Fréttablaðið - 22.01.2016, Blaðsíða 18
Í dag
17.15 Þýskaland - Ungverjal. RÚV
19.00 Keflavík - Njarðvík Sport
19.30 HSV - Bayern Sport 3
19.30 Svíþjóð - Rússland RÚV2
22.00 Körfuboltakvöld Sport
01.00 NBA: Raptors - Heat Sport
19.00 ÍBV 2 - ÍR Eyjar
19.15 Keflavík - Njarðvík TM-höllin
19.30 FH - Grótta Kaplakriki
Nýjast
Körfubolti Keflavík er á toppi
Domino’s-deildar karla í körfubolta
eftir fyrstu þrettán umferðirnar en
í kvöld er komið að leiknum sem
snýst um miklu meira en bara tvö
stig eða sæti í úrvalsdeildinni.
Nágrannarnir í Njarðvík koma
þá í heimsókn og það er óhætt að
segja að á meðan allt hefur gengið
upp hjá Keflavík á tímabilinu þá
hafa Kanavandræðin leikið Njarð-
víkinga grátt frá fyrsta degi.
Nú eru Njarðvíkingar komnir
með nýjan Bandaríkjamann, Jeremy
Atkinson, en Atkinson spilaði með
Stjörnunni í fyrra og var þá sem
dæmi með 26,5 stig og 11,7 fráköst
að meðaltali í sex leikjum á móti
Njarðvík. Hann er hins vegar að fara
að mæta Keflvíkingum í fyrsta sinn
á ferlinum í kvöld.
Keflvíkingar unnu tíu stiga sigur
í fyrri leik liðanna í Njarðvík og
bjuggu þá að því að fimm leikmenn
og þjálfarinn Sigurður Ingimundar-
son voru þar að spila á sínum gamla
heimavelli. Enginn leikmaður
Njarðvíkurliðsins hefur hins vegar
spilað fyrir Keflavík.
Leikur Keflavíkur og Njarðvíkur
hefst klukkan 19.15 og er í beinni á
Stöð 2 Sport. – óój
Njarðvíkurtengslin eru áberandi í Keflavíkurliðinu
Sund Fyrsti mánuðurinn sem
Íþróttamaður ársins hefur verið
viðburðaríkur fyrir sundkonuna
Eygló Ósk Gústafsdóttur frá því að
hún fylgdist með því í gegnum netið
frá Karíbahafi þegar hún var kosin
Íþróttamaður ársins.
Eygló Ósk kom heim fyrir viku úr
æfingaferðinni og í kvöld er síðan
komið að fyrsta mótinu hennar sem
Íþróttamaður ársins þegar keppni
hefst á sundmóti Reykjavíkurleik-
anna í Laugardalslauginni.
„Ég er enn þá að venja mig á það
að fara að sofa fyrr enda orðin vön
því að vera í öðru tímabelti þarna
úti. Þetta er allt að koma núna en
tekur smá tíma,“ segi Eygló Ósk en
klukkan í Guadeloupe er fjórum
tímum á eftir þeirri íslensku. Þegar
sundkona fer á morgunæfingu fyrir
allar aldir þá skipta þessir tímar
miklu máli.
Verður samt ekki öðruvísi fyrir
Eygló að mæta á mót sem ríkjandi
Íþróttamaður ársins? „Já og nei. Ég
ætla bara að hugsa um þetta sem
venjulegt mót,“ segir Eygló jarð-
bundin og það er að heyra að hún
ætli ekkert að slaka á.
„Það er búið að vera nóg að gera
hjá mér í þessum mánuði og svolítið
mikið um viðtöl,“ viðurkennir Eygló
en hún kvartar ekki yfir athyglinni.
„Athyglin fer bara mjög vel í mig og
er bara hvetjandi,“ segir hún létt og
bætir við: „Þetta er ekkert að trufla
mig við æfingarnar. Ég þarf bara
að einbeita mér og hafa hausinn
á réttum stað,“ sagði Eygló en það
reynir meira á einbeitinguna nú
þegar áreitið er miklu meira.
Hörkusamkeppni
Eygló fær hörkusamkeppni á
Reykjavíkurleikunum því heims-
og Evrópumeistarinn Mie Nielsen
keppir við hana í fjórum greinum.
„Við keppum oft saman og við æfum
líka stundum saman. Hún er í bak-
sundi eins og ég en er meira fyrir
50 og 100 metra baksundin. Ég er
betri í 200 metra baksundinu,“
segir Eygló og Mie þorir ekki í hana
í hennar bestu grein. „Hún syndir
það ekkert lengur og finnst það ekk-
ert gaman,“ segir Eygló sem hefur
margbætt Norðurlandametið í 200
metra baksundinu. „Þó að það sé
bara 100 metra mismunur á þessum
greinum þá er rosaleg ólíkt að synda
þær,“ segir Eygló sem ætlar sér þó
að synda allar þrjár baksundsgrein-
arnar en hún mun keppa við Mie í
bæði 50 og 100 metra baksundi og
þær eru líka skráðar til leiks í 50 og
100 metra skriðsundi.
Auk Mie Nielsen keppir á mót-
inu danski sundmaðurinn Viktor
Bregn er Bromer sem varð meðal
annars Evrópumeistari í 200 metra
flugsundi árið 2014.
Eygló hefur verið að kynna
Reykjavíkurleikana á síðustu dögum
og þar finnur Íþróttamaður ársins
fyrir því að nýi titillinn hafi komið
henni meira í sviðsljósið. „Ég og
systir mín eru búnar að vera að fara í
nokkra skóla og kynna Reykjavíkur-
leikana. Það eru margir krakkar sem
þekkja mann og segjast vita hver
maður er. Það er mjög gaman og er
nýtt fyrir mér,“ segir Eygló en það
var einmitt systir hennar, Jóhanna
Gerða Gústafsdóttir, sem tók við
bikarnum fyrir hennar hönd í hófi
Samtaka íþróttafréttamanna.
Gaman ef fleiri fylgjast með
Fram undan er fyrsta mót Eyglóar
á árinu og enn fleiri augu verða
örugglega á henni en þegar hún
keppti síðast í Laugardalslauginni
enda hafa tvö brons á Evrópumóti
og útnefning Íþróttamanns ársins
bæst á afrekaskrána síðan þá.
„Það er samt bara gaman ef fleiri
fylgjast með manni í lauginni,“ segir
Eygló klár í fyrsta mótið sem Íþrótta-
maður ársins. ooj@frettabladid.is
Krakkarnir þekkja hana núna
Eygló Ósk Gústafsdóttir keppir á fyrsta mótinu sem Íþróttamaður ársins í kvöld þegar hún hefur keppni á
Reykjavíkurleikunum. Aðalandstæðingur hennar í fyrstu grein er fyrrverandi heims- og Evrópumeistari.
Eygló Ósk Gústafsdóttir, íþróttamaður ársins 2015, keppir í kvöld á sínu fyrsta móti á árinu þegar sundmót Reykjavíkurleikanna hefst í Laugardalslaug. FRéttABLAðið/StEFáN
Njarðvísku áhrifin innan Keflavíkurliðsins í Domino’s-deild karla í körfubolta í vetur
Guðmundur Jónsson
31 árs bakvörður
Alinn upp í Njarðvík
Átta tímabil með Njarðvík.
Kom til Keflavíkur 2013.
Magnús Þ. Gunnarss.
34 ára bakvörður
Lék tvö og hálft tímabil
með Njarðvík. Kom aftur
til Keflavíkur 2015.
Valur Orri Valsson
21 árs bakvörður
Alinn upp í Njarðvík
Lék fyrst með Njarðvík.
Kom til Keflavíkur 2011.
ágúst Orrason
22 ára framherji
Alinn upp hjá Breiðabliki
Þrjú tímabil með Njarðvík.
Kom til Keflavíkur 2015.
Magnús M. traustas.
19 ára framherji
Alinn upp í Njarðvík
Lék fyrst með Njarðvík.
Kom til Keflavíkur 2015.
Sigurður
ingimundarson
49 ára þjálfari
Þjálfaði Njarðvík í eitt og
hálft tímabil.
Milliriðill 1 - fyrsti leikdagur
Frakkland - Hvíta Rússl. 34-23
Markahæstir: Nikola Karabatic 9, Nedim
Remili 5, Theo Derot 5 - Aliaksei Khadkevich
9, Barys Pukhouski 4.
Makedónía - Króatía 24-34
Markahæstir: Dejan Manaskov 7, Filipe
Kuzmanovski 4 - Ivan Sliskovic 6, Manuel
Strlek 5, Marino Maric 5.
Stig liða í milliriðli 1: Króatía 4, Frakkland
4, Pólland 4, Noregur 4, Makedónía 0, Hvíta-
Rússland 0.
EM í handbolta í Póllandi
KR - Haukar 96-66
Stigahæstir: Michael Craion 17, Helgi Már
Magnússon 14, Brynjar Þór Björnsson 14 -
Kári Jónsson 15, Finnur Atli Magnússon 11,
Haukur Óskarsson 10.
tindastóll - Þór Þorl. 78-80
Stigahæstir: Jeremy Hill 19, Helgi Rafn
Viggósson 18, Darrell Flake 14 - Vance Hall
34, Emil Karel Einarsson 18, Ragnar Nat-
hanaelsson 9.
FSu - Stjarnan 81-94
Stigahæstir: Chris Woods 30, Hlynur
Hreinsson 19, Chris Caird 10 - Justin Shouse
33, Tómas Heiðar Tómasson 20, Sæmundur
Valdimarsson 11.
Grindavík - ÍR 86-82
Stigahæstir: Jón Axel Guðmundsson 28,
Charles Garcia Jr. 27, Ómar Örn Sævarson
13 - Jonathan Mitchell 31, Vilhjálmur Theo-
dórsson Jónsson 17.
Efst
Keflavík 22
KR 22
Stjarnan 20
Þór Þ. 16
Njarðvík 16
Haukar 14
Neðst
Tindastóll 14
Snæfell 12
Grindavík 12
ÍR 10
FSu 6
Höttur 2
Domino’s-deild karla í körfu
DREGIð Í RIðLA HJá KöRFu-
BoLtAStRáKuNuM Í DAG
Íslenska körfuboltalands-
liðið komst á síðasta Evrópumót í
Berlín og í dag kemur í ljós hvaða
þjóðir munu standa í vegi fyrir að
íslensku strákarnir komist aftur
á Eurobasket 2017. Ísland er í
öðrum styrkleikariðli í drættinum
í dag. Dregið verður í sjö riðla, sex
með fjórum þjóðum en einn með
þremur. Alls verða ellefu sæti laus
á EM en þangað komast sigurveg-
arar riðlanna auk fjögurra liða með
besta árangurinn í öðru sæti.
Ísland mætir einu liði úr 1. styrk-
leikaflokki (Pólland, Slóvenía,
Belgía, Georgía, Rússland, Þýska-
land, Makedónía), einu liði úr 3.
flokki (Austurríki, Svíþjóð,
Hvíta-Rússland,
Sviss, Búlgaría
Bretland, Sló-
vakía) og svo
mögulega einu
úr 4. flokki
(Portúgal,
Danmörk,
Lúxemborg,
Kýpur,
Albanía,
Kosovo).
Eygló Ósk í Laugardalslauginni um helgina
Í kvöld
Klukkan 17.06 50 metra baksund
Klukkan 18.08 50 metra skriðsund
Á morgun
Klukkan 10.01 100 metra baksund undanrásir
Klukkan 16.51 100 metra baksund úrslit
Á sunnudaginn
Klukkan 10.02 200 metra baksund undanrásir
Klukkan 11.07 100 metra skriðsund undanrásir
Klukkan 15.32 200 metra baksund úrslit
Klukkan 16.09 100 metra skriðsund úrslit
2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 f ö S t u d a G u r18
sport
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
3
D
-2
C
9
8
1
8
3
D
-2
B
5
C
1
8
3
D
-2
A
2
0
1
8
3
D
-2
8
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K