Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Blaðsíða 29
...tölvuleikn- um God of War 3 Vel gert, vel unnið. Bravó! ... myndinni From Paris With Love Einföld spennu- flétta sem allir strákar ættu að hafa gaman af. ... myndinni Loft- kastalanum sem hrundi Engin mistök. Frábær loka- kafli í þríleik Larssons. ... myndinni Legion Satanískt vond mynd. FÓKUS 19. mars 2010 FÖSTUDAGUR 29 FÖSTUDAGUR n Mínus á Batteríinu Hljómsveitin Mínus ætlar að troða upp á Batteríinu en félagarnir hafa ekki spilað hérlendis um nokkurt skeið. Það verður gaman að heyra hvað þeir spila í kvöld en gestir munu fá að heyra efni af væntanlegri plötu. Húsið er opnað kl. 22 og það kostar 1000 krónur inn. n Dikta á Akureyri Hin frábæra hljómsveit Dikta sem átti eina af bestu plötum síðasta árs verður með tónleika á Græna hattinum í kvöld. Það ættu allir að reyna að tryggja sér miða sem seldir verða í Eymundsson því það seldist upp á síðustu tónleika Diktu á Græna hattinum á mettíma. n Gylfi Ægis og Rúnar Þór á Players Það ættu allir að kannast við meistarana Gylfa Ægis og Rúnar Þór en þeir ætla að halda gestum Players dansandi fram á rauðanótt. Það er sannkallaður heiður að fá þá til að spila þetta kvöld og vonast þeir til að sjá sem flesta. n Reykjavik Fashion Festivalstóneikar á Nasa Það verður glæsileg dagskrá á Nasa í kvöld en þá munu hljómsveitirnar Gus- Gus, Retro Stefson og sænska bandið Air France stíga á svið í tilefni af Reykjavik Fasion Festival. Það kostar 2.800 inn en passinn er einnig aðgöngumiði á laugardagskvöldið sem verður ekki síðra en þetta. n Bermuda á Spot Bermuda verður á Spot í kvöld. Bermuda var stofnuð árið 2004 og hefur verið að gera það gott á ballmarkaðnum síðan með nýjum sem gömlum danssmellum. það kostar 1.500 krónur inn og er húsið opnað klukkan 23. LAUGARDAGUR n Hreimur og Sjonni á Players Félagana Hreim Heimisson og Sjonna Brink þarf vart að kynna en þeir hafa ákveðið að koma saman á laugardags- kvöld og skemmta gestum á Players. Glöggir lesendur muna eflaust eftir þeim úr síðustu Söngvakeppni Sjónvarpsins þar sem þeir sungu lagið Waterslide. n Reykjavik Fashion Festival á Nasa Í kvöld mun heimsfræg söngkona stíga á svið en það er engin önnur en Peaches sem mun syngja fyrir lýðinn. Einnig munu koma fram Bloodgroup og ungstirnin í hljómsveitinni Sykur. Miðinn frá kvöldinu áður gildir inn í kvöld líka. n Playboy-partý á 800 bar Það verður allt fullt af Playboy-kanínum á Selfossi í kvöld í Playboy-partýi á 800 bar. Verðlaun verða fyrir flottasta búning og þær stelpur sem mæta í dressi fá glaðning. Dj Óli Geir og Dj Sindri frá Flass 104,5 þeyta skífum. n Akureyrarball á Spot Akureyringar ætla að skemmta sér saman á Spot í kvöld þar sem rifjaðir verða upp gamlir norðlenskir taktar. Fram koma hljómsveitirnar Skriðjöklar, bítlahljómsveitin Bravó, Hunang og dægurlagapönkhljómsveitin Húfa auk skemmtikraftanna Rögnvaldar gáfaða og Kalla Örvars. Húsið er opnað kl. 23 og kostar 2.000 krónur inn. Hvað er að GERAST? Yfirlitssýning á verkum Tryggva Ólafssonar opnuð á Akureyri: 40 ÁR AF FERLI TRYGGVA ... leikritinu Hænu- ungarnir Hver leikar- inn öðrum betri í þessu frábæra verki. ... bókinni Það sem ég sá og hvernig ég laug Einlæg, hreinskilin, áhugaverð, spenn- andi og hugljúf. raunum Orms til að reyna að fóta sig í lífinu. Hann kemur úr sundraðri fjölskyldu og ber djúpt ör eftir skiln- að foreldra sinna. Mamma hans er byrjuð að deita sjóara sem er ansi mikið fyrir sopann, hann er skotinn í stelpu og er í uppreisn gegn skóla- kerfinu, sérstaklega íþróttafasism- anum sem þar ræður ríkjum. „Þetta fer allt alveg svakalega í taugarnar á Ormi blessuðum. En hann er öðlingsdrengur,“ segir Gói. „Hann er náttúrlega alveg sjúk- lega orðheppinn og skemmtilegur þannig að það er virkilega gaman að honum. Enda leynast Ormar víða um grundir!“ Sögusvið Ólafs í bókinni er tím- inn sem hún er skrifuð á, níundi áratugurinn. Gói segir aðstandend- ur söngleiksins halda sig við það sögusvið, ekkert sé verið „að tala um Facebook eða SMS. Við höldum sögunni bara eins og hún er og það gengur fullkomlega upp.“ Þrátt fyrir að hafa ekki leikið í at- vinnusýningum í ýkja langan tíma er Gói, sem útskrifaðist úr leiklist- ardeild Listaháskólans árið 2005, kominn með þó nokkra reynslu af söngleikjum. Á meðal söngleikja- uppfærslna sem hann hefur tek- ið þátt í eru Hárið, Litla hryllings- búðin, Fólkið í blokkinni (sem er einnig eftir Ólaf Hauk) og nú síð- ast Söngvaseiður sem fór af fjölum Borgarleikhússins síðastliðið haust. „Ég veit það ekki, það verða aðr- ir að dæma um það,“ segir hann, spurður hvort söngurinn liggi vel fyrir honum. „Ég hef að minnsta kosti rosalega gaman af því að syngja. Eins og þú segir hef ég gert ansi mikið af því, enda söngleikur- inn skemmtilegt form.“ Magnús Geir skipulagður Gói var fastráðinn við Leikfélag Ak- ureyrar strax eftir útskrift og var einn af burðarásum leikhússins þar til hann var ráðinn til Borgarleik- hússins árið 2008. Þar fylgdi hann Magnúsi Geir Þórðarsyni sem tekið hafði við stjórn Borgarleikhússins skömmu áður eftir að hafa stýrt LA árin á undan. Eins og leikhúsunn- endur vita féllu aðsóknarmetin eins og lauf að hausti í leikstjórnartíð Magnúsar hjá LA. Og Magnús er einmitt leikstjóri Gauragangs sem er fyrsta uppfærsl- an sem hann stýrir eftir vistaskiptin, en hann stökk stundum í leikstjóra- gallann fyrir norðan. „Hann hefur eeengu gleymt, drengurinn,“ segir Gói með leik- rænum tilburðum. En er samt aug- ljóslega fúlasta alvara. „Magnús er frábær leikstjóri. Hann er svo skipu- lagður og veit hvað hann vill. Það eru forréttindi að vinna með honum.“ Er það ekki kostur fyrir samvinnu ykkar hvað þið þekkist vel eftir árin á Akureyri? „Alveg örugglega. Hann þekkir mig út og inn sem leikara þannig að hann þekkir kostina og gallana. Það er bara gott.“ Besta vin Orms, Ranúr, leikur Hallgrímur Ólafsson sem einnig var hjá LA með Góa og Magnúsi. „Við höfum leikið mikið saman og þekkj- umst vel. Það er auðvitað mikill kost- ur að þekkja vel inn á meðleikara sína. Það er mjög gott að leika á móti Hallgrími og það hlýtur að skila sér út í sal með góðum samleik. Eða ég vona það alla vega.“ Leikur í fyrstu, íslensku þrívídd- armyndinni Gói er líka byrjaður að þreifa á kvik- myndaleiknum. Blaðamaður segist hafa afar áreiðanlegar heimildir fyr- ir því að hann fari á kostum í hinni geysivinsælu mynd Algjör Sveppi og leitin að Villa. „Þú verður að sjá hana, það er algjört skilyrði!“ segir leikarinn. Eftir að hafa fengið loforð fyrir því frá blaðamanni heldur hann áfram. „Það var mjög skemmtilegt að leika í þessari mynd. Og mér finnst þetta allt svo skemmtilegt. Ég er bara sjúkur í þetta starf. Það er gaman að skipta á milli, vera í leikhúsinu, döbba teiknimyndir, leika í sjón- varpi og bíó og gera þetta allt. Það er bara ekki hægt að fá leið á þessu.“ Í bígerð er svo framhaldsmynd, Algjör Sveppi og dularfulla hótelher- bergið. Og metnaðurinn er mikill hjá leikstjóranum, Braga Þór Hinriks- syni, og framleiðendum myndarinn- ar því hún verður tekin upp í þrívídd sem ekki hefur verið gert áður hér af íslenskum kvikmyndagerðarmönn- um svo vitað sé. En vinnslan verður hröð, tökur fara fram á vormánuðum og frumsýning er áætluð næsta haust. „Við tókum fyrri myndina líka svona,“ segir Gói. „Tökur voru í maí og júní og svo frumsýndum við í september. Stafræna tæknin er svo mikil snilld. Og ég er mjög spenntur, ég meina, fyrsta íslenska þrívíddar- kvikmyndin!“ Og fleira er að sjálfsögðu á prjón- um gaursins Góa. Það er venjan hjá góðum leikurum. „Já, það er fullt á prjónunum. En eins og alltaf þá má ekkert segja. Þá verður einhver móðgaður. En það er margt spennandi að fara að gerast og ég bíð bara spenntur og fullur til- hlökkunar. En fyrsta mál á dagskrá er að frumsýna Gauragang.“ kristjanh@dv.is Alþjóðleg vídeó- og tilraunakvikmyndahátíð: Metþátttaka í 700IS Hreindýralandi Alþjóðlega vídeó- og tilraunakvik- myndahátíðin 700IS Hreindýra- land verður sett í fimmta sinn á Eg- ilsstöðum á laugardaginn en hún stendur til 27. mars. Að þessu sinni var metþátttaka; innsend verk voru 642 frá 49 löndum, af þeim voru 76 verk valin til sýningar. Þar að auki frumsýnir Steina nýtt vídeóverk fyr- ir sex skjái í Frystiklefanum í Slát- urhúsinu á Egilsstöðum. Víðs veg- ar um Sláturhúsið verða svo hin 76 verkin sýnd þessa viku en einnig verða listamenn og forstöðumenn samstarfshátíða með listamanna- spjall og kínverskt tilraunabíó. 700IS er komið í Evrópusamstarf sem felur í sér að fjórar vídeóhá- tíðir velja hver sitt verðlaunaverkið úr innsendum evrópskum verkum. Auk 700IS eru það Moves í Bret- landi, Intermodem í Ungverjalandi og Frame Research í Portúgal. Þessi fjögur verk verða sýnd á hátíðun- um í öllum löndunum frá maí 2010 til apríl 2011 og höfundar þeirra fá sérstök verðlaun og vegsauka. Einnig er hátíðin nú í samstarfi við norrænan listaþríæring sem hald- inn verður í fyrsta sinn í vor í Eskil- stuna í Svíþjóð. Enn ein nýbreytni er sérstök gestavinnustofa. Gestalistamaður í Skaftfelli á Seyðisfirði, í Sláturhús- inu á Egilsstöðum og Charles Ross frá Bretlandi, búsettur á Eiðum, ásamt Matta Sarinen frá Finnlandi, sem búsettur er á Akureyri, fá sér- staka kynningu. Fyrir utan ofantalið verður efnt til sérstakrar „stillusýningar“ víða um landið. Það þýðir að kyrrmynd- ir úr völdu vídeóverkunum verða sýndar á skjám hér og þar um land- ið í aðdraganda hátíðarinnar fyrir austan. Dagskrána er að finna á heima- síðunni 700.is. Streymi Úr mynd Maríu Dalberg, Streymi, sem sýnd verður á 700IS Hreindýralandi. Gói sem Ormur „Þetta er náttúrlega stórsaga og mikill karakter. Þetta er nettur Hamlet.“ MYND GRÍMUR BJARNASON Rekkjubrögð Margt kemur upp á í lífi Orms. Sumt af því gerist í rekkjunni. MYND GRÍMUR BJARNASON Stuð Leikhópurinn er stór, telur á þriðja tug leikara. MYND GRÍMUR BJARNASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.