Lögmannablaðið - 01.03.2003, Page 27
27L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
Námskeið fyrir lögmenn á vorönn
Stofnun félaga – reglur og hagnýt
atriði
Fjallað verður um stofnun félaga, firmaheiti og
vernd hugverkaréttinda. Kennarar verða þau Halldór
Jónsson héraðsdómslögmaður á Lex, stundakennari
við lagadeild Háskólans í Reykjavík og við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, og Borg-
hildur Erlingsdóttir lögfræðingur og deildarstjóri á
Einkaleyfastofunni.
Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9.
Tími: 25.mars, kl. 17:00 - 20:00
Verð: kr. 12.500 fyrir félagsdeild, kr. 15.000
fyrir aðra
Skráning fer fram hjá félagsdeild í síma 568 5620
eða með tölvupósti á netfang: eyrun@lmfi.is
Vitna- og aðilaskýrslur fyrir dómi.
Tilgangur námskeiðsins er að bæta árangur og/eða
hæfni lögmanna til skýrslutöku. Fjallað verður um
hvaða gildrur lögmenn falla í við skýrslutöku, hvað
og hvernig eigi að spyrja vitni eða aðila máls og
áreiðanleika framburðar. Kennarar á námskeiðinu
munu fjalla um einkamál sem og opinber mál út frá
sjónarhóli lögmanna og dómara.
Kennarar: Sigurður Tómas Magnússon héraðsdóm-
ari, Jóhannes Rúnar Jóhannesson hrl, Ólafur Ari
Jónsson lögfræðingur og Eva Dögg Gylfadóttir sál-
fræðingur en Ólafur og Eva unnu saman að lokarit-
gerðum í lögfræði og sálfræði um efnið.
Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9.
Tími: 3. apríl, kl. 17:00 - 21:00
Verð: kr. 12.500 fyrir félagsdeild, kr. 15.000
fyrir aðra
Skráning fer fram hjá félagsdeild í síma 568 5620
eða með tölvupósti á netfang: eyrun@lmfi.is
Áfrýjun og flutningur einkamáls fyrir
Hæstarétti.
Á námskeiðinu verður farið í tilgang áfrýjunar, form
og efni áfrýjunarstefna, kröfugerð, gerð málsgagna
(ágrips) og öflun nýrra gagna. Má þar nefna vitna-
mál, form og framsetning greinargerðar, undirbún-
ingur málflutnings, málflutningurinn sjálfur, dóms-
uppkvaðning, uppgjör dómkrafna og kynning á nið-
urstöðu dóms fyrir umbjóðanda. Einnig verður farið
í óskráðar hegðunarreglur sem gilda í málflutningi
fyrir Hæstarétti, samskiptareglur lögmanns við
umbjóðanda sinn, við lögmann gagnaðila, ásamt
samskiptum lögmanns við fjölmiðla
Kennarar verða Hákon Árnason hæstaréttarlög-
maður hjá LOGOS og Garðar Gíslason hæstaréttar-
dómari.
Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9.
Tími: 6.maí, kl. 16:00 - 19:00
Verð: kr. 12.500 fyrir félagsdeild, kr. 15.000
fyrir aðra
Skráning fer fram hjá félagsdeild í síma 568 5620
eða með tölvupósti á netfang: eyrun@lmfi.is
Viltu æfa sveifluna fyrir sumarið?
LMFÍ stendur fyrir 5 klst golfnámskeiði í maí sem
er ætlað jafnt fyrir byrjendur og lengra komna. Sig-
urður Hafsteinsson mun kenna á námskeiðinu en
hann hefur stundað golf síðan 1969 og m.a. verið í
íslenska landsliðinu. Eftir tímann geta þátttakendur
notfært sér aðstöðu Sporthússins og farið í nuddpott
eða gufubað. Lögmenn eru hvattir til að taka maka
og börn með sér í þetta skemmtilega fjölskyldu-
sport!
Staður: Sporthúsið, Kópavogi.
Kennari: Sigurður Hafsteinsson golfkennari.
Tími: Maí. Stefnt er að þremur dögum aðra vik-
una og tveimur hina.
Verð: kr. 10.000,- fyrir félaga í félagsdeild, kr.
12.500,- fyrir aðra.
Athugið: Hámark 14 komast á námskeiðið. Skráning
er þegar hafin.