Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 NAFN OG ALDUR? „Einar Tönsberg, 37 ára.“ ATVINNA? „Tónlistarmaður.“ HJÚSKAPARSTAÐA? „Á yndislega kærustu.“ FJÖLDI BARNA? „Ein glæný stúlka.“ HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR? „Ekki lifandi.“ HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST? „Íslensku tónlistarverðlaunin ef tónleika má kalla. Dikta og Hjaltalín voru í góðu formi.“ HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN? „Nei, mig skortir þau rokkstig.“ HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU? „Ég ber afskaplega litlar taugar til fata, úff, ég bara veit það ekki.“ HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN? „Já, já. Ég er samt lélegur í megrun.“ HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆL- UM? „Algjörlega. Fyrstu skipulögðu mótmælin mín voru að öskra alltaf þegar ég var svangur. Ég er að ná að venja mig af því.“ TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF? „Ég veit lítið um svoleiðis.“ HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ HAFA HALDIÐ UPP Á? „Ég hef haldið upp á alls kyns lög sem þykja hallær- isleg, skammast mín samt ekkert fyrir það. The Final Countdown er hresst.“ HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR? „Siggi, Lási og Lína, Óskar og Stína.“ TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA? „Sumarsins í Hvalfirðinum.“ HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFTUR? „Until the end of the world. Ef ég gæti tekið upp drauma mína þá myndi ég eyða öllum mínum vak- andi stundum í að horfa á þá.“ AFREK VIKUNNAR? „Stytta.“ HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR? „Nei, forðast það eins og heitan eldinn.“ SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI? „Já, það hjálpar í mínu starfi.“ VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ? „Ekki á hnjánum.“ HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU? „Fjölskylda, vinir og góð heilsa.“ HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ? „Fjármálaráðherra. Ég myndi spyrja hann af hverju hann fórnaði jarðfræðinni fyrir þetta stjórnmálabrölt. Að fylgjast með skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli hlýtur að vera meira spennandi en að fylgjast með óróanum á Alþingi Íslands.“ HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST VILJA HITTA OG AF HVERJU? „Hefði viljað vera fluga á vegg á fundum Listamanna- klúbbsins á baðstofu Naustsins hér rétt eftir miðja síðustu öld. Þar komu saman margir merkir menn.“ HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ? „Já, já, en ljóð er samt svo fullorðins að ég hika að- eins við að svara þessu játandi.“ NÝLEGT PRAKKARASTRIK? „Að strá skeljum í tugatali upp á topp Esjunnar.“ HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ MEST? „Nú er ég blankur.“ ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA? „Ég helli upp á kaffi.“ Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI? „Þetta er ágætt eins og þetta er.“ HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN? „Don Zoko.“ HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ AÐ SOFA? „Það síðasta sem ég geri áður en ég fer að sofa.“ HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI? „Að hætta að kenna öllum öðrum um ófarir sínar.“ Einar Tönsberg, eða Eberg eins og hann er kallaður, vann á dögunum Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir besta lag ársins, Dreamin. Einar vill ekki að Ísland gangi í Evrópusambandið á hnjánum og segir að það besta sem gæti komið fyrir Ísland væri að hætta að kenna öðrum um ófarir sínar. Hann er ný- orðinn pabbi og hlakkar til sumarsins í Hvalfirðinum. NÝORÐINN PABBI M Y N D IR S IG TR Y G G U R A R I Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16 Listmunauppboð á næstunni Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma 551-0400, 896-6511 (Tryggvi), 845-0450 (Jóhann) Erum að taka á móti verkum núna í Galleríi Fold við Rauðarárstíg – VERKIN TALA Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 www.velfang.is • velfang@velfang.is Fr um Nýtt og traust umboð fyrir á Íslandi varahlutir þjónusta verkstæði vélar KOMIÐ ÚT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.