Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Síða 51
19. mars 2010 FÖSTUDAGUR 51
LITRÍKT SUKK
OG SVÍNARÍ
2010-útgáfan af John Terry er ekkert
til að hrópa húrra fyrir. Hann hefur
hins vegar verið duglegur að koma sér
í fréttirnar í gegnum tíðina fyrir allt
annað en getu í fótbolta.
John Terry, Frank
Lampard, Jody Morris
og Eiður okkar Guð-
johnsen voru árið 2001
sektaðir fyrir dónaskap
í garð bandarískra
ferðamanna á Heathrow-
hótelinu 11. september
það ár. Sama dag og
hryðjuverkaárásirnar voru
gerðar á Tvíburaturnana í
New York.
Terry og Jody Morris
voru ákærðir fyrir
líkamsárás á næturklúbbi
í London. Báðir voru þeir
sýknaðir. Enska knatt-
spyrnusambandið ákvað
að Terry myndi ekki koma
til greina í hópinn fyrir HM
2002 fyrr en málinu væri
lokið. Chelsea sektaði þó
bæði Terry og Morris fyrir
næturbröltið.
Terry var rekinn af velli
fyrir að kalla Ledley
King fyrirliða Tottenham
apa. Þeldökkir leikmenn
Tottenham urðu æfir af
reiði og Didier Drogba
skipti sér ekki af sínum
manni. Terry réðst á
Graham Poll dómara
með blótsyrðum. Hann
var ákærður af enska knattspyrnusambandinu og játaði sök.
Þurfti að borga 10 þúsund pund í sekt.
Claude Makalele
fyrrverandi sam-
herji Terrys segir
í ævisögu sinni að
Terry hafi spilað
stóra rullu í því að
Jose Mourinho
hafi verið látinn
fara frá Chelsea.
Terry neitaði sök.
Foreldrar hans fóru að
sjá um að koma Terry í
blöðin. Sue, móðir Terrys,
var aðvöruð af lögreglu
eftir að hún var gripin
glóðvolg við búðarhnupl
í London. Nokkru
síðar var faðir hans, Ted,
sakaður um að hafa
reynt að selja dulbúnum
blaðamanni fíkniefni.
Í lok síðasta árs varð
Terry fórnarlamb
dulbúinna
blaðamanna þegar
hann var gripinn á
myndband að reyna
að selja sýnisferðir
um æfingasvæði
Chelsea fyrir tíu
þúsund pund.
Slíkt er stranglega
bannað enda
æfingasvæði knatt-
spyrnuliða næsta
heilög og ekki opin
hverjum sem er.
John Terry var
nafngreindur sem
The Sportsman
og enska pressan
afhjúpaði að hann
ætti í ástarsam-
bandi við Vanessu
Perroncel, eigin-
konu besta vinar
síns og liðsfélaga,
Wayne Bridge.
Terry hefur ekki
enn beðið Bridge
afsökunar eða
fyrirgefningar.
Breskir
fjölmiðlar halda
áfram að leita
að beinagrind-
um í öllum
skápum Terrys.
Daily Mail kom
upp um það
þegar fulltrúi
hans reyndi að
leigja blaða-manni lúxusstúku enska landsliðsfyrirliðans á Wembley, slíkt er harðbannað.
Fabio Capello
svipti Terry
fyrirliðabandinu
hjá enska lands-
liðinu, nokkrum
mánuðum fyrir
Heimsmeist-
arakeppnina í
Suður-Afríku.
Fjöldi ljósmyndara
kepptist við að ná
myndum af Terry og
konu hans Toni, þegar
þau yfirgáfu Stamford
Bridge og ók Terry á
öryggisvörð sem reyndi
að halda ágengum
ljósmyndurum frá
þeim. Öryggisvörður-
inn lá óvígur eftir en
Terry keyrði áfram án
þess að stoppa.