Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 LOSTAKÚSTAR Á HM Mottumars er nú í gangi hér á Íslandi til stuðning góðu málefni. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem karlmenn safna losta kústi á efri vörina á sér. Á heims- meistaramótunum í gegn- um tíðina hafa fjölmargir knattspyrnumenn boðið upp á glæsilegt og þykkt yfirvaraskegg. GIUSEPPE BERGOMI, ÍTALÍU 1982 Bergomi lék heil 19 tímabil með Inter frá Mílanó. Hann var í ítalska landsliðinu frá 1982 til 1998 og lék 81 landsleik og skoraði sex mörk. Hann var kallaður Lo zio eða frændinn sökum lostakústsins sem hann var svo frægur fyrir. RONALD SPELBOS, HOLLANDI 1982 Spelbos var varnarmaður og mikill nagli. Hann lék 21 landsleik fyrir Hollendinga á sjö ára tímabili frá 1980 til 1987. Hann náði að pota boltanum einu sinni yfir marklínuna. CLAUDE LE ROY, ÞJÁLFARI SENEGAL 1998 Le Roy er Frakki og hefur þjálfað víða um heim í 30 ár. Þegar hann var þjálfari Senegal 1998 bauð hann upp á fallegt yfirvaraskegg sem kom Senegal alla leið í undanúrslit. Eða svo gott sem. PAUL BREITNER, VESTUR-ÞÝSKALANDI 1982 Einn umdeildasti leikmaður Þýskalands fyrr og síðar. Hann lék 48 landsleiki með Vestur-Þýskalandi og skoraði 10 mörk. Hann skoraði meðal annars í tveimur úrslitaleikjum á HM, 1974 og 1982. RIVELINO, BRASILÍU 1974 Frægur fyrir sinn eitraða vinstri fót og að kynna fyrir fótboltamönnum Elastico sem Zidane, Ronaldinho og Ronaldo hafa allir notað. Hann lék 92 landsleiki fyrir Brasilíu og skoraði 26 mörk. MARIO KEMPES, ARGENTÍNU 1978 Aðalmaðurinn í liði Argentínu sem vann HM árið 1978. Kall- aður El Matador fyrir ótrúlegt markanef en hann skoraði 20 mörk í 43 landsleikjum og 291 mark í 538 leikjum með fjölmörgum félagsliðum. GRAEME SOUNESS, SKOTLANDI 1978 Herra Harður – með kúst á efri vörinni. Souness var aðalmaðurinn í ótrúlegu liði Liverpool sem vann allt með Souness. Hann var 12 ár í skoska landsliðinu, lék 54 landsleiki og skoraði 12 mörk. RUDI VÖLLER, ÞÝSKALANDI 1990 Ef einhver er frægur fyrir að vera með lostakúst þá er það Völler. Þvílíkur framherji og þvílík motta. Hann lék 90 landsleiki og skoraði 47 mörk - krækti meðal annars í vítið umdeilda á HM 1990. PHILIPPE ALBERT, BELGÍU 1994 Belginn stóri fór ekkert á þess að vera með fallegan kúst á efri vörinni. Goðsögn hjá stuðningsmönnum Newcastle og enn er sungið um hann. Lék 41 landsleik með Belgum og skoraði 5 mörk. CARLOS VALDERRAMA, KÓLUMBÍU 1998 Frægasti fótboltamaður síðari tíma – bæði vegna hæfileikanna og útlitsins. Lúkkið með ljósa hárið og svörtu mottuna klikkaði aldrei og hefur enginn komið í stað Valderrama. Lék 111 landsleiki og skoraði 11 mörk. DAVID SEAMAN, ENGLANDI 2002 Mottan fór úr tísku í smástund en Sea- man bar alltaf mottu með þeirri virðingu sem hún á skilið. Rakaði sig og fékk bágt fyrir. Lék 75 landsleiki fyrir England – alla með mottu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.