Fréttablaðið - 22.01.2016, Blaðsíða 42
Kosningu til Hlustendaverðlaunanna
2016 lýkur í dag en Hlustendaverð
launin 2016 verða afhent í glæsilegu
tónlistarpartíi í beinni útsendingu
á Stöð 2 frá Háskólabíói föstudags
kvöldið 29. janúar í samstarfi við
Gull. „Kosning er búin að vera mjög
jöfn í gegnum ferlið, alveg frá því hún
byrjaði. Það er enn óljóst hvernig
þetta fer, það skýrist líklega ekki fyrr
en á síðustu stundu,“ segir Jóhann K.
Jóhannsson, kynningarstjóri útvarps
sviðs 365.
Kosningin fer fram á Vísi þar sem
hlustendur Bylgjunnar, FM957 og
Xins977 hafa kosið um hvað stóð upp
úr í íslenskri tónlist á síðasta ári auk
þess að kjósa besta erlenda lagið.
Frábært listafólk og hljóm
sveitir koma fram á hátíðinni
og má þar nefna Pál Óskar,
Glowie ásamt eigin sveit,
Dikta, Fufanu, Bubba og
Spaðadrottningarnar,
Friðrik Dór, Úlf Úlf, Axel
Flóvent, Steinda JR og
Auðun Blöndal en Auð
unn er kynnir hátíðar
innar. Jóhann lofar glæsilegri hátíð.
„Ég veit að listamennirnir sem koma
fram ætla að gera mikið úr sínum
atriðum.“
Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, Xið977
og FM957 bjóða hlustendum sínum
frítt á hátíðina. Áhugasamir hringja
inn og freista þess að fá
miða. „Það verða
ekki seldir miðar
á hátíðina heldur
verða þeir gefnir
á útvarpsstöðv
unum, fólk þarf
bara að hlusta,”
bætir Jóhann við.
– glp
Kosningin ótrúlega jöfn
Íslenska leik kon an Heiða Rún Sig
urðardótt ir, eða Heida Reed eins og
hún kallar sig, er að gera það mjög gott
í Bretlandi um þessar mundir.
Á dögunum mætti Heiða í sínu allra
fallegasta dressi, stórglæsileg, á Nati
onal Televisi on Aw ards hátíðina, en
Heiða Rún fer með hlut verk í þátt un
um Poldark þar sem hún leik ur hina
fögru El iza beth. Þættirnir, sem fram
leiddir eru af BBC og teknir upp í fal
legu landslagi Cornwallhéraðs í Bret
landi, gerast á 19. öld og fjalla um hinn
myndarlega Ross Poldark, sem leikinn
er af Aidan Turner. Hann snýr heim úr
stríði og kemst að því að hann hefur
verið úrskurðaður látinn og að unn
usta hans, sem leikin er af Heiðu Rún,
sé í ástarsambandi við frænda hans.
Ástamál þeirra verða svo flókin eftir
því sem líður á. Nati onal Televisi on
Aw ards fór fram í London og var þátta
röðin Poldark til nefnd til verðlauna
fyr ir besta nýja sjón varps dramað og
einnig var Ai dan Turner til nefnd ur
sem besti leik ari í dramaþátt um, auk
þess sem hann hlaut sér stök verðlaun
dóm nefnd ar. - gjs
Heiða Rún glæsileg á rauða dreglinum
Heiða Rún Sigurðardóttir og Aidan Turner glæsileg saman. Mynd/GeTTy
Auðunn Blöndal verð-
ur kynnir kvöldsins.
fRéTTABlAðið/vilHelM
Hljómsveitin Skálmöld fékk á dögunum afhenta platínuplötu fyrir plötuna Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands
sem kom út árið 2013 en plata kemst
í platínu ef hún selst í 7.000 eintökum.
Á sama tíma fékk sveitin afhentar gull
plötur fyrir plöturnar Baldur sem kom
út árið 2010 og plötuna Með vættum
sem kom út 2014 en gullplata fæst fyrir
að selja 3.500 eintök. Það þýðir að allar
plötur sveitarinnar eru komnar í gull.
„Við fórum að grennslast fyrir um þetta
fyrir jólin og kíktum á sölutölurnar og
komumst að því að plöturnar eru allar
komnar í gull og Sinfó í platínu. Við
vorum að fá þetta rammað inn fyrir
skömmu. Það er ótrúlega gaman að fá
svona, þetta er frábær viðurkenning
fyrir það sem maður hefur verið að
sýsla undanfarin ár. Við eigum núna
gull fyrir Sinfó, Börn Loka og Baldur
fyrir sölu yfir 5.000, gull fyrir Með
vættum fyrir sölu yfir 3.500 og platínu
fyrir Sinfó fyrir sölu yfir 7.000,“ segir
Björgvin Sigurðsson, aðalsöngvari
Skálmaldar og einn af gítarleikurum
sveitarinnar.
Átti bara að vera saumaklúbbur
Hann segir sveitina þó ekki vera að
mala gull þó að hún sé komin með
gullplötur fyrir allar plöturnar. „Mann
óraði ekki fyrir þessu þegar við byrj
uðum í þessu í fyrstu. Við höfum
unnið mjög þétt frá því við byrjuðum
haustið 2009. Þetta átti eiginlega ekki
að vera neitt heldur átti þetta að vera
eins konar saumaklúbbur en þegar
við gáfum út fyrstu plötuna þá sprakk
þetta upp og við höfum ekkert stoppað
síðan,“ útskýrir Björgvin. „Við höfum
oft talað um að hvíla okkur aðeins en
það kemur alltaf eitthvað upp.“
Skálmöld er á leið í sólina í Karíba
hafinu en þó ekki til þess að hvíla sig
því þar kemur sveitin fram á þunga
rokkshátíðinni 70.000 Tons of Metal
sem fram fer dagana 4. til 8. febrúar en
hún fer fram um borð í stærðarinnar
skemmtiferðarskipi. „Þetta verður
mikið ævintýri, það verður fínt að yfir
gefa mistrið í smástund fyrir smá sól.
Það verður ekkert að því að hanga á
skemmtiferðarskipi í nokkra daga,“
segir Björgvin og hlær. Á hátíðinni
koma fram 60 hljómsveitir og tekur
skipið yfir þrjú þúsund gesti en á meðal
þeirra sveita sem koma fram á hátíðinni
eru Cradle of Filth og Paradise Lost.
vinna að nýju efni
Hljómsveitin gaf eins og fyrr segir síðast
út plötu árið 2014 en er farin að vinna
að nýju efni. „Við erum alveg byrjaðir
að vinna í nýju efni, vonandi náum við
að koma frá okkur plötu seinna á þessu
ári, það er stefnan,“ segir Björgvin.
Sveitin hefur farið í fimm stóra
tónleikatúra um Evrópu og segist
Björgvin finna fyrir því að aðdá
endahópurinn sé að stækka erlend
is. „Maður fann það eiginlega best
þegar við gáfum út Með vættum.
Hún kom út þegar við vorum
nýfarnir á túrinn, þá fann maður
að hópurinn er að stækka úti. Það
tekur tíma að byggja upp alvöru
nafn, alveg sama hvar maður kemur.
Þú kemur í fyrsta sinn í borg og þá
koma 50 manns á tónleikana, svo
næst þegar þú kemur koma 100, svo
200 svo 400. Þetta er hark en maður
finnur að hópurinn stækkar smám
saman,“ útskýrir Björgvin.
fagna gull- og platínuplötunni
Skálmöld ætlar að fagna gullplötunum
og platínuplötunni því hún hefur
ákveðið að halda tvenna tónleika, í
Háskólabíói 26. febrúar og í Hofi 18.
mars. „Við höfum spilað á báðum
stöðunum áður og það er rosa gaman
að spila á báðum stöðum, við hlökk
um mikið til.“ Þar ætlar sveitin að
fara yfir farinn veg þótt hún viti ekki
nákvæmlega hvaða hátt hún ætlar að
hafa á því. Meðlimi sveitarinnar langar
að bjóða gestum á svið, velja sín uppá
halds Skálmaldarlög, spila þau og
gera grein fyrir hvers vegna þau eru í
uppáhaldi. Miðasalan hefst þann 22.
janúar á tix.is.
Skálmöld spilar á skemmtiferðaskipi
Hljómsveitin Skálmöld fékk á dögunum afhentar gullplötur og platínumplötu en allar plötur sveitarinnar eru
komnar í gull. Sveitin spilar á þungarokkshátíð um borð í skemmtiferðaskipi í Karíbahafinu í byrjun næsta mánaðar.
Gunnar Leó
Pálsson
gunnarleo@frettabladid.is
Björgvin Sigurðsson, aðalsöngvari Skálmaldar og einn af gítarleikurum sveitarinnar, er hér alsæll með plöturnar. Mynd/HeiðAR kRiSTjÁnSSon
Þetta átti eiginlega
eKKi að veRa neitt
HelduR átti Þetta að veRa
einS KonaR SaumaKlúbbuR en
ÞegaR við gáfum út fyRStu
plötuna Þá SpRaKK Þetta upp
og við Höfum eKKeRt Stoppað
Síðan.
Þú KemuR í fyRSta
Sinn í boRg og Þá
Koma 50 mannS á tón-
leiKana, Svo næSt ÞegaR Þú
KemuR Koma 100, Svo 200 Svo
400.
2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r34 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
Lífið
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
D
-2
2
B
8
1
8
3
D
-2
1
7
C
1
8
3
D
-2
0
4
0
1
8
3
D
-1
F
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K