Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Blaðsíða 36
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON, kgk@dv.is
Valgarður fæddist á Grenivík við
Eyjafjörð og ólst upp í Hléskógum.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1961, embættisprófi í læknisfræði
við HÍ 1968, stundaði framhalds-
nám og rannsóknir í krabbameins-
fræðum við University College í
London 1972-79 og lauk doktors-
prófi í frumumeinafræði frá Uni-
versity of London 1978.
Valgarður var héraðslæknir
á Eskifirði 1968-69, kennari við
læknadeild HÍ 1979-84 og hefur
unnið að krabbameinsrannsókn-
um við Rannsóknarstofu Háskól-
ans í meinafræði frá 1979. Hann er
klínískur prófessor við Háskóla Ís-
lands og hefur verið yfirlæknir við
frumulíffræðideild Landspítalans
frá 1995.
Meðal skáldverka eftir Valgarð
má nefna: Dags hríðar spor, leik-
rit, sýnt í Þjóðleikhúsinu 1980, í
Bel fast 1984 og í Kaffileikhúsinu;
Ferjuþulur, Rím við bláa strönd,
útg. 1985 og sýnt af Alþýðuleikhús-
inu og af leikhópi á Akranesi þeg-
ar Akraborgin lauk göngu sinni;
Ferju þulur, lesnar af höfundi, útg.
á geisladiski 2001, ásamt sögunni
af Hakanum Hegg; Dúnhárs kvæði,
ljóðabók, útg. 1988; Á mörkum,
ljóðabók, útg. 2007 og á geisladiski
sama ár, lesin af höfundi.
Valgarður aðstoðaði við út-
gáfu á bók Páls G. Jónssonar, Flat-
eyjardalsheiði, útg. 2000. Hann
vann, ásamt Friðþjófi Helgasyni
ljósmyndara, Grímseyjarbók, útg.
2004, ritaði, ásamt Bjarna Guð-
mundssyni og Hauki Jóhannes-
syni, Árbók Ferðafélags Íslands
árið 2000, Í strandbyggðum norð-
an lands og vestan, og var hann
einn af viðmælendum Páls Ásgeirs
Ásgeirssonar í bókinni Fótspor á
fjöllum, útg. 2006.
Valgarður þýddi, ásamt Katrínu
Fjeldsted, leikritið Amadeus, eftir
Peter Shaffer, sýnt í Þjóðleikhúsinu
1983.
Valgarður var formaður fram-
kvæmdastjórnar Listahátíðar í
Reykjavík 1990 og 1994. Hann
keppti í sundi og setti Íslandsmet í
bringusundi 1958, hefur verið far-
arstjóri ferðahópa á sumrin, var
í nokkur ár varaforseti Ferðafé-
lags Íslands, hefur átt sæti í stjórn
Landverndar og var formaður
Samtaka foreldrafélaga í Reykjavík
1986-88.
Fjölskylda
Valgarður kvæntist 23.9. 1967
Katrínu Fjeldsted, f. 6.11. 1946,
lækni og fyrrv. alþm. Hún er dótt-
ir Lárusar Fjeldsted, f. 30.8.1918, d.
9.3.1985, forstjóra, og k.h., Jórunn-
ar Viðar, f.7.12.1918, tónskálds og
píanóleikara.
Börn Valgarðs og Katrínar eru
Jórunn Viðar, f. 16.6. 1969, lækn-
ir á Selfossi, gift Arnari Þór Guð-
mundssyni lækni; Einar Vésteinn,
f. 26.6. 1973, d. 3.3. 1979; Vésteinn,
f. 12.11. 1980, sagnfræðingur við
MR; Einar Steinn, f. 22.8. 1984, BA
í ensku.
Dóttir Valgarðs og Dómhildar
Sigurðardóttur er Arnhildur tón-
listarmaður, búsett i Mosfellsbæ.
Systkini Valgarðs: Sigurður, f.
26.9.1934, skipasmiður, síðast hús-
vörður í Ráðhúsi Reykjavíkur; Lára,
f. 23.12. 1935, sjúkraliði í Reykjavík;
Bragi, f. 19.6. 1937, d. 29.3. 1958,
læknanemi; Áskell, f. 28.8. 1938, d.
1.9.2002, skipasmiður á Akureyri;
Egill, f. 25.10.1942, d.13.12.2009,
eðlisfræðingur, menntaskólakenn-
ari og rithöfundur í Reykjavík;
Laufey, f. 5.8. 1947, hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík.
Foreldrar Valgarðs: Egill Ás-
kelsson, f. 28.2. 1907, d. 25.1. 1975,
sjómaður á Grenivík, síðan bóndi
í Hléskógum og kennari á Greni-
vík, og k.h., Sigurbjörg Guðmunds-
dóttir, f. 22.8.1905, d. 10.12 1973,
húsfreyja.
Ætt
Egill var m.a. bróðir Jóhannesar
jarðfræðings, Þorbjörns útgerðar-
manns og Skapta, skipasmiðs og
forstjóra Slippstöðvarinnar. Egill
var sonur Áskels, smiðs á Skugga-
björgum Hannessonar, í Aust-
ari-Krókum Friðrikssonar, Gott-
skálkssonar. Móðir Hannesar var
Þuríður, dóttir Kristjáns, ættföður
Illugastaðaættar.
Móðir Áskels var Hólmfríð-
ur Árnadóttir, afasystir Theodórs
Friðrikssonar rithöfundar.
Móðir Egils var Laufey Jóhanns-
dóttir, kirkjusmiðs á Skarði í Dals-
mynni, bróður Lísbetar, formóður
óperusöngvaranna Kristjáns Jó-
hannssonar og Magnúsar Jónsson-
ar. Móðir Laufeyjar var Sigurlaug
Einarsdóttir, ættföður Fellselsætt-
ar Bjarnasonar. Móðir Sigurlaug-
ar var Agata, systir Sigríðar, móð-
ur Þórhalls biskups, föður Tryggva
forsætisráðherra.
Systir Sigurbjargar var Sigríð-
ur G. Schiöth, söngkona og org-
anisti. Bróðir Sigurbjargar var
Sverrir, faðir Valgerðar, fyrrv.
alþm og ráðherra. Sigurbjörg var
dóttir Guðmundar, b. á Lóma-
tjörn Sæmundssonar. Móðir Sig-
urbjargar var Valgerður, systir
Ingu, langömmu Svanfríðar Jón-
asdóttur, fyrrv. alþm. og núver-
andi bæjarstjóra á Dalvík. Val-
gerður var dóttir Jóhannesar
Reykjalín, b. á Kussungsstöðum
Jónssonar Reykjalín, pr. á Þöng-
labakka, af ætt Jóns Grímseyj-
arformanns. Séra Jón var sonur
Jóns Reykjalín eldra, pr. á Ríp,
bróður prestanna Ingjalds og
Þorvarðar.
70 ÁRA Á LAUGARDAG
Bragi Ásgeirsson
TANNLÆKNIR OG HESTAMAÐUR
Bragi fæddist í Borgarnesi og ólst
þar upp og í Hvítársíðunni. Hann
lauk stúdentsprófi frá VÍ 1961 og
prófi í tannlækningum frá Hí 1969.
Bragi var aðstoðartannlækn-
ir við skóla í Reykjavík 1969-70,
tannlæknir í Borgarnesi 1970-81
en hefur starfrækt tannlæknastofu
í Reykjavík frá 1981 og i Keflavík
1987-2009.
Bragi starfaði í Lionsklúbbi
Borgarness 1970-81, í hesta-
mannafélaginu Faxa 1970-81 og
var varaformaður þess 1977-80,
sat í ritstjórn hestatímaritsins Eið-
faxa 1986-2002 og var stjórnarfor-
maður frá 1988-2002, sat í stjórn
hestamannafélagsins Fáks frá 1993
og var formaður þess 1996-2000.
Fjölskylda
Bragi kvæntist 15.12. 1962 Eddu
Hinriksdóttur, f. 2.3.1944, hár-
snyrtimeistara og framhaldsskóla-
kennara. Hún er dóttir Hinriks
Ragnarssonar, f. 15.11. 1920, d.
2000, bifreiðastjóra, og k.h., Jónu
Margrétar Árnadóttur, f. 1.3. 1913,
d. 6.1. 1990, húsmóður.
Börn Braga og Eddu eru Jóna
Dís Bragadóttir, f. 4.4. 1963, upp-
eldisfræðingur og kennari í Mos-
fellsbæ, en maður hennar er Helgi
Sigurðsson, f. 20.7.1952, dýra-
læknir, og er sonur Jónu Dísar og
Sigurðar Páls Jónssonar, Bragi Páll,
f. 29.3. 1984, en börn Jónu Dísar og
Helga eru Anna Jóna, f. 24.3. 1993,
og Hinrik Ragnar, f. 1.11. 1994;
Hinrik Bragason, f 10.9. 1968,
hrossabóndi að Árbakka í Lands-
sveit, en kona hans er Hulda Gúst-
afsdóttir, f. 5.3. 1966, hrossabóndi
og viðskiptafræðingur og eru böm
þeirra Edda Hrund, f. 19.12. 1992,
og Gústaf Ásgeir, f. 12.2. 1996;
Guðrún Edda Bragadóttir, f. 27.8.
1970, snyrtifræðingur í Reykjavík
en maður hennar er Sveinn Ragn-
arsson, f. 5.2. 1969, viðskiptafræð-
ingur og eru synir þeirra Ragn-
ar Bragi, f. 18.12. 1994, og Konráð
Valur, f. 24.8. 1996.
Systkini Braga eru Ásgeir Ás-
geirsson, f. 23.6. 1948, skrifstofu-
maður hjá Borgarverki í Borgar-
nesi; Ólafur Árni Ásgeirsson, f. 4.8.
1931, d. 5.10. 2008, verkfræðingur í
Texas í Bandarikjunum.
Foreldrar Braga voru Ásgeir Þ.
Ólafsson, f. 28.10. 1902, d. 15.7.
1995, dýralæknir í Borgarnesi, og
k.h., Guðrún Svava Árnadóttir,
f. 23.12. 1908, d. 18.7. 1993, hús-
móðir.
Ætt
Ásgeir var bróðir Braga læknis. Ás-
geir var sonur Ólafs, kaupmanns í
Keflavík, bróður Ófeigs í Leiru, föð-
ur Tryggva útgerðarmanns, föður
Páls Ásgeirs, fyrrv. sendiherra. Ól-
afur var sonur Ófeigs, hreppstjóra á
Fjalli Ófeigssonar, ættföður Fjalls-
ættar Vigfússonar, bróður Sólveig-
ar, langömmu Guðnýjar, móður
Guðlaugs Tryggva hestamanns.
Móðir Ófeigs á Fjalli var Ingunn
Eiríksdóttir, ættföður Reykjaættar
Vigfússonar. Móðir Ólafs var Vil-
borg Eyjólfsdóttir, hreppstjóra í
Auðsholti Guðmundssonar og Sig-
ríðar Ólafsdóttur.
Móðir Ásgeirs var Þórdís Ein-
arsdóttir, b. á Kletti í Króksfirði
Jónssonar, b. á Kletti Björnssonar.
Móðir Einars var Þórdís Jónsdóttir.
Móðir Þórdísar var Halldóra Jóns-
dóttir, b. á Bakka í Geiradal Jóns-
sonar, b. á Gillastöðum Jónssonar.
Móðir Halldóru var Elísabet Jóns-
dóttir, b. á Kambi Jónssonar.
Guðrún Svava var systir Gunn-
ars framkvæmdastjóra, föður
Styrmis, fyrrv. ritstjóra Morgun-
blaðsins. Guðrún Svava var dótt-
ir Árna, kaupmanns og leikara í
Reykjavík Eiríkssonar. Móðir Árna
var Halldóra Árnadóttir, b. á Út-
skálahamri Magnússonar, b. þar
Magnússonar, b. á Bakka Hall-
grímssonar, b. þar Þorleifssonar.
Móðir Hallgríms var Guðrún Eyj-
ólfsdóttir, b. á Ferstiklu Hallgríms-
sonar, sálmaskálds Péturssonar.
Móðir Halldóru var Margrét
Þorkelsdóttir, b. á Lykkju Jóns-
sonar, og Álfheiðar Alexíusdótt-
ur, systur Rannveigar, formóður
Össurar Skarphéðinssonar, Marð-
ar Árnasonar og Guðrúnar Helga-
dóttur rithöfundar. Móðir Álfheið-
ar var Helga Jónsdóttir, ættföður
Fremra-Hálsættar Árnasonar.
Móðir Guðrúnar Svövu var Vil-
borg Runólfsdóttir, b. í Ásgarði í
Landbroti Jónssonar og Vilborgar
Ásgrímsdóttur.
Bragi heldur upp á daginn með
fjölskyldunni.
Elís fæddist í Gautavík í Berunes-
hreppi. Hann var bifreiðastjóri frá
1948, var steypustöðvarstjóri EPS
Vallár um tuttugu ára skeið, og
umboðsmaður birgðastöðvar BP á
Breiðdalsvík í þrettán ár.
Elís starfrækti ferðaþjónustuna
Áka á Breiðdalsvík á árunum 1998-
2004 og bauð þar upp á fjölbreyttar
bátsferðir á bátnum Áka með ýms-
um uppákomum.
Hann flutti til Akureyrar 2004
og hefur síðan stundað sjóferðir
með bátnum Húna, ásamt kenn-
urum og aðila frá sjávarútvegsdeild
Háskólans á Akureyri með grunn-
skólabörn í 6. bekk. Sjóferðirnar eru
hugsaðar sem verklegt námsefni
barnanna og bera heitið Frá öngli í
maga. Þar kynnast grunnskólanem-
ar handfæraveiðum og öðrum verk-
um þeim tengdum, gera síðan að
fisknum um borð, flaka hann, mat-
reiða hann síðan og borða hann.
Auk þess er báturinn með krabba-
gildru sem tekin er upp í hverri ferð
og þau sjárvardýr sem þar finnast,
skoðuð og skilgreind.
Elís gekk reglulega reka á Langa-
nesi á sjötta og sjöunda áratugnum
og var mikill áhugamaður um rétt
Íslendinga á Jan Mayen.
Elís starfaði í Lionsklúbbn-
um Svani á Breiðdals-
vík í þrjátíu og fjögur ár
og var nokkrum sinnum
formaður hans og svæð-
isstjóri. Þess má geta
að félagsmenn í Lions-
klúbbnum Svani hafa
hirt heimilissorp í Breið-
dalsvík vikulega í þrjátíu
og tvö ár. Allar þær tekjur
sem klúbburinn hefur fengið fyrir
sorphirðuna hafa gengið til tækja-
kaupa fyrir heilsugæslustöðina á
Breiðdalsvík.
Fjölskylda
Eiginkona Elísar er Fjóla Ákadótt-
ir, f. 17.1. 1940, húsmóðir. Hún er
dóttir Áka Kristjánssonar og Ás-
laugar Jónsdóttur frá Brekku á
Djúpavogi sem bæði eru látin.
Börn Elísar og Fjólu: Áki Elís-
son, f. 15.2. 1958, d. 12.3. 1994, en
kona hans var Bryndís Karlsdótt-
ir húsmóðir og eru börn þeirra
Fjóla, Sóley, Lilja og Brynjar Elís;
Sigurður Elísson, f. 21.10. 1960,
bílstjóri á Breiðdalsvík, kvæntur
Jóhönnu Guðnadóttur húsmóður
og eru börn þeirra Aðalbjörg Eva
og Arnór Ari; Áslaug Elísdóttir, f.
14.8. 1964, húsmóðir í Reykjavík,
gift Birni Hermannssyni vélstjóra
og eru synir þeirra Sindri
Már og Ævar Þór; Erla
Vala Elísdóttir, f. 26.4.
1971, húsmóðir í Sönne-
borg í Danmörku en börn
hennar eru Sigurlaug
Stefanía og Páll Erlingur;
Stefanía Fjóla Elísdóttir, f.
26.4. 1971, rafvirki og let-
urgrafari á Akureyri, gift
Áka Garðarssyni viðgerðarmanni
og eru börn hennar Heiðdís Lóa
Ben og Svanur Áki Ben; Ragna
Valdís Elísdóttir, f. 26.1.1979, iðju-
þjálfi í Sönneborg í Danmörku, en
maður hennar er Jakob Eiríksson
húsasmiður og eru börn þeirra
Blædís Björt og Amanda Ösp; Elís
Pétur Elísson, f. 2.4. 1981, vél-
fræðingur við skipasmíðastöð í
Hamborg í Þýskalandi en kona
hans er Þórunn Hjartardóttir hús-
móðir og er dóttir þeirra Dagbjört
Fjóla Elísdóttir.
Bróðir Elísar var Stefán Sig-
urðsson sem lést tólf ára.
Uppeldisbróðir Elísar er Guð-
mundur Ottósson bifreiðasmið-
ur.
Foreldrar Elísar: Sigurður Stef-
ánsson, póstur og bóndi á Krossi
í Beruneshreppi, og k.h., Sigríður
Stefánsdóttir húsfreyja.
KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
80 ÁRA Á FÖSTUDAG
Elís P. Sigurðsson
FERÐAFRÖMUÐUR
36 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 ÆTTFRÆÐI
Valgarður Egilsson
YFIRLÆKNIR OG RITHÖFUNDUR
70 ÁRA Á LAUGARDAG