Fréttablaðið - 22.01.2016, Blaðsíða 14
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Í dag fögnum við merkum áfanga sem markar þátta-skil í þjóðminjavörslu á Íslandi. Í Þjóðminjasafninu er varðveitt stórt safn minja um meira en þúsund ára sögu
íslensku þjóðarinnar. Í samræmi við áherslur stjórnvalda
á málaflokkinn hefur verið tekin ákvörðun um að tryggja
bestu aðstæður fyrir þessa grunnstarfsemi þjóðminja-
vörslunnar. Undirritaður verður samningur um nýtt og vel
búið fjögur þúsund fermetra Varðveislu- og rannsóknasetur
Þjóðminjasafns Íslands sem ætlað er að mæta kröfum sam-
tímans um örugga vörslu menningarminja. Í húsinu verða
öryggisgeymslur fyrir stóran hluta safnkosts Þjóðminja-
safns auk starfsaðstöðu fyrir sérfræðinga, fræðimenn og
nemendur. Öflug öryggisvarsla, hita- og rakastýring verður
í húsnæðinu svo tryggja megi varðveislu fjölbreytts og við-
kvæms safnkosts muna og jarðfundinna gripa. Í húsnæðinu
verða einnig rannsóknarstofur, forvörsluverkstæði, aðstaða
til sérhæfðrar umsýslu forngripa og aðstaða til undirbúnings
sýninga. Einnig verður í húsnæðinu aðstaða til kennslu en
Þjóðminjasafn Íslands er háskólastofnun með mikilvægt
hlutverk fyrir námsmenn og rannsóknarstörf.
Grundvallarbreytingar voru gerðar á málefnum menn-
ingararfs með núverandi ríkisstjórn árið 2013 þegar forræði
málaflokksins var flutt í forsætisráðuneytið samkvæmt
forsetaúrskurði. Frá þeim tíma hefur markvisst verið unnið
að því að efla stofnanir og starfsemi á málefnasviðinu. Sam-
þykkt hafa verið lög um verndarsvæði í byggð sem stuðla
að verndun byggðamynsturs í þéttbýli og er nú unnið að
endurskoðun laga sem varða málaflokkinn. Sjónum hefur
ekki hvað síst verið beint að sögulegum húsum í vörslu
Þjóðminjasafns Íslands, en þar eru varðveitt torfhús sem eru
á yfirlitsskrá heimsminjaskrár UNESCO. Gert hefur verið
víðtækt átak á sviði minjaverndar, sem meðal annars felur í
sér bætt aðgengi ferðamanna að minjastöðum þjóðarinnar.
Með Varðveislu- og rannsóknasetri Þjóðminjasafns Íslands
verður stuðlað að vandaðri vörslu menningarminja og
auknum skilningi á menningararfi Íslands. Í því felast
tækifæri til menntunar, atvinnusköpunar og aukinnar hag-
sældar í landinu. Það er því mikið fagnaðarefni að þessum
áfanga sé náð.
Íslensk þjóðmenning
í hávegum höfð
Með Varð-
veislu- og
rannsókna-
setri Þjóð-
minjasafns
Íslands
verður
stuðlað að
vandaðri
vörslu
menningar-
minja og
auknum
skilningi á
menningar-
arfi Íslands.
Sigmundur
Davíð Gunn-
laugsson
forsætisráð-
herra
Einstök leiksýning fyrir 1-5 ára börn
Sunnudaginn 24. janúar kl 13.00 Uppselt
Sunnudaginn 31. janúar kl 13.00
Sunnudaginn 7. febrúar kl 13.00
Sunnudaginn 14. febrúar kl 13.00
Miðapantanir
sími 565 5900 midi.is
Sýnd í Hafnarborg
“Óhætt að mæla með þessari sýningu” Hlín Agnarsdóttir Kastljós
“Sýningin er bæði falleg og skemmtileg” Silja AðalsteinsdóttirTMM
Sigríður Jónsdóttir Fréttablaðið
Enn einu sinni býður Gaflaraleikhúsið upp á
vandaða barna- og fjölskyldusýningu
Silja Huldudóttir Morgunblaðið
“Unaðslegur leikhúsgaldur!” Jakob Jónsson Kvennablaðið
Yfirlýsing Gunnars Braga Sveinssonar utan-ríkisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnar-tíma á Alþingi í gær um að engin áform væru uppi í utanríkisráðuneytinu um að hverfa frá stuðningi Íslands við viðskipta-þvinganir á hendur Rússlandi er ánægjuleg.
Enda væri vegið að hagsmunum landsins ef látið yrði
undan þeim vælukór sem kvartað hefur undan áhrifum
innflutningsbanns Rússa á íslenskar afurðir, sem sett var
á í fyrrasumar vegna stuðnings Íslands við þvinganirnar.
Í fyrradag kvaddi Ásmundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sér hljóðs á Alþingi og hélt því fram að
með stuðningi við þvingunaraðgerðir vestrænna þjóða
væri hér verið að kasta fyrir róða Rússlandsmarkaði,
sem um áratugaskeið hafi verið mikilvægasti markaður
landsins fyrir fiskafurðir og matvælaframleiðslu.
„Þær staðföstu þjóðir sem við fylgjum eins og skugg-
inn hafa ekki lagt mikið undir í viðskiptaþvingunum
sínum á Rússlandi og heildaráhrif aðgerðanna varla
mælanlegar í þeirra efnahag,“ sagði hann. Málflutning-
urinn kallast að hluta á við yfirlýsingar útgerðarmanna
um að þvinganirnar komi jafnvel hvergi jafn hart niður
og einmitt hér.
Áhrifin eru vissulega allnokkur og óþarfi að gera lítið
úr þeim, en þau eru langt því frá með því mesta sem
gerist á byggðu bóli og raunar helberar rangfærslur
að halda slíku fram. Í skýrslu Evrópusambandsins um
áhrifin sem út kom á haustdögum 2014 kemur til dæmis
fram að mun meiri áhrif eru á landsframleiðslu í Eystra-
saltslöndunum, sér í lagi Litháen, 2,6 prósent af vergri
landsframleiðslu.
Þá má velta fyrir sér hvort fullyrðingar í þá átt að við-
skiptabannið eitt komi niður á viðskiptum Íslendinga
við Rússa standist skoðun. Árið 2014 lentu útflytjendur
hér í stórfelldum vandræðum vegna gjaldþrota fyrir-
tækja í Rússlandi.
Í nýjasta hefti efnahagsritsins Vísbendingar er vitnað
til skýrslu Reykjavík Economics, um þær áskoranir sem
hagkerfi Rússlands stendur frammi fyrir. Verg lands-
framleiðsla Rússa hafi á síðasta árið dregist saman um
3,6 prósent og enn stæði landið frammi fyrir mótvindi
vegna lækkandi olíuverðs.
„Þess vegna er ljóst að kaupmáttur hefur minnkað í
Rússlandi og það hefur áhrif á eftirspurn eftir vörum.
Óljóst er hvaða áhrif þetta myndi hafa á innflutning á
uppsjávarfiskum frá Íslandi,“ segir í þýðingu Vísbend-
ingar á skýrslunni. Þar segir líka að ekki dugi að láta eins
og allt myndi falla í ljúfa löð varðandi viðskipti við Rúss-
land bara ef Íslendingar skærust úr leik og ryfu samstöðu
vestrænna þjóða gegn yfirgangi Rússa á Krímskaga.
Ljóst er að menn fara offari í sérhagsmunagæslunni
þegar áhrif af samstöðu Íslands með vestrænum þjóðum
eru bæði ýkt og skrumskæld. Smáþjóðir eiga allt undir
því að alþjóðalög séu virt, eða svo vitnað sé í orð Elínar
Hirst, þingkonu Sjálfstæðisflokks, á Alþingi í gær: „Við
getum að sjálfsögðu ekki talað tveimur tungum hvað
varðar virðingu okkar fyrir alþjóðalögum sem smáríki
þar sem við byggjum afkomu okkar að miklum hluta á
fiskveiðum og eigum því allt undir því að alþjóðalög og
-sáttmálar séu virtir.“
Rangfærslur
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Ljóst er að
menn fara
offari í
sérhags-
munagæsl-
unni þegar
áhrif af
samstöðu
Íslands með
vestrænum
þjóðum eru
bæði ýkt og
skrumskæld.
Ósættið borið á torg
Tveir þingmenn Samfylkingar-
innar hafa lagt fram frumvarp um
að banna verðtryggingu á nýjum
neytendalánum. Jón Steinsson,
hagfræðingur við Columbia-
háskólann, segir þetta frumvarp
tómt kjaftæði. „Er nema vona
að jafnaðarmenn nái ekki vel
vopnum sínum á Íslandi,“ segir
hagfræðingurinn. Árni Páll Árna-
son svarar Jóni og segir frumvarp-
ið ekki stutt af Samfylkingunni né
honum sjálfum. Líkast til er þetta
til marks um klofninginn að þing-
flokksformaður og sá þingmaður
sem opinberaði klofninginn í
formannsslag skuli fara fram með
mál í óþökk formanns. Helgi
og Sigríður verða seint talin til
fjaðurvigtar innan Samfylkingar.
Enn um handboltann
Íslenska landsliðið í handknatt-
leik galt afhroð á Evrópumótinu
sem haldið er í Póllandi og var sent
heim með skottið á milli lappanna
eftir einungis þrjá leiki. Töp gegn
Hvít-Rússum og Króötum sýndu
kannski að við áttum ekkert erindi
í milliriðil keppninnar. Ef einhver
efi var til staðar fauk hann út í
veður og vind þegar flautað var
til hálfleiks í leik Frakklands og
Hvíta-Rússlands. Hið síðarnefnda
skoraði 39 mörk gegn strákunum
okkar. Hins vegar náðu þeir aðeins
að setja boltann fimm sinnum
í mark Frakka. Ekki er hægt að
ímynda sér hvernig íslenska liðinu
hefði gengið á móti því franska.
sveinn@frettabladid.is
2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r14 S k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
3
D
-0
5
1
8
1
8
3
D
-0
3
D
C
1
8
3
D
-0
2
A
0
1
8
3
D
-0
1
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K