Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 34
fræðinga hérna en af hverju sá enginn ykkar þetta
fyrir?““
Í fljótu bragði segir Guðlaugur að útlit sé fyr-
ir að undirliggjandi kerfisvandi hafi verið ástæða
þess að svona fór svo víða. „En það breytir því
ekki að við gerðum fullt af mistökum og manni
finnst að maður hefði átt að sjá margt af því fyrir
sem svo gerðist.“
STYRKJAMÁLIÐ
Í apríl 2009 komust Guðlaugur og margir fleiri
þingmenn í fréttir sökum styrkja sem þeir þáðu
frá fyrirtækjum árið 2006 vegna alþingiskosn-
inganna vorið 2007. Í prófkjörssjóð Guðlaugs
barst meðal annars styrkur frá Baugi upp á tvær
milljónir og svipað frá FL Group. Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra, Guðni Ágústsson,
fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, voru einnig á meðal þeirra sem
fengu styrki frá Baugi.
„Málið í heild sinni er þannig að ég hef sett
mér mjög skýrar reglur þegar kemur að fjáröfl-
un, en þar til nýlega hafa nánast engar reglur gilt
um fjármál eða fjáröflun stjórnmálaflokka. Ég var
fylgjandi því að settar yrðu reglur um þessi efni
og kom meðal annarra að því að setja núgildandi
reglur, sem eru til bóta þótt þær séu ekki galla-
lausar.“
Guðlaugur segist því hafa farið að öllum sett-
um reglum sem til voru á þeim tíma og rúmlega
það. „Ég lagði ríka áherslu á það að þeir sem
söfnuðu fyrir mig fengju ekki stórar upphæðir
frá fáum aðilum heldur að fjáröflunin yrði eins
dreifð og hægt væri, líkt og gert er ráð fyrir í nýju
lögunum. Það var enginn einn sem hélt uppi
mínu prófkjöri og þannig vildum við líka hafa
það. Ég held að hæsta upphæðin hafi numið 8%
af heildarupphæð framlaga. Ég hefði ekki viljað
vera í þeirri stöðu sem sumir voru í, að vera fjár-
magnaðir eingöngu af einum eða tveimur fjár-
sterkum aðilum.“
Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur komst einnig
í fréttir á svipuðum tíma, þegar upplýst var að
flokkurinn hefði þegið 30 milljóna króna styrk
frá FL Group nokkrum dögum áður en löggjöf
um framlög til stjórnmálaflokka tók gildi. For-
maður flokksins baðst afsökunar á þessu og lof-
aði að greiða upphæðina til baka auk 25 millj-
óna króna styrks frá Landsbankanum. „Mitt
nafn tengdist þessu, þótt ég hafi ekki borið per-
sónulega ábyrgð á því, þar sem ég bað menn um
að afla fjár fyrir flokkinn. Ég skil vel að fólk hafi
verið ósátt við hvernig staðið var að þessu máli
hjá okkur, en það verður að hafa í huga að það
gekk ekki gegn neinum reglum sem í gildi voru
á þessum tíma og svo kom í ljós, þótt það hafi
fengið litla athygli, að aðrir stjórnmálaflokkar
stóðu líka í mikilli fjáröflun á þessum tíma. Sam-
fylkingin fékk til dæmis háa styrki frá fyrirtækj-
um. Félög tengd Jóni Ásgeiri styrktu hana um
25 milljónir, félög tengd Björgólfsfeðgum um
16 milljónir og félög tengd Ólafi Ólafssyni og
Bakkavararbræðrum 14 milljónir hvort um sig,
svo nokkur dæmi séu nefnd. Þegar þessar upp-
lýsingar voru birtar um mánuði eftir kosning-
ar, var eins og fjölmiðlar hefðu bara ekki lengur
skoðun á því hvort stjórnmálaflokkar hefðu átt
að þiggja háa styrki frá fyrirtækjum og athafna-
mönnum árið 2006 eða ekki.“
VINNUR Í ÞÁGU ALMENNINGS
Guðlaugur segist alla tíð hafa verið talsmað-
ur þess að hafa hlutina uppi á borðinu og hans
störf sem stjórnmálamaður sýni það í verki. Allt
tal um að hann sé að sinna erindum fjármálaafla
eigi ekki við nokkur rök að styðjast. „Menn skulu
skoða mín störf mjög gagnrýnið, en þau stand-
ast vel skoðun. Sem stjórnarformaður Orku-
veitu Reykjavíkur kom ég í veg fyrir að Orkuveit-
an keypti svokallað grunnnet Símans sem átti
að kosta allt að 20 til 23 milljarða árið 2006. Ég
stoppaði það líka að Orkuveitan byggði allt að
500 sumarbústaði við Úlfljótsvatn. Ég hvet menn
til að skoða hvernig staða Orkuveitunnar væri ef
orðið hefði af þessu.
Ég takmarkaði líka ábyrgð Orkuveitunnar af
útrásarstarfsemi fyrirtækisins, og í minni tíð var
starfsemin mjög takmörkuð, og einn af litlu hlut-
unum sem ég tók á var að koma í veg fyrir að
þjónar í búningum þjónuðu til borðs í Orkuveitu-
húsinu, en þannig var fyrirkomulagið þegar ég
kom að málum. Það ber að hafa í huga að þess-
ar áætlanir hefðu náð fram að ganga ef nýr borg-
arstjóri og nýr meirihluti hefði ekki tekið völdin
í borginni árið 2006. Ef einhver spyr mig hvort
ég telji mig hafa gætt hagsmuna almennings, er
svarið já. Ég tel mig svo sannarlega hafa gert það
og að það sé það sem ég reyni mitt besta til að
gera á hverjum degi.
Sem heilbrigðisráðherra tókst mér að ná
gríðarlegum árangri við að stytta biðlista í ýms-
ar aðgerðir og taka á rekstri heilbrigðisstofnana.
Aukin áhersla var lögð á forvarnir með nýrri
heilsustefnu. Þetta var í miðju góðærinu og þá
voru ekki háværar raddir að krefjast þessara að-
gerða. Ég lækkaði líka lyfjakostnað um einn og
hálfan milljarð í góðærinu. Er sá sem slíkt gerir
að vinna fyrir peningaöflin? Ég hef aldrei unnið
í þágu annars en almennings.“
ÞYKKUR SKRÁPUR
Þessi hugsjón, að bera hag fólksins fyrir brjósti, er
Guðlaugi greinilega mikilvæg og það sést þegar
verið er að ræða þessi mál. Var það því ekki erfitt
fyrir hann að sitja undir ásökunum um spillingu
og óheiðarleika? „Jú, það var mjög erfitt. Ég hélt
að maður væri kominn með ansi þykkan skráp
en greinilega ekki nógu þykkan. Mér fannst af-
skaplega erfitt að sitja undir þessu. Það sem var
erfiðast var að hugsa til alls þess fólks sem hef-
ur stutt mig í gegnum tíðina og hjálpað mér að
komast þangað sem ég er. Ef þetta fólk héldi, þótt
ekki væri nema í stutta stund, að ég væri einhver
annar en ég gef mig út fyrir að vera. En sem betur
fer fann ég fyrir miklum stuðningi í gegnum alla
þessa orrahríð. Ég vil að fólk geri miklar kröfur
til mín og treysti mér en auðvitað verð ég líka að
standa undir þeim kröfum og því trausti og held
ég hafi gert það í gegnum tíðina.“
ÆPT AF KVÖLUM EN
EKKI VONBRIGÐUM
Þótt Guðlaugur hafi mikinn drifkraft til að vera í
stjórnmálum og berjast fyrir hugsjónum sínum,
er pólitíkin ekki endastöð að hans sögn. „Ef ég
þyrfti að hætta á morgun eða ef ég myndi tapa
kosningum væri það enginn heimsendir. Aðrir
hlutir í lífinu eru mikilvægari, eins og fjölskyldan
og heilsan. Svo lengi sem maður hefur þá hluti í
lagi eru manni allir vegir færir.“
Guðlaugur hefur kynnst heilsumissi af eigin
raun eftir að hann brenndist illa árið 2006. Hann
hefur jafnað sig að fullu eftir það atvik en seg-
ist ánægður með að þjáningar hans hafi reynst
öðrum víti til varnaðar. „Það er mjög vont,“ seg-
ir Guðlaugur um hvernig tilfinning það sé að
brenna. „Manni varð hugsað til þess eftir þetta,
þegar verið var að brenna fólk á báli hér á öldum
áður. Hversu hræðileg grimmd það er, því kval-
irnar eru slíkar.“
Atvikið átti sér stað kringum jólin en Guðlaug-
ur hallaði sér óvart upp að logandi kerti þegar
hann var að lesa blað. „Ég var að lesa um eldgos í
Lifandi vísindum,“ segir Guðlaugur og skellir upp
úr enda nokkur kaldhæðni fólgin í því. „Ég fann
fyrir einhverjum hita á bakinu og leit við og svo
fann ég þennan gríðarlega sársauka. Það sem ég
gerði næst er einmitt það sem maður á ekki að
gera. Það var nýbúið að setja upp nýja eldhúsinn-
réttingu hjá okkur þannig að ég vildi síður vera að
standa í þessu þarna og hljóp út.“
Bruni Guðlaugs hefði orðið mun minni ef
hann hefði kastað sér strax á bakið til þess að
kæfa eldinn líkt og ráðlagt er við slíkar aðstæður.
„Ég hljóp út alveg eins og kjáni. Ef ég hefi gert
hitt hefði ég fengið smá sviða, skyrtan eyðilagst
og enginn rætt þetta nokkurn tímann.“ Það já-
kvæða við athyglina sem fylgdi atvikinu segir
Guðlaugur vera að svo hafi virst sem umræðan
hafi dregið úr brunaslysum almennt. Fólk hafi
gefið sig á tal við hann og sagt að atvikið hefði
fengið það til að hugsa um rétt viðbrögð í svona
aðstæðum.
Þegar Guðlaugur hljóp út úr húsi sínu öskr-
aði hann af kvölum og kallaði á eiginkonu sína,
Ágústu Johnson, til að fá hjálp. „Eftir það fór ég
undir sturtuna til að kæla brunann. Rafn stjúp-
sonur minn, sem var tólf ára þegar þetta var, kom
og spurði hvað væri að gerast. Ég spurði á móti
hvort hann hefði ekki heyrt öskrin í mér og hvers
vegna hann hefði ekki brugðist við þeim. Svarið
var: „Ég hélt bara að Liverpool hefði fengið á sig
mark.“ Það varpar kannski einhverju ljósi á við-
brögð mín þegar mínu liði, Liverpool, gengur illa
í boltanum,“ segir Guðlaugur og hlær.
ÍSLAND FRAMTÍÐARINNAR
Fram undan eru erfiðir tímar. Fram undan eru
líka miklir óvissutímar, bæði í stjórnmálum og at-
vinnulífi. Guðlaugur segist þó hvergi banginn og
ætlar að takast á við þær áskoranir sem að hönd-
um ber. „Það er mikilvægt fyrir okkur sjálfstæð-
ismenn að þétta raðirnar og styðja forystu okkar
í þessu erfiða verkefni, að byggja upp á ný. Það
er eiginlega ótrúlegt til þess að hugsa að á þeim
tíma sem er liðinn frá hruni hefur nánast ekk-
ert verið rætt um framtíðina. Þá sem nú eru við
stjórnvölinn skortir alla framtíðarsýn. Markmiðið
hlýtur að vera að Ísland verði sem allra best fyrir
börnin okkar í framtíðinni. Við sjálfstæðismenn
þurfum að vera mjög gagnrýnir þegar kemur að
okkur en á sama tíma uppbyggjandi. Við höfum
fengið á okkur brotsjói, en við verðum að sýna
þroska með því að koma tvíefldir til baka til þess
að leiða þessa þjóð inn í framtíðina. Ef við ger-
um það mun Sjálfstæðisflokkurinn aftur taka við
þeirri stöðu sem þjóðin hefur treyst honum til
þess að vera í fram að þessu.“ asgeir@dv.is
34 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 VIÐTAL
Manni varð hugsað til þess eftir þetta,
þegar verið var að brenna
fólk á báli hér á öldum áður.
Hversu hræðileg grimmd
það er, því kvalirnar eru
slíkar.
HEITUR LIVERPOOL-AÐDÁANDI „Ég spurði á
móti hvort hann hefði ekki heyrt öskrin í mér og
hvers vegna hann hefði ekki brugðist við þeim.
Svarið var: „Ég hélt bara að Liverpool hefði fengið á
sig mark.“ MYND SIGTRYGGUR ARI
FJÖLSKYLDAN Er Guðlaugi mikilvægust
og hann gæti hætt í stjórnmálum þess
vegna á morgun hennar vegna.
MYND BRAGI ÞÓR
40
ára
Vörur á verði fyrir þigSTELL
GLÖS
HNÍFAPÖR
ÖLL SÖFNUNAR
Kringlunni - Sími: 568 9955
www.tk.is
KRINGLUKAST
Mikið af
flottum
tilboðum