Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Page 25
„Ætli ég verði ekki bara heima.“ LAUFEY GEIRLAUGSDÓTTIR, 46 SÖNGKONA OG BÓKARI „Ætli ég verði ekki bara í bústaðnum. Hann er í Syðri-Reykjum í Biskupstung- um.“ ÁSLAUG HALLDÓRSDÓTTIR, 70 ÁRA ELLILÍFEYRISÞEGI „Ég ætla bara að vera heima hjá mér. Ég fer ekki neitt svo ég viti til.“ KRISTRÚN ÞRÁINSDÓTTIR, 25 ÁRA ATVINNULAUS „Ég ætla bara að slappa af um páskana.“ VALGERÐUR HEBA SVEINSDÓTTIR, 56 ÁRA BÓKARI „Ekkert sérstakt, ég verð bara heima.“ JÓN GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON, 70 ÁRA ELLILÍFEYRISÞEGI HVERNIG ÆTLAR ÞÚ AÐ NOTA PÁSKAFRÍIÐ? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR JÓHANN RÚNAR KRISTJÁNSSON, Íslandsmeistari fatlaðra í borðtennis og í 1. flokki ófatlaðra, komst inn á heimsmeistaramótið sem haldið verður í Suður-Kóreu. Aðeins átján bestu í heiminum eru valdir á það. ÆTLAR AÐ VINNA TIL VERÐLAUNA Hver er maðurinn? „Jóhann Rúnar Kristjánsson, borinn og barnfæddur Keflvíkingur.“ Hvað drífur þig áfram? „Að vakna og fá að takast á við daginn. Ég lenti náttúrulega í alvarlegu slysi þannig að ég þakka bara fyrir hvern dag.“ Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi? „Ameríka er alltaf spennandi og þá einhvers staðar á Flórídasvæðinu.“ Af hverju borðtennis? „Borðtennisinn lá vel við höggi í endurhæfingarferlinu. Ég sá þar möguleika á að gera eitthvað og svo var ég með einhverja smá hæfileika.“ Hvar varstu þegar þú fékkst fréttirnar um að þú værir á leið á HM? „Ég var nú bara sofandi og fékk SMS frá þjálfaranum mínum. Þetta lá svo sem í loftinu en þegar staðfestingin kom stækkaði maður alveg um metra.“ Er þetta ekki mikið afrek, það eru ekki margir sem fá að keppa? „Það eru aðeins átján bestu í heiminum sem fá að taka þátt. Heimsmeistaramótið er sterkara en ólympíumótið að mínu mati og ég er að fara fimmtándi þarna inn.“ Mun þetta ekki kosta dágóða summu? „Ég var að reikna það saman að með öllu mun árið kosta svona 2,5 milljónir. Ég er á B-styrk hjá ÍSÍ og er svo heppinn að geta leitað til annarra aðila sem hjálpa mér. Ég hef eiginlega engar áhyggjur af því að þetta náist ekki.“ Ertu strax búinn að setja þér mark- mið fyrir HM? „Ég ætla ekki að fara út nema stefna á að koma með einhver verðlaun heim.“ Ertu ekki farinn að rúlla upp ófötluðum líka á Íslandsmótum? „Jú, ég varði Íslandsmeistaratitilinn minn í 1. flokki karla, það er klárlega einn af mínum sætari sigrum. Fyrsti flokkur er strákar sem æfa 4-5 sinnum í viku og hafa farið í æfingabúðir í Kína. Þeir voru ekkert rosalega sáttir fyrst en nú eru þeir farnir að kannast við karlinn. Fyrst þegar ég var að vinna þá heyrði maður svona: „Ég trúi ekki að ég sé að tapa fyrir manni í hjólastól.““ Kvikmyndagerð á Íslandi er í vanda. Niðurskurðarhnífurinn ristir þessa atvinnugrein djúpt og dýpra en flest- ar aðrar listgreinar. Ástæðan er líkast til sú að kvikmyndir eru samnefnari yfir flestrar listgreinar og því meira úr henni að flysja. Þetta þykir fólki í geiranum miður og hafnar þessum umframniðurskurði miðað við aðra. En þegar almenningur í landinu berst við atvinnumissi og skulda- súpu er erfitt að sannfæra stjórn- völd um nauðsyn menningar. Ekki síst kvikmyndamenningar sem þyk- ir í dýr. Venjulegum Íslendingi finnst gaman að sjá íslenskt efni í bíóhús- um eða sjónvarpi en í svona árferði er það varla í forgangi. Venjuleg- ur Íslendingur spyr sig hvers vegna kvikmyndagerð spjari sig ekki sjálf og miðað við útlistingar þeirra sem greinina stunda er spurningin eðli- leg. Hve oft heyrum við ekki um landvinninga og verðlaun, snilld og yfirburði íslenskra kvikmynda, leik- ara og leikstjóra? Hvers vegna er greinin þá ekki sjálfbær? Peningastreymi til kvikmynda- gerðar fer aðallega gegnum Kvik- myndamiðstöð Íslands og RÚV. KMÍ hefur á umliðnum árum haft á fjórða hundrað milljónir til ráðstöfunar og stefnt var hærra. Af þrjú þúsund millj- óna rekstrarfé sjónvarpsins fara 100 milljónir til kaupa á íslensku efni. Því má segja að heildarpottur hins opin- bera til kvikmyndagerðar sé um 500 milljónir á ári. Miðað við umsvif er ljóst að sjónvarpið þarf að gera miklu betur, þar á bæ þarf nýja hugsun og nýja sýn. En kvikmyndagerðarmenn mættu líka hugsa sinn gang. Löggilt endurskoðun Séu framlög KMÍ skoðuð nánar kem- ur í ljós að örfá fyrirtæki og tengdir að- ilar hafa fengið þaðan vilyrði fyrir um milljarði á þriggja ára tímabili. Fyrri gjaldþrot virðast engu skipta. Spyrja má hvort þetta sé eðlileg traktering á opinberu fé? Einnig hafa mynd- ir, alfarið á erlendum tungumál- um, notið styrkja. Vel er skiljanlegt að framleiðendur vilji stækka markaðssvæði sín en sé móður- málið víðs fjarri og föðurlandið jafnvel líka er erf- itt að sjá hvaða skírskotun slíkar myndir hafa fyrir landann. En hvað um fullyrðingu kvik- myndagerðar- manna um að ríkið fái útlagt fé til baka og jafn- vel rúmlega það? Hægðarleikur ætti að vera að finna þetta út með því að rekja afleidd störf, reikna út endur- greiðslur, skatt- tekjur, innstreymi peninga erlendis frá og í hvað þeir aurar fara? Löggilt endurskoðun á þessu gæti skilað kvikmyndagerðinni órækri sönnun um eigið ágæti. Þrengingar fram undan Verkefni kvikmyndagerðarmanna nú er ekki að biðja um hærri fram- lög heldur jafnari dreifingu á því sem er til skiptanna. Bransinn þarf í heild að njóta betur þeirrar litlu sólar sem nýtur. Kvikmyndamiðstöðin á ekki að „búa til bransa“ heldur bransinn sjálfur. Há framlög KMÍ og endurtek- ið til sömu aðila hindrar þróun í þá veru. Hún raskar enn frem- ur samkeppni og ýtir undir klíkumyndun með tilheyr- andi hagsmunagæslu. Gætum að því að þó kvikmyndagerð sé dýr er hún misdýr og miklir peningar tryggja ekki endilega gæði. Jóhannes, nýleg gamanmynd, naut sem dæmi engrar fyrirgreiðslu frá KMÍ en fékk frábæra aðsókn. Auðvitað ætti kvikmynda- akademían að útnefna myndina til Edduverðlauna þó ekki væri nema fyrir fjármögnun. Að búa til kvik- mynd úr engu er snilld, engu síðri en þeirra sem njóta aðgengis að sjóðum og fjölmiðlum. Al- menningur virðist deila sjónarmiðum kvik- myndagerðarfólks um metnaðarleysi Sjón- varpsins gagnvart ís- lenskri dagskrárgerð. Úthlutanir Kvikmynda- miðstöðvar eru hins vegar umdeilanlegri. Er nauð- synlegt að styrkþeg- ar þurfi 60 milljónir í verk sín, myndu 30 milljónir duga? Ör- ugglega einhverjum og hvers vegna þá ekki að spara peninga án þess að fækka verkefnum? Austur góðærisins er liðinn og kvikmynda- gerðarmenn þurfa að gera sér grein fyrir því. Fram undan eru þrengingar og vilji kvikmyndabransinn halda reisn og vel- vild almennings er aðhald í eigin málum miklu betri leið en kröfugerð og væll. Kvikmyndagerð í vanda Börn á ljósmyndasýningu Þau voru áhugasöm skólabörnin sem veltu fyrir sér ljósmyndum ársins 2009 úr íslenskum fjölmiðlum þegar Rakel Ósk Sigurðardóttir ljósmyndari leit þar við á fimmtudaginn. Sýningin er að venju í Gerðarsafni en þar má skoða þær myndir sem þóttu skara fram úr í blöðum og tímaritum í fyrra. UMRÆÐA 19. mars 2010 FÖSTUDAGUR 25 LÝÐUR ÁRNASON heilbrigðisstarfsmaður skrifar „Að búa til kvikmynd úr engu er snilld, engu síðri en þeirra sem njóta aðgengis að sjóðum og fjölmiðlum.” KJALLARI MYNDIN MAÐUR DAGSINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.