eitthvað skemmti- legra. Ég er viss um að Ísland muni jafna sig á þessu,“ segir Ólafur sem þó mætti reglulega á Austurvöll á síðasta ári til að taka þátt í mót- mælunum. Rooney er bestur Ólafur segir fötlun sína ekki koma í veg fyrir að hann lifi skemmtilegu lífi og taki þátt á vinnu- markaðnum en hann vinnur alla daga eftir hádegi. Hann segir börn og krakka oft forvitin um hans hagi og að þau séu oftast almennileg við hann. „Mér finnst skemmtilegt að tala við fólk og krakkar koma oft til mín og spyrja og ég hef bara gaman af því,“ segir Ólafur sem hefur ferðast mikið um ævina. „Við pabbi erum bún- ir að fara víða og Spánn er uppáhalds landið mitt. Ég vil vera í sólinni. Svo langar mig líka að fara til Frakklands, til Svíþjóðar og Brasil- íu. Vonandi verður af því seinna,“ segir hann og bætir aðspurður við að önnur áhugamál hans séu vinnan, kvikmyndir og fótbolti. „Ég er duglegur að fara í bíó og fór í vikunni að sjá nýjustu myndina hans Leonardo DiCaprio. Hins vegar er Avatar besta myndin sem ég hef séð lengi. Hún er rosalega góð. Í boltanum er það Man. United og Rooney er bestur.“ Ólafur á stóra fjölskyldu og nýtur þess þeg- ar þau hittast. „Ég á tvær systur og tvo bræð- ur og það er ofsalega gaman þegar við borð- um saman um helgar. Ég hef gaman af því að borða og sérstaklega eitthvað nýtt þótt uppá- haldsmaturinn minn sé rjúpurnar hennar mömmu.“ indiana@dv.is Ólafur Gunnarsson kom heim með gullmedalíu þeg- ar hann keppti í boccia á Ólympíuleikum fatlaðra í Peking. Ólafur er nýfluttur í nýja íbúð og er ánægður með lífið og tilveruna. Stoltur af gullinu Duglegur í vinnunni Ólafur hefur unnið á sama vinnustaðnum í 20 ár. MYND RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.