Fréttablaðið - 22.01.2016, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 22.01.2016, Blaðsíða 42
Kosningu til Hlustendaverðlaunanna 2016 lýkur í dag en Hlustendaverð­ launin 2016 verða afhent í glæsilegu tónlistarpartíi í beinni útsendingu á Stöð 2 frá Háskólabíói föstudags­ kvöldið 29. janúar í samstarfi við Gull. „Kosning er búin að vera mjög jöfn í gegnum ferlið, alveg frá því hún byrjaði. Það er enn óljóst hvernig þetta fer, það skýrist líklega ekki fyrr en á síðustu stundu,“ segir Jóhann K. Jóhannsson, kynningarstjóri útvarps­ sviðs 365. Kosningin fer fram á Vísi þar sem hlustendur Bylgjunnar, FM957 og Xins977 hafa kosið um hvað stóð upp úr í íslenskri tónlist á síðasta ári auk þess að kjósa besta erlenda lagið. Frábært listafólk og hljóm­ sveitir koma fram á hátíðinni og má þar nefna Pál Óskar, Glowie ásamt eigin sveit, Dikta, Fufanu, Bubba og Spaðadrottningarnar, Friðrik Dór, Úlf Úlf, Axel Flóvent, Steinda JR og Auðun Blöndal en Auð­ unn er kynnir hátíðar­ innar. Jóhann lofar glæsilegri hátíð. „Ég veit að listamennirnir sem koma fram ætla að gera mikið úr sínum atriðum.“ Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, Xið977 og FM957 bjóða hlustendum sínum frítt á hátíðina. Áhugasamir hringja inn og freista þess að fá miða. „Það verða ekki seldir miðar á hátíðina heldur verða þeir gefnir á útvarpsstöðv­ unum, fólk þarf bara að hlusta,” bætir Jóhann við. – glp Kosningin ótrúlega jöfn Íslenska leik kon an Heiða Rún Sig­ urðardótt ir, eða Heida Reed eins og hún kallar sig, er að gera það mjög gott í Bretlandi um þessar mundir. Á dögunum mætti Heiða í sínu allra fallegasta dressi, stórglæsileg, á Nati­ onal Televisi on Aw ards hátíðina, en Heiða Rún fer með hlut verk í þátt un­ um Poldark þar sem hún leik ur hina fögru El iza beth. Þættirnir, sem fram­ leiddir eru af BBC og teknir upp í fal­ legu landslagi Cornwall­héraðs í Bret­ landi, gerast á 19. öld og fjalla um hinn myndarlega Ross Poldark, sem leikinn er af Aidan Turner. Hann snýr heim úr stríði og kemst að því að hann hefur verið úrskurðaður látinn og að unn­ usta hans, sem leikin er af Heiðu Rún, sé í ástarsambandi við frænda hans. Ástamál þeirra verða svo flókin eftir því sem líður á. Nati onal Televisi on Aw ards fór fram í London og var þátta­ röðin Poldark til nefnd til verðlauna fyr ir besta nýja sjón varps dramað og einnig var Ai dan Turner til nefnd ur sem besti leik ari í dramaþátt um, auk þess sem hann hlaut sér stök verðlaun dóm nefnd ar. - gjs Heiða Rún glæsileg á rauða dreglinum Heiða Rún Sigurðardóttir og Aidan Turner glæsileg saman. Mynd/GeTTy Auðunn Blöndal verð- ur kynnir kvöldsins. fRéTTABlAðið/vilHelM Hljómsveitin Skálmöld fékk á dögunum afhenta platínuplötu fyrir plöt­una Skálmöld og Sin­fóníuhljómsveit Íslands sem kom út árið 2013 en plata kemst í platínu ef hún selst í 7.000 eintökum. Á sama tíma fékk sveitin afhentar gull­ plötur fyrir plöturnar Baldur sem kom út árið 2010 og plötuna Með vættum sem kom út 2014 en gullplata fæst fyrir að selja 3.500 eintök. Það þýðir að allar plötur sveitarinnar eru komnar í gull. „Við fórum að grennslast fyrir um þetta fyrir jólin og kíktum á sölutölurnar og komumst að því að plöturnar eru allar komnar í gull og Sinfó í platínu. Við vorum að fá þetta rammað inn fyrir skömmu. Það er ótrúlega gaman að fá svona, þetta er frábær viðurkenning fyrir það sem maður hefur verið að sýsla undanfarin ár. Við eigum núna gull fyrir Sinfó, Börn Loka og Baldur fyrir sölu yfir 5.000, gull fyrir Með vættum fyrir sölu yfir 3.500 og platínu fyrir Sinfó fyrir sölu yfir 7.000,“ segir Björgvin Sigurðsson, aðalsöngvari Skálmaldar og einn af gítarleikurum sveitarinnar. Átti bara að vera saumaklúbbur Hann segir sveitina þó ekki vera að mala gull þó að hún sé komin með gullplötur fyrir allar plöturnar. „Mann óraði ekki fyrir þessu þegar við byrj­ uðum í þessu í fyrstu. Við höfum unnið mjög þétt frá því við byrjuðum haustið 2009. Þetta átti eiginlega ekki að vera neitt heldur átti þetta að vera eins konar saumaklúbbur en þegar við gáfum út fyrstu plötuna þá sprakk þetta upp og við höfum ekkert stoppað síðan,“ útskýrir Björgvin. „Við höfum oft talað um að hvíla okkur aðeins en það kemur alltaf eitthvað upp.“ Skálmöld er á leið í sólina í Karíba­ hafinu en þó ekki til þess að hvíla sig því þar kemur sveitin fram á þunga­ rokkshátíðinni 70.000 Tons of Metal sem fram fer dagana 4. til 8. febrúar en hún fer fram um borð í stærðarinnar skemmtiferðarskipi. „Þetta verður mikið ævintýri, það verður fínt að yfir­ gefa mistrið í smástund fyrir smá sól. Það verður ekkert að því að hanga á skemmtiferðarskipi í nokkra daga,“ segir Björgvin og hlær. Á hátíðinni koma fram 60 hljómsveitir og tekur skipið yfir þrjú þúsund gesti en á meðal þeirra sveita sem koma fram á hátíðinni eru Cradle of Filth og Paradise Lost. vinna að nýju efni Hljómsveitin gaf eins og fyrr segir síðast út plötu árið 2014 en er farin að vinna að nýju efni. „Við erum alveg byrjaðir að vinna í nýju efni, vonandi náum við að koma frá okkur plötu seinna á þessu ári, það er stefnan,“ segir Björgvin. Sveitin hefur farið í fimm stóra tónleikatúra um Evrópu og segist Björgvin finna fyrir því að aðdá­ endahópurinn sé að stækka erlend­ is. „Maður fann það eiginlega best þegar við gáfum út Með vættum. Hún kom út þegar við vorum nýfarnir á túrinn, þá fann maður að hópurinn er að stækka úti. Það tekur tíma að byggja upp alvöru nafn, alveg sama hvar maður kemur. Þú kemur í fyrsta sinn í borg og þá koma 50 manns á tónleikana, svo næst þegar þú kemur koma 100, svo 200 svo 400. Þetta er hark en maður finnur að hópurinn stækkar smám saman,“ útskýrir Björgvin. fagna gull- og platínuplötunni Skálmöld ætlar að fagna gullplötunum og platínuplötunni því hún hefur ákveðið að halda tvenna tónleika, í Háskólabíói 26. febrúar og í Hofi 18. mars. „Við höfum spilað á báðum stöðunum áður og það er rosa gaman að spila á báðum stöðum, við hlökk­ um mikið til.“ Þar ætlar sveitin að fara yfir farinn veg þótt hún viti ekki nákvæmlega hvaða hátt hún ætlar að hafa á því. Meðlimi sveitarinnar langar að bjóða gestum á svið, velja sín uppá­ halds Skálmaldar­lög, spila þau og gera grein fyrir hvers vegna þau eru í uppáhaldi. Miðasalan hefst þann 22. janúar á tix.is. Skálmöld spilar á skemmtiferðaskipi Hljómsveitin Skálmöld fékk á dögunum afhentar gullplötur og platínumplötu en allar plötur sveitarinnar eru komnar í gull. Sveitin spilar á þungarokkshátíð um borð í skemmtiferðaskipi í Karíbahafinu í byrjun næsta mánaðar. Gunnar Leó Pálsson gunnarleo@frettabladid.is Björgvin Sigurðsson, aðalsöngvari Skálmaldar og einn af gítarleikurum sveitarinnar, er hér alsæll með plöturnar. Mynd/HeiðAR kRiSTjÁnSSon Þetta átti eiginlega eKKi að veRa neitt HelduR átti Þetta að veRa einS KonaR SaumaKlúbbuR en ÞegaR við gáfum út fyRStu plötuna Þá SpRaKK Þetta upp og við Höfum eKKeRt Stoppað Síðan. Þú KemuR í fyRSta Sinn í boRg og Þá Koma 50 mannS á tón- leiKana, Svo næSt ÞegaR Þú KemuR Koma 100, Svo 200 Svo 400. 2 2 . j a n ú a r 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r34 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð Lífið 2 1 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 3 D -2 2 B 8 1 8 3 D -2 1 7 C 1 8 3 D -2 0 4 0 1 8 3 D -1 F 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.