Fréttablaðið - 22.01.2016, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Hildar
Sverrisdóttur
Bakþankar
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
ÞÚ FINNUR
RÉTTA RÚMIÐ
HJÁ OKKUR
ÚTSAL A
KO M D U O G G E
R Ð U F R Á B Æ R
K A U P
A L LT A Ð 60%
A F S L ÁT T U R
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
1x9
HEFST 31. JANÚAR
Í nýrri könnun MMR kemur fram að yfir helmingur lands-manna trúir á spámiðla. Ég er
ekki ein af þeim. Vinkonur mínar
hafa líka sagt að ég gæti ekki verið
jarðbundnari þó ég væri negld
niður. Ég er því leiðinlega týpan
sem trúir hvorki á Guð né líf eftir
dauðann. Ég hef þó mjög litla þörf
fyrir að troða mínu trúleysi upp
á annað fólk og það er sjálfsagt að
bera virðingu fyrir trú annarra.
Sama má segja um miðla. Ég skil þá
sem sækja í þá með von um að lífið
haldi áfram á einhvern hátt og þá
jafnvel með fallegum hvatningar-
orðum frá látnum ástvinum. Hver
vill það ekki?
Pabbi minn dó á besta aldri og
var hann mörgum harmdauði sem
vildu reyna að fá öll þau svör sem
í boði voru. Einn af þeim fór til
miðils. Viðkomandi fór út alveg
gáttaður og bit á því að miðillinn
hafði sagt að þessi annars hljóði
faðir minn, sem af því litla sem
hann tjáði sig um pólitík var aug-
ljóslega jafnaðarmaður í lifanda
lífi, hafði allt í einu samkvæmt
miðlinum allan tímann verið
framsóknarmaður. Og allir urðu
bara svona gapandi hissa á að hafa
ekki vitað það. Að í öll þessi 50 ár
sem hann lifði hafði hann bara alls
ekki nokkurn tímann ýjað að því!
Alveg stórmerkilegt!
Þannig að ég get vel borið
virðingu fyrir því sem fólk kýs að
sækja í í sinni trú. En – ég hef svo
gott sem enga þolinmæði gagnvart
því þegar miðlar mögulega mis-
nota það traust og halda sig ekki
bara við að látnir ástvinir skili
hvetjandi ástarkveðjum heldur
fara að fabúlera um skoðanir
hins látna sem hefur engin tök á
að verja sig. Ég verð til að mynda
brjáluð ef ég dey og einhver miðill
segir við vini mína að ég hafi allan
tímann verið framsóknarmaður.
Brjáluð, sko.
Við endum öll
í Framsókn!
2
1
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
3
C
-F
6
4
8
1
8
3
C
-F
5
0
C
1
8
3
C
-F
3
D
0
1
8
3
C
-F
2
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K