Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 HELGARBLAÐ
Jóhannes fæddist á Litlu-Brekku í
Borgarhreppi og ólst þar upp og á Ána-
brekku. Hann hóf nám við Bænda-
skólann á Hvanneyri 1937 og lauk það-
an búfræðiprófi 1939.
Fyrstu búskaparár sín bjó Jóhann-
es á Litlu-Brekku í félagi við föður sinn
en árið 1939 festi hann kaup á jörð-
inni Ánabrekku og bjó þar allt til árs-
ins 1997 . Það ár fluttu þau hjón í Borg-
arnes og þar var Jóhannes búsettur til
dauðadags.
Jóhannes var ræktunarmaður sem
sýndi sig í því að hann átti góðan fjár-
stofn. Hann hafði auk þess sérstakan
áhuga á hrossarækt
Jóhannes var einn af stofnend-
um Fiskræktarfélags Langár sem síð-
ar varð Veiðifélag Langár. Hann vann
ötullega að uppbyggingu Langár um
langt árabil, ásamt öðrum landeigend-
um, var formaður félagsins frá stofn-
un 1959 og til 1997 og var heiðursfé-
lagi í Landsambandi veiðifélaga. Þá sat
hann í hreppsnefnd Borgarhrepps á
árunum 1950-86, og var heiðursfélagi
í hestamannafélaginu Faxa.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist 24.4. 1950 Ásu Ól-
afsdóttur, f. 13.11. 1921, húsfreyju. For-
eldrar hennar voru Ólafur Gíslason,
f. 25.9. 1882, bóndi í Geirakoti í Fróð-
árhreppi og sjómaður, og Ólöf Ein-
arsdóttir, f. 17.2. 1899, húsfreyja. Þau
bjuggu seinna í Reykjavík. Þess má
geta að Ólafur sá einnig um póstflutn-
inga til Grundarfjarðar á sínum tíma.
Dóttir Jóhannesar og Ásu er Ragn-
heiður Valdís, f. 17.4. 1946, húsfreyja
og ferðaþjónustubóndi á Litlu-Brekku
en maður hennar er Stefán Magnús
Ólafsson, f. 16.7. 1942, bóndi og húsa-
smiður.
Börn Ragnheiðar Valdísar og Stef-
áns Magnúsar eru Ása Björk Stef-
ánsdóttir, var gift Runólfi Ágústssyni
og eru synir þeirra Skarphéðinn Án,
Stefán Bjartur og Eyvindur Ágúst; Jó-
hannes Freyr Stefánsson, kvæntur
Ásthildi Magnúsdóttur og eru dætur
þeirra Ragnheiður Guðrún og Auður
Vilhelmína en fyrir átti Jóhannes Þor-
vald og Ásta Magnús Þór; Ólafur Ág-
úst Stefánsson en sambýliskona hans
er Theódóra Bjarnadóttir og er sonur
Ólafs úr fyrri sambúð Stefán Óli; Hjör-
leifur Helgi Stefánsson, kvæntur Önnu
Dröfn Sigurjónsdóttur, en synir þeirra
eru Jóhannes Þór og Eyjólfur Ágúst,
auk þess sem þau ólu upp Hjördísi
Smith, systurdóttur Jóhannesar. Hún
er gift Ólafi Þ. Harðarsyni og er dóttir
þeirra Ásthildur Hanna.
Fyrir átti Jóhannes dóttur, Helgu
Fríðu Kolbrúnu, f. 28.2. 1940, veitinga-
mann. Móðir hennar var Sigurlaug
Júlíusdóttir,f. 11.9. 1918, d. 1991.
Börn Kolbrúnar eru Linda Bjarn-
ey, gift Gissuri Ísleifssyni og eru börn
þeirra Ísleifur, í sambúð með Ernu
Kar en Kristjánsdóttur en þau eiga
Gissur Mána og Köru Sól, Kolbrúnu,
Hrafnkel Inga og Védísi; Guðmund-
ur Vignir, var kvæntur Jórunni Birgis-
dóttur og eru börn þeirra Snorri, sem
á soninn Sindra Snæ, og Sara Ingi-
björg .
Systkini Jóhannesar: Helga Guð-
fríður, f. 28.10. 1916 en maður henn-
ar var Sigursteinn Þórðarson sem er
látinn og eignuðust þau fimm börn;
Valtýr Haukur, f. 17.4. 1918, d. 28.10.
1927; Kristín Fanney, f. 22.5. 1919 en
maður hennar er Hilmar Skagfield og
eignuðust þau þrjú börn; Ragnheið-
ur Valdís, f. 21.7. 1920, d. 20.2. 2010,
var gift Leónard Pepper og eignuð-
ust þau fimm börn; Ásta Jóhanna, f.
15.2. 1922, d. 10.8. 1955, var gift Thor-
olf Smith og eignuðust þau þrjú börn;
Hjördís Þórhildur, f. 20.12. 1923 og
eignaðist hún eitt barn; Óskar Guð-
mundur Þorvalds, f. 23.8. 1925, d.
17.10. 1989, var kvæntur Ragnhildi
Einarsdóttur, og eignuðust þau fjögur
börn; Guðfríður Ágústa, f. 23.8. 1925,
d. 31.10. 1927; Valtýr Haukur, f. 4.7.
1928, d. 4.6. 1928.
Foreldrar Jóhannesar voru Guð-
mundur Þorvaldsson, f. 4.2. 1888, d.
1974, bóndi á Litlu-Brekku, og k.h.,
Guðfríður Jóhannesdóttir, f. 10.4.
1884, d. 1980, húsfreyja og ljósmóðir.
Ætt
Guðmundur var sonur Þorvalds, b.
á Hofsstöðum og á Litlu-Brekku Er-
lendssonar, b. á Álftárósi á Mýrum Sig-
urðssonar. Móðir Þorvalds var Guðný
Einarsdóttir.
Móðir Guðmundar var Helga, hálf-
systir, sammæðra, Einars, b. á Hegg-
stöðum, föður Guðmundar, grenja-
skyttu á Brekku á Ingjaldssandi. Helga
var dóttir Sigurðar, b. á Háhóli Jóns-
sonar, b. á Kvíslarhöfða og á Hellis-
sandi Finnssonar. Móðir Sigurðar var
Guðrún Árnadóttir. Móðir Helgu var
Helga, systir Sigurðar, b. í Miklholti í
Hraunhreppi, afa Helga Hjörvar, rit-
höfundar og útvarpsmanns, Lárusar,
glímukóngs og lögregluþjóns, Gunn-
ars Úrsusar, Péturs Hoffmanns og Har-
aldar, föður Auðar rithöfundar. Helga
var dóttir Salomons, b. á Háhóli í Álfta-
neshreppi, nefndur Horna-Salómons-
son.
Guðfríður var dóttir Jóhannesar, b.
í Múlakoti í Stafholtstungum Magnús-
sonar, b. á Gljúfurá Þorsteinssonar..
Móðir Guðfríðar var Elín Kristín
Jónsdóttir, b. á Saurum í Helgafells-
sveit Guðnasonar, og Steinunnar Sig-
urðardóttur.
Útför Jóhannesar verður frá Borg-
arneskirkju laugardaginn 20.3. og
hefst kl. 14.00.
Jón Ólafsson
RITSTJÓRI, SKÁLD
OG ALÞINGISMAÐUR
f. 20.3. 1850, d. 11.7. 1916
Jón Ólafsson var sonur Ólafs
Indr iðasonar, prófasts á Kol-
freyjustað, og seinni konu hans,
Þorbjargar Jónsdóttur, silfur-
smiðs í Dölum Guðmundssonar.
Séra Ólafur var prýðilegt
skáld enda urðu synir hans, Páll
og Jón, báðir landsþekkt skáld.
Páll Ólafsson,
umboðsmað-
ur á Hall-
freðar-
stöðum og
alþm., var
hálfbróðir
Jóns, sam-
feðra, og eitt
vinsælasta
skáld 19. aldar.
Hann orti m.a. Ó blessuð vertu
sumarsól og Lóan er komin, auk
þess sem hann orti dásamlegar
drykkju- og hestavísur og heila
ljóðabók af ástarljóðum til seinni
konu sinnar, Ragnhildar Björns-
dóttur.
Jón Ólafsson var ekki eins lið-
tækt skáld og Páll, bróðir hans,
en bætti það upp með pólitík-
inni. Hann var einn róttækasti
og harðsvíraðasti málsvari sjálf-
stæðisbaráttunnar er þyngstur
var róðurinn, eftir Stöðulögin
1871 og stofnun landshöfðinga-
embættis 1873.
Jón varð frægur á einni nóttu
fyrir Íslendingabrag sinn, mergj-
aða ádeilu á Dani og „danska“
Islendinga. Íslendingabrag-
ur sem var sunginn við franska
þjóðsönginn fór eins og eld-
ur um sinu um allt landið. Þá
vandaði Jón ekki kveðjurnar,
fyrsta landshöfðingjanum og
var sóttur til saka fyrir skrifin.
Hann lagði þá land undir fót og
fór til Kanada, líklega sem fyrsti
og eini íslenski pólitíski útlaginn
Jón fór þá m.a. rannsóknarför
til Alaska. Hann var aftur í Kan-
ada 1890-97.
Jón var ritstjóri fjölda blaða,
s.s. Göngu-Hrólfs, Skuldar á
Eskifirði, Þjóðólfs, Sunnanfara
og Reykjavíkur, og ritstjóri Lög-
bergs og Heimskringlu í Winni-
peg. Hann var alþm. 1880-90
og 1909-13 og bjó þá um skeið
í því sögufræga húsi Laufásvegi
5, einu elsta steinhúsi Reykja-
víkur sem var heimili ýmissa
annrra þekktra einstaklinga, s.s.
Jóns Árnasonar þjóðsagnasafn-
ara, Þorvalds Thoroddsen nátt-
úrufræðings og síðar frú Stef-
aníu Guðmundsdóttur leikkonu
og barna hennar, en þrjár dætur
hennar urðu frægar leikkonur.
Jón skrifaði mikið um stjórn-
mál, vakti fyrstur manna máls
á þingræði hér á landi, var eins
og Jón forseti hallur undir frjáls-
hyggju og þýddi höfuðrit um
einstaklingsfrelsi, Frelsið, eftir
John Stuart Mill.
Jón var sannarlega fjöl-
menntaður heimsmaður og
einn litrikasti málsvari sjálf-
stæðisbaráttunnar. Hann var
m.a. langafi Halldórs Jónssonar,
verkfræðings og forstjóra. Ævi-
minningar Jóns eru skemmti-
legar aflestrar og prýðilegur ald-
arspegill hans tíma. Þær voru
lesnar í útvarpi fyrir allmörgum
árum.
MINNING
Jóhannes M. Guðmundsson
BÓNDI Á ÁNABREKKU Í BORGARHREPPI
MERKIR
ÍSLENDINGAR
Eggert fæddist við Njálsgötuna í
Reykjavík og ólst upp í Reykjavík en
lengst af, eða í þrjátíu og fimm ár, átti
hann heima í Engjabæ við Holtaveg
þar sem faðir hans rak sauðabú. Þar er
nú Grasagarðurinn í Laugardalnum.
Eggert byrjaði ungur til sjós, var
m.a. á Skúla fógeta 1931 og Hann-
esi ráðherra 1932, auk fjölda ann-
arra skipa. Hann tók mótorpróf 1938
og minna stýrimannaprófið 1946 en
hann var m.a. fyrsti vélstjóri á Elsu
sem var á veiðum við Grænland 1949
og annar vélstjóri á Hamranesi.
Eggert átti vörubíla og keyrði þá
um nokkurra ára skeið. Hann var
félagi í Vörubílstjórafélaginu Þrótti
1940-48. Þá starfaði Eggert um hálfs
árs skeið 1950 í Gambíu á vegum Ný-
lendudeildarinnar í London.
Eggert var sjálfmenntaður list-
málari en hann málaði myndir frá
1960 og var einn þekktasti naívist-
inn hér á landi. Hann sótti gjarn-
an myndefni sitt til þeirra framandi
slóða sem hann hafði heimsótt, eða
í minningarbrot og fréttnæma við-
burði mannlífsins.
Eggert tók þátt í nokkrum sam-
sýningum hér heima og erlendis og
hélt nokkrar einkasýningar, m.a. hjá
Dagsbrún í Lindarbæ, 1965; í Djúp-
inu við Hafnarstræti, 1982 og oft síð-
an; í Háskólabíói, 1983; í Listmuna-
húsinu, 1985, og á Kjarvalsstöðum
1987; Safnasafninu 2002; í Hafnar-
borg, í Galleríi Louise Ross í New
York og nokkrum sinnum í Gallerí
Fold og í Gerðubergi.
Foreldrar Eggerts voru Magn-
ús Jónsson frá Breiðholti í Reykjavík
og Hrefna Eggertsdóttir Norðdal frá
Hólmi í Seltjarnarneshreppi.
Ætt
Þess má geta að þrjár götur í Breið-
holtinu bera nöfn föðursystra Egg-
erts, Þórufell, Lóuhólar og Maríu-
bakki. Hálfbróðir Magnúsar er
Haukur, afi Hauks Gunnarssonar,
heimsmeistara og afrekshafa á al-
þjóðlegum íþróttamótum fatlaðra.
Magnús var sonur Jóns, b. í Breið-
holti Jónssonar, og Bjargar Magnús-
dóttur, af húnvetnskum ættum.
Hrefna var hálfsystir Magnús-
ar, föður Hreggviðs Norðdahl, dokt-
ors í jarðfræði. Hrefna var dóttir
Eggerts Norðdahl, b. í Hólmi, bróð-
ur Skúla, föður Gríms Norðdahl, b.
á Úlfarsfelli. Eggert var sonur Guð-
mundar Norðdahl, b. á Elliðakoti í
Mosfellssveit Magnússonar Norð-
dahl, pr. í Meðallandsþingum Jóns-
sonar, pr. í Hvammi Magnússonar,
sýslumanns í Búðardal Ketilsson-
ar. Móðir Magnúsar sýslumanns var
Guðrún Magnúsdóttir, systir Skúla
landfógeta. Móðir Magnúsar Norð-
dahls var Guðrún Guðmundsdóttir,
sýslumanns á Svignaskarði Ketils-
sonar, bróður, samfeðra, Magnúsar
í Búðardal. Móðir Guðmundar var
Rannveig Eggertsdóttir, pr. í Staf-
holti Bjarnasonar, landlæknis Páls-
sonar. Móðir Eggerts var Rannveig
Skúladóttir, landfógeta Magnússon-
ar. Móðir Eggerts í Hólmi var Guð-
rún Jónsdóttir, b. í Langholti Giss-
urarsonar og Guðrúnar Jónsdóttur,
b. á Syðri-Steinsmýri Jónssonar, pr. í
Meðallandsþingum Jónssonar, bróð-
ur Steingríms biskups. Móðir Jóns
prests var Helga Steingrímsdóttir,
systir Jóns eldprests.
Móðir Hrefnu var Valgerður, syst-
ir Eiríks, afa Vigdísar Finnbogadótt-
ur. Annar bróðir Valgerðar var Ein-
ar, faðir Guðmundar frá Miðdal,
föður Errós. Valgerður var dóttir
Guðmundar, b. í Miðdal í Mosfells-
sveit Einarssonar, b. á Álfsstöðum á
Skeiðum Gíslasonar, b. á Álfsstöð-
um Helgasonar, bróður Ingveld-
ar, móður Ófeigs ríka á Fjalli og Sól-
veigar, langömmu Guðnýjar, móður
Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Móð-
ir Guðmundar var Margrét Hafliða-
dóttir, b. á Birnustöðum Þorkels-
sonar. Móðir Guðbjargar var Vigdís
Eiríksdóttir, b. á Vorsabæ á Skeiðum
Hafliðasonar, bróður Margrétar.
MINNING
Eggert Magnússon
LISTMÁLARI
Fæddur 28.10. 1916 - Dáinn 11.3. 2010
Fæddur 10.3. 1915 - Dáinn 14.3. 2010